Flokkur

Meðferðarheimili

Greinar

Aukin kynjaskipting í Krýsuvík: Ofbeldismaður og þolandi ekki saman í meðferð
Fréttir

Aukin kynja­skipt­ing í Krýsuvík: Ofbeld­is­maður og þol­andi ekki saman í með­ferð

Stefnt er að því að opna þrjú ný pláss fyrir konur á með­ferð­ar­heim­il­inu Krýsuvík í febr­úar. Fram­kvæmda­stjóri Krýsu­vík­ur­sam­tak­anna segir það almenna stefnu í dag að auka kynja­skipt­ingu í fíkni­með­ferð. Þekktur ofbeld­is­maður hefur lengi verið á biðlista eftir með­ferð en kemst hvergi að vegna sögu sinnar.
Skýrslan um Laugaland tilbúin en verður ekki gerð opinber strax
FréttirLaugaland/Varpholt

Skýrslan um Lauga­land til­búin en verður ekki gerð opin­ber strax

Rann­sókn­ar­skýrslu um hvort ofbeldi hafi verið beitt á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, áður Varp­holti, var skilað um síð­ustu mán­aða­mót. Engu að síður hefur hún ekki enn verið kynnt fyrir ráð­herrum. Fimmtán mán­uðir eru síðan rann­sóknin hófst. Vinna við rann­sókn á Breiða­vík­ur­heim­il­inu, sem var rekið lengur og fleiri börn dvöldu á, tók tíu mán­uði. Konurnar sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafa engar upp­lýs­ingar fengið um rann­sókn­ina.
Biðin eftir niðurstöðu í Laugalandsmálinu orsakar áfallastreitu
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Biðin eftir nið­ur­stöðu í Lauga­lands­mál­inu orsakar áfallastreitu

Kolbrún Þor­steins­dóttir, ein kvenn­ana sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, segir að það að hafa greint frá ofbeldi sem hún varð fyrir þar hafi valdið áfallastreitu. Hið sama megi segja um fleiri kvenn­anna. Löng bið eftir nið­ur­stöðum rann­sóknar á með­ferð­ar­heim­il­inu hefur aukið á van­líðan kvenn­ana.
Kona sem upplifði harðræði á Laugalandi lýsir símtali frá Braga
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Kona sem upp­lifði harð­ræði á Lauga­landi lýsir sím­tali frá Braga

Bragi Guð­brands­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, hringdi í konu sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi fyrir tveimur vikum síðan. Konan segir Braga hafa full­yrt að engin gögn styddu það að konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hefðu verið beittar ofbeldi þar. Ellefu konur hafa lýst harð­ræði og ofbeldi af hálfu Ingjalds Arn­órs­sonar for­stöðu­manns. Bragi segir tíma­bært að „maður sé ekki hund­eltur“ vegna slíkra mála.
Skólastjórnendur trúðu ekki frásögn stúlku af ofbeldi á Laugalandi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skóla­stjórn­endur trúðu ekki frá­sögn stúlku af ofbeldi á Lauga­landi

Stúlka sem vistuð var á Lauga­landi trúði skóla­systur sinni í Hrafna­gils­skóla fyrir því að hún væri beitt ofbeldi á með­ferð­ar­heim­il­inu og sýndi henni áverka á lík­ama sínum. Skóla­stjórn­endur vís­uðu frá­sögn þar um á bug með þeim orðum að stúlk­urnar á Lauga­landi væru vand­ræðaung­lingar sem ekki ætti að trúa. Fyrr­ver­andi skóla­stjóri segir að í dag myndi hann tengja þær aðferðir sem beitt var á með­ferð­ar­heim­il­inu við ofbeldi.
Félagsmálaráðuneytið brýtur upplýsingalög í Laugalandsmálinu
FréttirLaugaland/Varpholt

Félags­mála­ráðu­neytið brýtur upp­lýs­inga­lög í Lauga­lands­mál­inu

Félags­mála­ráðu­neytið svarar ekki bréfum kvenna sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi né heldur erindi lög­manns kvenn­anna. Lög­bund­inn frestur til að svara erind­unum er útrunn­inn. Þrátt fyrir lof­orð þar um hefur Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra ekki boðið kon­unum til fundar að nýju.

Mest lesið undanfarið ár