Aðili

Barnaverndarstofa

Greinar

Frásagnir um óeðlilega starfshætti Braga ná mörg ár aftur í tímann
Fréttir

Frá­sagnir um óeðli­lega starfs­hætti Braga ná mörg ár aftur í tím­ann

Barna­vernd­ar­starfs­fólk lýsti óeðli­legum sam­skiptum og til­raunum Braga Guð­brands­sonar til að hafa áhrif á með­ferð barna­vernd­ar­mála allt frá árinu 2002. Engu að síður hefur Bragi í tvígang verið boð­inn fram og kjör­inn í barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna. Í bæði skiptin stóðu yfir rann­sóknir er lutu að starfs­háttum hans.
Kona sem upplifði harðræði á Laugalandi lýsir símtali frá Braga
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Kona sem upp­lifði harð­ræði á Lauga­landi lýsir sím­tali frá Braga

Bragi Guð­brands­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, hringdi í konu sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi fyrir tveimur vikum síðan. Konan segir Braga hafa full­yrt að engin gögn styddu það að konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hefðu verið beittar ofbeldi þar. Ellefu konur hafa lýst harð­ræði og ofbeldi af hálfu Ingjalds Arn­órs­sonar for­stöðu­manns. Bragi segir tíma­bært að „maður sé ekki hund­eltur“ vegna slíkra mála.
Greindi Braga frá ofbeldinu en hann gerði ekkert með það
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Greindi Braga frá ofbeld­inu en hann gerði ekk­ert með það

María Ás Birg­is­dóttir lýsir því að hún hafi verið beitt illri með­ferð og and­legu ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni þegar hún var vistuð á með­ferð­ar­heiml­inu Lauga­landi. Hún greindi þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, Braga Guð­brands­syni, frá ofbeld­inu en hann bar lýs­ingu hennar í Ingjald sem hellti sér yfir hana fyrir vikið. Full­trúar barna­vernd­ar­yf­ir­valda brugð­ust ekki við ítrek­uðum upp­lýs­ingum Maríu um ástandið á Lauga­landi.
Forstjóri Barnaverndarstofu beitti sér hart til varnar Ingjaldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

For­stjóri Barna­vernd­ar­stofu beitti sér hart til varnar Ingjaldi

Bragi Guð­brands­son, þáver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, lagð­ist þungt á rit­stjóra og blaða­mann DV vegna umfjöll­unar um meint ofbeldi af hálfu Ingjalds Arn­þórs­sonar, þáver­andi for­stöðu­manns með­ferð­ar­heim­il­is­ins á Lauga­landi. Þá beitti Bragi sér fyrir því að félags­mála­ráðu­neytið kann­aði ekki ásak­anir á hendur Ingjaldi og mælti með að ráð­herra tjáði sig ekki um málið.
Bragi beitti sér gegn því að ráðuneytið kannaði ábendingar um ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Bragi beitti sér gegn því að ráðu­neytið kann­aði ábend­ingar um ofbeldi

Fyrr­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, Bragi Guð­brands­son, hvatti félags­mála­ráð­herra til að gera sem minnst úr ásök­unum á hendur for­stöðu­manni með­ferð­ar­heim­il­is­ins Lauga­lands, Ingjaldi Arn­þór­syni, við fjöl­miðla. Þá lagð­ist hann einnig gegn því að félags­mála­ráðu­neytið afl­aði gagna um málið.
„Það eina sem ég vildi var að deyja“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Það eina sem ég vildi var að deyja“

Ásta Önnu­dóttir, sem var vistuð um tveggja ára skeið á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, lýsir því að hún hafi orðið fyrir slíku and­legu ofbeldi þar að það hafi dregið úr henni lífs­vilj­ann. Hún hafi verið glað­vært barn en fram­koman í hennar garð á heim­il­inu hafi barið alla gleði úr henni. Það sé fyrst nú, im tveimur ára­tugum síðar, sem hún sé að jafna sig.

Mest lesið undanfarið ár