Finnst kerfið vinna gegn öryggi barns­ins „Ég er að reyna að sinna frum­skyldu minni sem móðir og tryggja öryggi hennar, en kerfið gerir það ómögu­legt,“ segir ung kona í sam­tali við Stundina. Mynd: Shutterstock

Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barnaníð

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­brotum föður gegn barni var felld niður án lækn­is­skoð­unar og Barna­hússvið­tals, en í kjöl­farið komu fram yfir­lýs­ingar frá konum sem segja mann­inn hafa mis­notað þær í æsku. Dóm­stólar telja að „það þjóni hags­munum barns­ins að það njóti meiri og sam­felld­ari umgengni við föður“. „Ég þarf ann­að­hvort að ger­ast „tálm­un­ar­móðir“ og vera með­höndluð sem slík af kerf­inu, eða að senda dóttur mína í aðstæður þar sem ég veit að hún er ekki örugg, af því ég trúi henni og trúi öðrum sem hafa sagt frá kyn­ferð­is­brotum hans,“ segir móð­irin.

„Ég vona að frá­sögn mín geti orðið til þess að hjálpa litlu frænku minni, aftra því að hún verði skilin eftir ein með þessum manni.“

Þetta segir ung kona sem nýlega lagði fram yfir­lýs­ingu í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur um kyn­ferð­is­of­beldi sem hún varð fyrir af hendi hálf­bróður síns þegar hann var tán­ingur og hún fimm ára gömul.

Móðir kon­unnar hefur und­ir­ritað yfir­lýs­ingu sem styður frá­sögn­ina. „Með þessu er ég bara að gera það litla sem ég get til að hindra að maður sem ég veit að mis­not­aði dóttur mína þegar hún var lítil stúlka haldi áfram slíkri hegðun,“ segir hún í sam­tali við Stundina. 

Þá hefur þriðja konan, sem einnig teng­ist mann­inum fjöl­skyldu­böndum, lagt yfir­lýs­ingu fyrir dóm þar sem hún segir hann hafa brotið gegn sér þegar hún var barn og hann á fram­halds­skóla­aldri.

Ástæðan fyrir því að frá­sagn­irnar eru nú lagðar fram, mörgum árum eftir að meint brot áttu sér stað, er sú að mað­ur­inn stendur í for­sjár­deilu við barns­móður sína og hefur sætt rann­sókn vegna gruns um kyn­ferð­is­brot gegn barn­ungri dóttur þeirra. 

Lögregla lauk rann­sókn kyn­ferð­is­brota­máls­ins án þess að rætt væri við barnið í Barna­húsi eða lækn­is­skoðun fram­kvæmd. Hafa tvö dóms­stig nú úrskurðað um að mað­ur­inn skuli fá að umgang­ast stúlk­una án eft­ir­lits meðan for­sjár­málið er leitt til lykta. Barnsins vegna er fjallað með almennum hætti um málið hér á eftir, án ítar­legra lýs­inga og án þess að nein nöfn komi fram.

Hafnaði ásökunum um kynferðisbrot

Barns­móðir manns­ins leit­aði til barna­vernd­ar­nefndar og lög­reglu síð­asta haust og greindi frá hegð­un­ar­breyt­ingum og frá­sögnum stúlkunnar sem henni fannst benda sterk­lega til kyn­ferð­is­legrar mis­notk­unar. Þá upp­lýsti hún um að mað­ur­inn fengi ítrekað hold­ris þegar hann væri með barnið, hegð­aði sér und­ar­lega í kringum það og sýndi kyn­færum þess óeðli­legan áhuga.

Maðurinn var hand­tek­inn og yfir­heyrður af lög­reglu auk þess sem leitað var í tölvum hans þar sem ekk­ert sak­næmt fannst. Sagðist hann alltaf hafa átt auð­velt með að fá lít­ils háttar hold­ris, hann fengi það jafn­vel við það eitt að stúlkan hopp­aði í fangið á honum, en það væri ekki kyn­ferð­is­legs eðlis. Hann bæri engar kyn­ferð­is­legar hvatir til stúlkunnar og ásak­anir um kyn­ferð­is­brot ættu ekki við rök að styðj­ast.

Læknisskoðun ómöguleg vegna „ósamvinnuþýði stúlkunnar“

Meira en mán­uður leið milli þess að málið var til­kynnt til barna­vernd­ar­nefndar og stúlkan var send í lækn­is­skoðun í Barna­húsi. Samkvæmt gögnum máls­ins var það „skortur á sér­fræð­ingum sem fram­kvæma þess háttar skoð­anir“ sem olli töf­unum. Þegar fram­kvæma átti skoð­un­ina hrökk stúlkan í bak­lás, harð­neit­aði að klæða sig úr föt­unum og fór að gráta. „Ekki tókst að fram­kvæma lækn­is­skoðun vegna ósam­vinnu­þýði stúlkunnar í skoð­un­inni,“ segir í nið­ur­stöðu könn­unar barna­vernd­ar­nefndar sem lok­aði mál­inu skömmu síðar.

Móðir féllst á það með starfs­mönnum Barna­húss að það væri óþarf­lega mikið inn­grip að svæfa stúlk­una svo lækn­is­skoðun gæti farið fram. Síðar komst hún að því að afstaða lög­reglu hafði verið önnur: lög­reglu­full­trúi hjá kyn­ferð­is­brota­deild hafði, sam­kvæmt lög­reglu­dag­bók, lagt áherslu á það í sam­skiptum sínum við barna­vernd­ar­starfs­mann að barnið yrði svæft og lækn­is­skoðun fram­kvæmd. 

Í dag­bók lög­reglu er haft eftir barna­vernd­ar­starfs­manni að málið sé „orðið leið­in­legt umgengn­is­mál og að móðir neit­aði að afhenda barnið til föður á meðan rann­sókn lög­reglu stendur yfir“. Lög­reglan lauk rann­sókn­inni þann 21. febr­úar 2019 og barna­vernd lok­aði mál­inu 15. mars. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

Barnaníðskæru dagaði uppi fyrir „mjög bagaleg mistök“
FréttirBarnaverndarmál

Barn­a­níð­skæru dag­aði uppi fyrir „mjög baga­leg mis­tök“

Alvarleg mis­tök lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og óvenju­leg afskipti þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu urðu til þess að kæra barna­vernd­ar­nefndar vegna meintra kyn­ferð­is­brota fékk ekki lög­mæta með­ferð og lá óhreyfð í meira en tvö ár. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár