Þriðja hvert barn á meðferðaheimilum sagði starfsmann hafa beitt sig ofbeldi

Í skýrslu fyrir Barna­vernd­ar­stofu kemur fram að tæp­lega þriðj­ungur barna sagð­ist hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu starfs­manna á með­ferð­ar­heim­ilum á vegum barna­verndar árin 2000 til 2007. Samt segir að lítið ofbeldi hafi verið á með­ferð­ar­heim­il­unum og að sum til­felli til­kynnts ofbeldis hafi verið „hluti af því að stoppa óæski­lega hegðun barns“.

Þriðja hvert barn á meðferðaheimilum sagði starfsmann hafa beitt sig ofbeldi
Lýsa ofbeldi á með­ferð­ar­heim­ili Fjöldi kvenna hefur lýst ofbeldi sem þær urðu fyrir á meðan þær voru vistaðar á Lauga­landi. 29 pró­sent barna sem voru vistuð á lang­tíma­með­ferð­ar­heim­ilum Barna­vernd­ar­stofu lýstu því að hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu starfs­manna.

Hátt í þriðj­ungur barna sem vistuð voru á lang­tíma­með­ferð­ar­heim­ilum Barna­vernd­ar­stofu á árunum 2000 til 2009 lýstu því að þau hefðu orðið fyrir ofbeldi af hálfu starfs­manna heim­il­anna, alls 31 barn. Þrjátíu pró­sent barn­anna sem urðu fyrir ofbeldi segja að þau hafi ekki greint frá því á meðan að á dvöl þeirra stóð.

Fjöldi kvenna hefur lýst því í umfjöllun Stund­ar­innar að þær hafi orðið fyrir ofbeldi af hálfu for­stöðu­manns með­ferð­ar­heim­il­is­ins Lauga­lands á nefndu tíma­bili.

Upp­lýs­ingar um upp­lifun barn­anna á ofbeld­inu koma fram í nið­ur­stöðum rann­sóknar á afdrifum barna sem voru vistuð á með­ferð­ar­heim­ilum Barna­vernd­ar­stofu á fyrr­nefndu ára­bili. Rann­sókn­ar­skýrslan, sem birt var í sept­em­ber 2012, var unnin af Rann­sókna­stofnun í barna og fjöl­skyldu­vernd fyrir Barna­vernd­ar­stofu. Athygli vekur að í sam­an­tekt á nið­ur­stöðum í skýrsl­unni segir: „Yfir­leitt var lítið um ofbeldi inni á með­ferð­ar­heim­il­unum og sumt ofbeldi sem ung­menni sögð­ust hafa orðið fyrir af hendi starfs­manns var talið hluti af því að stoppa óæski­lega hegðun barns. Í þeim til­fellum sem greint var frá ofbeldi var það bundið við ákveðin heim­ili.“ Rétt er að hnykkja á því að 29 pró­sent barna sem voru vistuð á lang­tíma­með­ferð­ar­heim­ilum sögð­ust hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu starfs­manns og sama hlut­fall hafði orðið fyrir ofbeldi af hálfu ann­arra sem voru vistaðir á með­ferð­ar­heim­il­inu.

Fjöldi kvenna lýsir ofbeldi á Laugalandi

Í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar stigu fram sex konur sem vistaðar höfðu verið á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, áður Varp­holti, í Eyja­firði og lýstu þær því hvernig for­stöðu­maður heim­il­is­ins, Ingj­aldur Arn­þórs­son, hefði beitt þær bæði and­legu og lík­am­legu ofbeldi. Jafn­framt lýstu þær því að þær hefðu orðið vitni að því að Ingj­aldur beitti aðrar stúlkur sem dvöldu á með­ferð­ar­heim­il­inu ofbeldi og að harð­ræði og ótta­stjórnun hefði ríkt inni á heim­il­inu. Konurnar krefj­ast þess að skipuð verði rann­sókn­ar­nefnd til að fara í saumana á rekstri heim­il­is­ins með hlið­sjón af vitn­is­burðum þeirra um ofbeldi Ingjalds en hann rak heim­ilið á árunum 1997 til 2007.

„Hann skrif­aði ekk­ert niður og ekk­ert gerð­ist í kjöl­farið“
Kolbrún Þor­steins­dóttir

Í Stund­inni var jafn­framt greint frá því að til­kynn­ingar um harð­ræði og ofbeldi af hálfu Ingjalds hefðu borist Barna­vernd­ar­stofu þegar árið 2000. Árið 2001 fund­uðu þrjár stúlkur sem höfðu dvalið á Lauga­landi með umboðs­manni barna og lýstu ofbeld­inu. Umboðs­maður upp­lýsti Barna­vernd­ar­stofu um lýs­ingar stúlkn­anna og jafn­framt er til­greint að fleiri lýs­ingar á harð­ræði og ofbeldi á Lauglandi hefðu þá borist. Umboðs­maður fór fram á það við Barna­vernd­ar­stofu árið 2002 að rann­sókn yrði gerð á ásök­un­unum en gögn benda ekki til að það hafi verið gert.

Ein stúlkn­anna, Kolbrún Þor­steins­dóttir, lýsir fundi sem hún átti með Braga Guð­brands­syni, for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, og lýsti fyrir honum ofbeld­inu í Varp­holti og Lauga­landi. „Hann skrif­aði ekk­ert niður og ekk­ert gerð­ist í kjöl­farið.“

Bragi kvaðst í sam­tali við Stundina ekki geta svarað fyrir málið. „Mig rekur ekki minni til að barn hafi komið á minn fund með umkvört­un­ar­efni um þetta, án þess að ég sé að úti­loka það for­taks­laust, enda ertu að vísa þarna í hart­nær tutt­ugu ára gamla heim­sókn, ef að hún hefur átt sér stað,“ sagði hann.

Svör foreldra ríma við svör barna

Rann­sóknin frá árinu 2012 tók til tíu með­ferð­ar­heim­ila Barna­vernd­ar­stofu, þar af til sjö lang­tíma­með­ferð­ar­heim­ila. Hér verður aðeins fjallað um lang­tíma­með­ferð­ar­heim­ilin nema annað sé til­tekið. Umrædd heim­ili eru Lauga­land, Hvít­ár­bakki, Árbót, Berg, Geld­inga­lækur, Háholt, Jök­ul­dalur og Torfa­staðir. Rann­sóknin var unnin á árunum 2010 og 2011. Í skýrsl­unni eru nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar ekki eða lítt brotnar niður eftir með­ferð­ar­heim­il­inum og er fjallað um þau í heild. Stundin hefur óskað eftir bak­grunns­gögnum fyrir Lauga­land sér­stak­lega frá Barna­vernd­ar­stofu. Af þeim sem svör­uðu könn­un­inni höfðu 22 verið vistuð á Lauga­landi, 7,6 pró­sent.

Af þeim börnum sem vistuð voru á lang­tíma­með­ferð­ar­heim­ilum Barna­vernd­ar­stofu greindu 29 pró­sent frá því að þau hefðu orðið fyrir ofbeldi af hálfu ann­arra vist­manna. Algeng­asta svarið var að börnin hefðu verið beitt and­legu ofbeldi en alls 16,7 pró­sent barn­anna svör­uðu því til, 7,2 pró­sent sögð­ust hafa orðið fyrir lík­am­legu ofbeldi, 1,7 pró­sent höfðu orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni og 0,7 höfðu orðið fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Tæplega 40 pró­sent þeirra sem urðu fyrir ofbeld­inu sögðu ekki frá því á meðan á dvöl þeirra stóð.

For­eldrar barn­anna voru einnig spurðir hvort börn þeirra hefðu orðið fyrir and­legu eða lík­am­legu ofbeldi af hálfu ann­ara barna sem voru í með­ferð á sama tíma. For­eldrar barna sem dvalið höfðu á lang­tíma­með­ferð­ar­heim­ilum svör­uðu því ját­andi í 17 pró­sentum til­vika. Sé horft til svara barn­anna sjálfra og þess að 40 pró­sent þeirra sögð­ust ekki hafa greint frá ofbeld­inu á meðan að á dvöl þeirra stóð má sjá að svör for­eldra ríma mjög vel við þær tölur.

Fjórðungur sagði ekki frá

29%
barn­anna lýstu því að hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu starfs­manns

Börnin voru einnig spurð hvort þau hefðu orðið fyrir ofbeldi af hálfu starfs­manna með­ferð­ar­heim­il­inna. Af þeim börnum sem dvöldu á lang­tíma­með­ferð­ar­heim­ilum Barna­vernd­ar­stofu svör­uðu 29 pró­sent því ját­andi, alls 31 barn. Dreifing svara var ólík á milli heim­il­anna sem um ræðir, þannig hafði eng­inn sem dvaldi á heim­il­unum að Geld­inga­læk eða Hvít­ár­bakka orðið fyrir ofbeldi af hálfu starfs­manns, heim­ilið á Jökuldal var und­an­þegið þar eð aðeins barst eitt svar þaðan. Eftir standa því fjögur lang­tíma­með­ferð­ar­heim­ili, Lauga­land, Árbót, Berg og Háholt. Hlutfall þeirra barna sem höfðu orðið fyrir ofbeldi af hálfu starfs­manns var á bil­inu 13 til 50 pró­sent á þeim heim­ilum. Ekki er frekara nið­ur­brot að finna í skýrsl­unni.

Í svörum aðstand­enda kemur fram að 20 pró­sent for­eldra barna sem voru vistuð á lang­tíma­með­ferð­ar­heim­ilum sögðu börn sín hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu starfs­manna. Tæpur fjórð­ungur, 23,5 pró­sent, greindi ekki frá því að hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu starfs­manna á meðan að á vistun þeirra stóð sam­kvæmt svörum for­eldra.

Í skýrsl­unni kemur fram að af þeim börnum sem orðið höfðu fyrir ofbeldi af hálfu starfs­manns á lang­tíma­með­ferð­ar­heim­ilum Barna­vernd­ar­stofu höfðu þau flest orðið fyrir and­legu ofbeldi, eða 23 pró­sent. Þá sögð­ust 17 pró­sent þeirra hafa orðið fyrir lík­am­legu ofbeldi af hálfu starfs­manns og í einu pró­senti til­vika fyrir kyn­ferð­is­legu áreiti. Mörg barn­anna nefndu fleiri en eina teg­und ofbeldis. Þrjátíu pró­sent barn­anna sögðu ekki frá því að þau hefðu verið beitt ofbeldi á meðan að á dvöl þeirra á með­ferð­ar­heim­il­inu stóð.

Yfir þriðjungur sagði dvölina ekki hafa hjálpað

Börnin voru spurð um ýmis atriði er lutu að dvöl­inni á með­ferð­ar­heim­il­inu. Meðal ann­ars var spurt hvort þau hefðu náð góðu sam­bandi við að minnsta kosti einn starfs­mann og svör­uðu flest því ját­andi, eða 90 pró­sent.

34%
barn­anna sögðu dvöl­ina ekki hafa hjálpað

Í heild sögðu 62% þeirra barna sem dvöldu á lang­tíma­með­ferð­ar­heim­ilum Barna­vernd­ar­stofu að dvölin hefði hjálpað þeim við að takast á við þann vanda sem þau glímdu við. Hins vegar sögðu 34% að dvölin hefði ekki hjálpað þeim.

Þegar horft er til þess hversu vel dvölin gagn­að­ist börn­unum þá má nefna að 41% þeirra barna sem dvalið höfðu á lang­tíma­með­ferð­ar­heim­ili höfðu farið í með­ferð við áfengis- eða fíkni­efna­vanda eftir að dvöl þeirra lauk. 50% þeirra höfðu leitað sér aðstoðar vegna til­finn­inga­legra eða geð­rænna erf­ið­leika.

Þá höfðu 26% þeirra barna sem dvöldu á lang­tíma­með­ferð­ar­heim­ilum Barna­vernd­ar­stofu setið í gæslu­varð­haldi eða í fang­elsi eftir að dvöl þeirra á heim­il­unum lauk.

Stúlkurnar á Laugalandi þorðu ekki að segja frá

Barna­vernd­ar­nefndir sveit­ar­fé­lag­anna eru einu aðil­arnir sem geta vistað börn á með­ferð­ar­heim­ilum á vegum Barna­vernd­ar­stofu. Barna­vernd­ar­nefnd­irnar sjálfar bera ábyrgð á vistun og dvöl barn­anna. Samkvæmt svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar til Barna­verndar Reykja­víkur var það starfs­regla þar, og er, að væri kvartað yfir með­ferð barna á vist­heim­ilum eða með­ferð­ar­heim­ilum voru þær umkvart­anir sendar til Barna­vernd­ar­stofu. Hið sama gildir um Barna­vernd Akur­eyr­ar­bæjar. Í svari frá Barna­vernd Akur­eyrar kemur fram að Barna­vernd búi ekki yfir neinum gögnum er varði Lauga­land sjálft, aðeins gögnum er varði þau börn er þar voru vistuð og óheim­ilt er að afhenda á grunni per­sónu­verndar.

Hákon Sig­ur­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Barna­verndar Reykja­víkur, vildi í sam­tali við Stundina ekki þver­taka fyrir að þar væri að finna gögn er sneru að Lauga­landi, ótengd nafn­greindum börnum sem þar hefðu dvalið. Hins vegar hefðu ábend­ingar eða erindi af slíku tagi verið send áfram til Barna­vernd­ar­stofu til með­ferðar. Vísaði Hákon á Barna­vernd­ar­stofu í því sam­hengi. Stundin hafði þegar sent upp­lýs­inga­beiðni til Barna­vernd­ar­stofu og óskað eftir að fá þau gögn sem snertu Lauga­land, áður Varpholt, á ára­bil­inu 1997 til 2007 afhent. Þeirri beiðni hefur enn ekki verið svarað.

„Þegar ein­hver frá barna­vernd­ar­yf­ir­völdum kom í heim­sókn til að kanna ástandið á heim­il­inu þorðum við ekki að segja neitt slæmt um Ingjald“
Gígja Skúla­dóttir

Barna­vernda­stofa sinnti bæði eft­ir­liti og ráð­gjöf með með­ferð­ar­heim­ilum sem starf­rækt eru á hennar vegum. Eft­ilit­inu var skipt í innra eft­ir­lit og ytra eft­ir­lit. Í ytra eft­ir­liti fólst meðal ann­ars eft­ilit með fag­legu starfi innan með­ferð­ar­heim­il­anna. Í innra eft­ir­liti fólst meðal annar eft­it­lit með líðan barna sem dvöldu á með­ferða­heim­ilum og fram­vindu með­ferðar þeirra. Sem lið í því eft­ir­liti skyldu starfs­menn Barna­vernd­ar­stofu heim­sækja með­ferð­ar­heim­ili þrisvar á ári, skoða aðstæður, starf­sem­ina og líðan ein­stakra barna auk þess að leggja fyrir þau við­horfskönnun. Konurnar sem dvöldu á Lauga­landi hafa lýst því að þær hafi ekki þorað að segja neitt nei­kvætt um starf­sem­ina eða fram­göngu Ingj­aldar Arn­þórs­sonar í þessum heim­sóknum. Þær hafi ekki treyst neinum full­orðnum enda hafi þær upp­lifað að það sem þær segðu í trún­aði bær­ist Ingjaldi til eyrna, með þeim afleið­ingum að fram­koma hans við þær versn­aði enn. „Þegar ein­hver frá barna­vernd­ar­yf­ir­völdum kom í heim­sókn til að kanna ástandið á heim­il­inu þorðum við ekki að segja neitt slæmt um Ingjald,“ sagði Gígja Skúla­dóttir í við­tali í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.
Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfisbundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.
„Þetta er áframhaldandi ofbeldi“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­hald­andi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár