Mögulegt að ráðherra hafi brotið gegn þingskapalögum

Ráðherra skal að eigin frum­kvæði leggja fram þær upp­lýs­ingar sem veru­lega þýð­ingu hafa við umfjöllun mála fyrir þing­inu. Á ábyrgð Alþingis að kom­ast að nið­ur­stöðu um hvort brotið hafi verið gegn lög­unum.

Mögulegt að ráðherra hafi brotið gegn þingskapalögum
Sinnti ekki frum­kvæð­is­skyldu Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra upp­lýsti ekki um þá nið­ur­stöðu vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins að Bragi Guð­brands­son hefði farið út fyrir vald­svið sitt á fundi með vel­ferð­ar­nefnd 28. febr­úar síð­ast­lið­inn. Það kann að hafa verið brot á því ákvæði þing­skap­ar­laga sem lýtur að frum­kvæð­is­skyldu ráð­herra til að láta í té gögn sem máli skipta við umfjöllun mála fyrir þing­inu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þingmenn telja mögu­legt að Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra hafi brotið lög með því að leggja ekki fram upp­lýs­ingar þess efnis að Bragi Guð­brands­son hefði farið út fyrir vald­svið sitt með afskiptum af barna­vernd­ar­máli í Hafn­ar­firði. Jafn­framt upp­lýsti Ásmundur Einar vel­ferð­ar­nefnd Alþingis ekki um að til­mælum um að halda sig innan síns valds­sviðs í fram­tíð­inni hefði verið beint til Braga.

Þingmenn sem Stundin hefur rætt við hafa velt því fyrir sér hvort að Ásmundur Einar hafi, með því að leggja ekki fram til­teknar upp­lýs­ingar um aðkomu Braga að barna­vernd­ar­máli því sem Stundin fjall­aði um í for­síðu­frétt síð­ast­lið­inn föstu­dag, hugs­an­lega brotið gegn þing­skap­a­lögum. Þannig sagði Halldóra Mogensen, for­maður vel­ferð­ar­nefndar, í við­tali við Stundina síð­ast­lið­inn mánu­dag, eftir opinn fund nefnd­ar­innar með Ásmundi Einari að hún teldi að ráð­herra hefði ekki fært fram öll þau gögn sem lágu fyrir í mál­inu á fundi með vel­ferð­ar­nefnd 28. febr­úar.

Frumkvæðisskylda á herðum ráðherra

Í 50. gr. þing­skap­ar­laga segir að „við umfjöllun um þing­mál, við sér­stakar umræður, í svörum við fyr­ir­spurnum þing­manna og í skýrslum, hvort sem er að eigin frum­kvæði eða sam­kvæmt beiðni þing­manna, svo og við athugun mála að frum­kvæði fasta­nefnda þings­ins, skal ráð­herra leggja fram þær upp­lýs­ingar sem hann hefur aðgang að og hafa veru­lega þýð­ingu fyrir mat þings­ins á mál­inu.“ Hafa þing­menn sér­stak­lega bent á orða­lagið „hvort sem er að eigin frum­kvæði eða sam­kvæmt beiðni þings­ins“ í þessum efnum.

Líkt og Stundin greindi frá á föstu­dag hafði Bragi afskipti af barna­vernd­ar­máli í Hafn­ar­firði þar sem meint kyn­ferð­is­brot föður gegn dætrum sínum voru til skoð­unar. Barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar kvart­aði undan afskiptum Braga til vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins sem kann­aði gildi þeirrar kvört­unar, sem og kvart­ana tveggja ann­arra barna­vernd­ar­nefnda á hendur Braga og starfs­fólki Barna­vernd­ar­stofu. Nið­ur­staða þeirra könn­unar var sú að Bragi hefði farið út fyrir vald­svið sitt sem for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu þegar hann hafði afskipti af umræddu máli. Kemur þetta fram í minn­is­blaði frá skrif­stofu félags­þjón­ustu í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu og jafn­framt var í því minn­is­blaði lagt til að Braga yrðu send til­mæli um að halda sig innan síns valds­viðs eft­ir­leiðis.

Greindi ekki frá því að Bragi hefði farið út fyrir valdsvið sitt

Ásmundur Einar var þýfg­aður um málið í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi 26. febr­úar síð­ast­lið­inn. Í svörum sínum sagði Ásmundur Einar meðal ann­ars: „nið­ur­staða könn­unar ráðu­neyt­is­ins er sú að for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, eða Barna­vernd­ar­stofa, hafi ekki brotið af sér í starfi.“ Þá mætti Ásmundur Einar á fund vel­ferð­ar­nefndar 28. febr­úar síð­ast­lið­inn vegna máls­ins. Þar greindi hann nefnd­ar­mönnum ekki frá því að nið­ur­staða könn­unar ráðu­neyt­is­ins hefði verið sú Bragi hefði farið út fyrir vald­svið sitt eða beina hefði átt til­mælum til Braga.

„Ráðherra situr í skjóli þings­ins
þannig að þing­menn hafa öll ráð
til að láta hann sæta ábyrgð“

Ásmundur Einar við­ur­kenndi svo loks í Kast­ljósi Rík­is­út­varps­ins síð­ast­liðið mánu­dags­kvöld að nið­ur­staða rann­sóknar ráðu­neyt­is­ins hefði verið sú sem að framan greinir. Hann sagði jafn­framt að til­mæli hefðu verið send út vegna máls­ins og hefðu þau verið í takt við minn­is­blöð sem samin hefðu verið í ráðu­neyt­inu

 50. greinin kjarni málsins

Ragn­hildur Helga­dóttirForseti laga­deildar Háskól­ans í Reykja­vík segir að það sé Alþingis að meta hvort ráð­herra hafi ekki upp­fyllt frum­kvæð­is­skyldu sína.

Stundin hafði sam­band við Ragn­hildi Helga­dóttur, for­seta laga­deildar Háskól­ans í Reykja­vík og sér­fræð­ing í stjórn­skip­unar- og stjórn­sýslu­rétti, og innti hana eftir því hvort hún teldi að Ásmundur Einar hefði brotið gegn þing­skap­ar­lögum með því að upp­lýsa ekki þingið um að nið­ur­staða könn­unar ráðu­neyt­is­ins hefði verið að Bragi hefði farið út fyrir vald­svið sitt, hvorki í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma 26. febr­úar eða á fundi vel­ferð­ar­nefndar 28. febr­úar.

Ragn­hildur segir að það hljóti að ráð­ast af því hvort nið­ur­staðan verði sú að þessar upp­lýs­ingar hefðu haft veru­lega þýð­ingu fyrir mat vel­ferð­ar­nefndar í mál­inu, eða þings­ins.

„Ég get í sjálfu sér bara talað almennt um þetta, þar sem ég hef ekki frekar en aðrir séð þau gögn sem þarna liggja að baki. En þetta er hins vegar kjarni máls­ins, þetta ákvæði þing­skap­ar­laga. Var þarna þagað yfir upp­lýs­ingum gagn­vart þing­inu sem ekki átti að þegja yfir? Sé það til­fellið, eða öllu heldur ef þing­menn kom­ast að því að svo hafi verið, er síðan spurn­ingin hvernig þingið bregð­ist við en þingið sjálft hefur verið mjög tregt til að láta brot sem þessi koma í haus­inn á ráð­herrum með öðrum hætti en opin­berri umræðu.“

Nefnd­ar­menn í vel­ferð­ar­nefnd hafa kallað eftir því að trún­aði yfir umræddum gögnum verði aflétt svo hægt verði að fjalla opin­skátt um málið. Ragn­hildur bendir hins vegar á að það sé í raun ekki nauð­syn­legt til að þing­menn geti tekið afstöðu til þess hvort ráð­herra hafi farið gegn lögum.

„Það má leggja trún­að­ar­gögn fyrir þingið, og það hefur verið gert, og þing­menn hafa allt í hendi sér til að fram­fylgja þessu. Ráðherra situr í skjóli þings­ins þannig að þing­menn hafa öll ráð til að láta hann sæta ábyrgð, verði nið­ur­staðan sú að hann hafi ekki lagt fram upp­lýs­ingar sem honum bar að leggja fram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár