Samherjasonur stuggaði við seðlabankastjóra – Kolbeinn: „Þú átt ekki að vera að ýta gestum Alþingis“

Fúkyrðum var hreytt í Má Guð­munds­son að loknum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar og sonur Þor­steins Más Bald­vins­sonar ýtti honum.

Samherjasonur stuggaði við seðlabankastjóra – Kolbeinn: „Þú átt ekki að vera að ýta gestum Alþingis“

Baldvin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más Bald­vins­sonar eig­anda Samherja, þreif í Má Guð­munds­son seðla­banka­stjóra og ýtti honum til á göngum Alþingis í dag.

Atvikið átti sér stað að loknum opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar um vinnu­brögð Seðla­banka Íslands við rann­sókn á við­skipta­háttum Samherja.

Gekk á milliKolbeinn sagði Baldvini Þor­steins­syni að hann mætti ekki „ýta gestum Alþingis“.

Myndbönd sem birst hafa á Vísi.is og RÚV sýna að Baldvin, sem sjálfur er stjórn­ar­for­maður Eimskips, stuggar við seðla­banka­stjóra.

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, gekk á milli þeirra og sagði: „Heyrðu, viltu gjöra svo vel, þú ert hérna í sölum Alþingis og þú átt ekki að vera að ýta gestum Alþingis.“ 

Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu síðla árs 2018 að Seðla­banki Íslands hefði ekki haft heim­ild til að leggja stjórn­valds­sekt á Samherja. Skömmu síðar snupraði umboðs­maður Alþingis Seðla­bank­ann vegna óvand­aðrar stjórn­sýslu í mál­inu.

For­svars­menn Seðla­bank­ans sátu fyrir svörum hjá fasta­nefnd þings­ins í dag, en í kjöl­far fund­ar­ins kom til rysk­ing­anna sem sjá má í mynd­böndum Vísis og RÚV.

Baldvin Þor­steins­son hefur ekki verið áber­andi í rekstri Samherja í gegnum tíð­ina en þó unnið hjá útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu í ára­tug og kom við sögu í rann­sókn Seðla­bank­ans á meintum gjald­eyr­is­laga­brotum fyr­ir­tæk­is­ins.

Eins og Stundin greindi frá þann 23. febr­úar síð­ast­lið­inn er tölvu­póstur frá Baldvini eitt af rann­sókn­ar­gögn­unum í mál­inu en þar leggur Baldvin lín­urnar um hvernig Samherji getur lækkað skipta­hlut sjó­manna í Afríku og lækkað skatt­greiðslur sínar í gegnum Kýpur.

Þor­steinn Már svar­aði fyrir málið í Stund­inni, þar sem Baldvin vildi ekki gera það sjálfur, og sagði hug­mynd­irnar vera bernsku­brek ungs manns sem var „nýskrið­inn“ úr skóla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins
FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
Almenningshlutafélag í stórri eigu Samherja kaupir í sölufyrirtæki Samherja
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár