Sagði sig ekki frá málinu en bað ráðuneytisstjóra um að gæta hlutleysis

Ráðherra hélt upp­lýs­ingum um afskipti Braga Guð­brands­sonar leyndum fyrir Alþingi, samdi við hann um full for­stjóra­laun frá vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu og lækaði Facebook-færslu um árásir eig­in­gjarnra barna­vernd­ar­starfs­manna á for­stjór­ann. Samt taldi hann sig hæfan til að end­ur­skoða fyrri ákvörðun ráðu­neytis síns.

Sagði sig ekki frá málinu en bað ráðuneytisstjóra um að gæta hlutleysis

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefur end­ur­skoðað fyrri ákvörðun um að Bragi Guð­brands­son hjá Barna­vernd­ar­stofu hafi farið út fyrir verk­svið sitt í Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu svo­kall­aða. Samkvæmt nýrri nið­ur­stöðu Ásmundar Einars Daða­sonar, félags og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, sem ráðu­neyt­is­stjóri og skrif­stofu­stjóri und­ir­rita fyrir hans hönd, voru starfs­hættir Braga í sam­ræmi við stjórn­sýslu­lög. 

Í apríl síð­ast­liðnum var Ásmundur Einar stað­inn að því að hafa haldið því leyndu fyrir vel­ferð­ar­nefnd Alþingis að Bragi hefði verið snupraður af ráðu­neyt­inu fyrir að hafa farið út fyrir verk­svið sitt í Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu. Þá kom í ljós að Ásmundur hafði ekki upp­lýst rík­is­stjórn­ina um málið þegar Bragi Guð­brands­son var boð­inn fram til barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna. 

Ásmundur studdi fram­boðið ein­dregið, fór lof­sam­legum orðum um Braga og lagði áherslu á það í umræðu um Hafn­ar­fjarð­ar­málið að öll mál ættu sér tvær hliðar.

Frétta­blaðið greindi svo frá því að ráð­herra hefði samið við Braga um að hann yrði áfram á fullum for­stjóra­launum, fyrst hjá Barna­vernd­ar­stofu og svo hjá vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu, meðan hann sinnir stör­f­unum fyrir barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna (hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum er ekki litið á nefnd­ar­set­una sem starf og er hún ólaunuð þótt greiddur sé ferða­kostn­aður og dag­pen­ingar þegar nefndin kemur saman), en um leið starfar Bragi við ráð­gjöf og afmörkuð verk­efni fyrir ráð­herra.

Loks vakti athygli í sumar þegar Ásmundur Einar lækaði færslu á Facebook um öfund­sjúka og eig­in­gjarna barna­vernd­ar­starfs­menn þar sem ýjað var að því að ann­ar­legar hvatir lægju að baki kvört­unum undan störfum Braga. 

Þrátt fyrir allt þetta taldi ráð­herra ekki ástæðu til að segja sig frá mál­inu þegar vinnu­brögð Braga í Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu voru tekin upp á ný. 

Halldóra Mogensen, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, beindi spurn­ingum til Ásmundar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í morgun. „Almenna reglan í stjórn­sýslu sam­kvæmt umboðs­manni Alþingis er að emb­ætt­is­menn skuli ekki koma að end­ur­skoðun eigin verka í eft­ir­liti innan stjórn­sýsl­unnar enda sé slík aðstaða almennt til þess fallin að valda hættu á því að end­ur­skoð­unin og eft­ir­litið fari ekki fram á hlut­lægum for­sendum og rýra til­trú aðila máls sem og almenn­ings á því að svo sé,“ sagði Halldóra. „Hvers vegna sagði ráð­herra sig ekki frá mál­inu, jafn við­kvæmu máli og raun ber vitni? Var ráð­herra hæfur til þess að taka það fyrir og kom­ast að nið­ur­stöðu? Er þetta til þess fallið að efla traust?“

Í ræðu sinni við­ur­kenndi Ásmundur að hann hefði sjálfur rætt við ráðu­neyt­is­stjóra um málið og beint því til hans að „tryggja að hlut­leysis væri gætt“. Þá sagði Ásmundur að Kristín Bene­dikts­dóttir, lög­fræð­ingur og dós­ent við HÍ – sem Ásmundur kall­aði „þennan ágæta lög­mann“ – hefði „séð um málið fyrir hönd ráðu­neyt­is­ins“.

Samkvæmt nið­ur­stöðu­skjal­inu sem Bragi Guð­brands­son sendi fjöl­miðlum í gær­kvöldi voru það Anna Lilja Gunn­ars­dóttir ráðu­neyt­is­stjóri og Vilborg Hauks­dóttir skrif­stofu­stjóri sem komust að nið­ur­stöðu í end­ur­upp­töku­mál­inu fyrir hönd ráð­herra. Kemur nafn Krist­ínar Bene­dikts­dóttur hvergi fyrir. Engu að síður hvatti Ásmundur til þess í ræðu­stól að Kristín yrði kölluð fyrir vel­ferð­ar­nefnd til að svara fyrir málið.

Halldóra Mogensen gagn­rýndi Ásmund Einar og Katrínu Jak­obs­dóttur harð­lega í ræðu sinni í morgun. „Ráðherra barna­vernd­ar­mála leyndi vel­ferð­ar­nefnd grund­vall­ar­upp­lýs­ingum þegar hann var spurður út í þessi mál á sínum tíma. Vel­ferð­ar­ráðu­neytið klúðr­aði ein­föld­ustu stjórn­sýslu­at­riðum í athugun sinni á þessum alvar­legu árekstrum innan stjórn­kerf­is­ins í einum við­kvæm­asta mála­flokki sem til er,“ sagði hún.

„Við þetta bæt­ist að hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra not­aði vill­andi mál­flutn­ing þegar hún kynnti fyr­ir­ætlun sína um að óháð nefnd myndi fara yfir þessi mál öll á breiðum grunni á sínum tíma. Í ljós kom að vel­ferð­ar­ráðu­neytið fékk að hafa putt­ana í rann­sókn­inni og leggja hópnum lín­urnar um hvað skyldi skoðað. Ekki sér­lega óháð, er það?“ Þá sagð­ist hún vona að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis skoð­aði fram­göngu ráð­herr­anna gagn­vart þing­inu í þessu máli sem allra fyrst. „Fyrr er ekki hægt að treysta ráð­herra, nú eða rík­is­stjórn­inni yfir höfuð, fyrir heild­ar­end­ur­skoðun þessa mála­flokks.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

Barnaníðskæru dagaði uppi fyrir „mjög bagaleg mistök“
FréttirBarnaverndarmál

Barn­a­níð­skæru dag­aði uppi fyrir „mjög baga­leg mis­tök“

Alvarleg mis­tök lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og óvenju­leg afskipti þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu urðu til þess að kæra barna­vernd­ar­nefndar vegna meintra kyn­ferð­is­brota fékk ekki lög­mæta með­ferð og lá óhreyfð í meira en tvö ár. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins.
Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barnaníð
FréttirBarnaverndarmál

Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barn­a­níð

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­brotum föður gegn barni var felld niður án lækn­is­skoð­unar og Barna­hússvið­tals, en í kjöl­farið komu fram yfir­lýs­ingar frá konum sem segja mann­inn hafa mis­notað þær í æsku. Dóm­stólar telja að „það þjóni hags­munum barns­ins að það njóti meiri og sam­felld­ari umgengni við föður“ og hafa úrskurðað um umgengni án eft­ir­lits.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár