Aðili

Barnaverndarstofa

Greinar

FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Ítrek­aðar upp­lýs­ingar bár­ust um illa með­ferð á Lauga­landi en Barna­vernd­ar­stofa brást ekki við

Gögn frá umboðs­manni barna sýna að þangað bár­ust ítrek­aðar til­kynn­ingar á árunum 2000 til 2010 um slæmar aðstæður barna á vist­heim­il­unum Varp­holti og Lauga­landi, sem rekið var af sömu aðilum. Var Barna­vernd­ar­stofu gert við­vart vegna þess. Fleiri kvart­anir bár­ust beint til Barna­vernd­ar­stofu, en þáver­andi for­stjóri, Bragi Guð­brands­son, kann­að­ist ekk­ert við málið þegar leitað var svara við því af hverju ekki var brugð­ist við og starf­semin aldrei rann­sökuð.

10 mín. lestur

0:59
ViðtalVarnarlaus börn á vistheimili

„Ég lærði að gráta í þögn“

Á því rúma ári sem Sigurósk Tinna Páls­dóttir var vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi var hún brotin þannig niður að allt hennar líf hefur lit­ast af því. Hún lýsir ótt­anum og van­líð­an­inni sem var við­var­andi á heim­il­inu. Þegar Tinna greindi frá kyn­ferð­is­brotum sem hún hafði orðið fyrir var henni ekki trúað og hún neydd til að biðj­ast afsök­unar á að hafa sagt frá ofbeld­inu. „Ég gerði ekki neitt, það voru þau.“

17 mín. lestur

FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Þriðja hvert barn á með­ferða­heim­ilum sagði starfs­mann hafa beitt sig ofbeldi

Í skýrslu fyrir Barna­vernd­ar­stofu kemur fram að tæp­lega þriðj­ungur barna sagð­ist hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu starfs­manna á með­ferð­ar­heim­ilum á vegum barna­verndar árin 2000 til 2007. Samt segir að lítið ofbeldi hafi verið á með­ferð­ar­heim­il­unum og að sum til­felli til­kynnts ofbeldis hafi verið „hluti af því að stoppa óæski­lega hegðun barns“.
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Barna­vernd­ar­stofa fer yfir mál kvenn­ana sem dvöldu á Lauga­landi

Heiða Björg Pálma­dóttir, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, segir að farið verði yfir mál­efni með­ferð­ar­heim­il­is­ins að Lauga­landi, áður í Varp­holti, hjá stofn­un­inni í ljósi umfjöll­unar Stund­ar­innar um meint harð­ræði og ofbeldi gegn stúlkum sem þar voru vistaðar á árunum 1997 til 2007. Heiða Björg segir einnig að hún sé boðin og búin að funda með þeim konum sem lýst hafa ofbeld­inu sem þær hafi orðið fyrir á heim­il­inu, standi vilji þeirra til þess.
ÚttektVarnarlaus börn á vistheimili

Ábend­ingar um harð­ræði og ofbeldi þegar komnar fram árið 2000

Kvartað var undan fram­göngu Ingjalds Arn­þórs­sonar sem for­stöðu­manns Varp­holts og Lauga­lands strax árið 2000 til Barna­vernd­ar­stofu. Umboðs­maður barna fékk fjölda ábend­inga um ofbeldi og illa með­ferð á með­ferð­ar­heim­il­unum árið 2001, bæði frá stúlkum sem þar dvöldu eða höfðu dvalið og frá for­eldrum. Svo virð­ist sem ásak­an­irnar sem voru settar fram hafi lítt eða ekki verið rann­sak­aðar af hálfu Barna­vernd­ar­stofu. Ingj­aldur starf­aði sem for­stöðu­maður Lauga­lands allt til árs­ins 2007 og hafnar ásök­unum.

19 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár