Flokkur

Meðferðarheimili

Greinar

Greindi Braga frá ofbeldinu en hann gerði ekkert með það
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Greindi Braga frá ofbeld­inu en hann gerði ekk­ert með það

María Ás Birg­is­dóttir lýsir því að hún hafi verið beitt illri með­ferð og and­legu ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni þegar hún var vistuð á með­ferð­ar­heiml­inu Lauga­landi. Hún greindi þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, Braga Guð­brands­syni, frá ofbeld­inu en hann bar lýs­ingu hennar í Ingjald sem hellti sér yfir hana fyrir vikið. Full­trúar barna­vernd­ar­yf­ir­valda brugð­ust ekki við ítrek­uðum upp­lýs­ingum Maríu um ástandið á Lauga­landi.
Rannsókn á starfsemi meðferðarheimilisins Laugalands ekki í forgangi og langt í niðurstöðu
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Rannsókn á starf­semi með­ferð­ar­heim­il­is­ins Lauga­lands ekki í for­gangi og langt í nið­ur­stöðu

Rannsókn á því hvort stúlkur hafi verið beittar illri með­ferð og ofbeldi á með­ferð­ar­heim­il­inu er enn á und­ir­bún­ings­stigi hjá Gæða- og eft­ir­lits­stofnun félags­þjón­ustu og barna­verndar. Vinna á rann­sókn­ina með­fram dag­legum verk­efnum „og því ljóst að nið­ur­staðna er ekki að vænta á næst­unni,“ segir í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.
Forstjóri Barnaverndarstofu beitti sér hart til varnar Ingjaldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

For­stjóri Barna­vernd­ar­stofu beitti sér hart til varnar Ingjaldi

Bragi Guð­brands­son, þáver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, lagð­ist þungt á rit­stjóra og blaða­mann DV vegna umfjöll­unar um meint ofbeldi af hálfu Ingjalds Arn­þórs­sonar, þáver­andi for­stöðu­manns með­ferð­ar­heim­il­is­ins á Lauga­landi. Þá beitti Bragi sér fyrir því að félags­mála­ráðu­neytið kann­aði ekki ásak­anir á hendur Ingjaldi og mælti með að ráð­herra tjáði sig ekki um málið.
Bragi beitti sér gegn því að ráðuneytið kannaði ábendingar um ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Bragi beitti sér gegn því að ráðu­neytið kann­aði ábend­ingar um ofbeldi

Fyrr­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, Bragi Guð­brands­son, hvatti félags­mála­ráð­herra til að gera sem minnst úr ásök­unum á hendur for­stöðu­manni með­ferð­ar­heim­il­is­ins Lauga­lands, Ingjaldi Arn­þór­syni, við fjöl­miðla. Þá lagð­ist hann einnig gegn því að félags­mála­ráðu­neytið afl­aði gagna um málið.
„Það eina sem ég vildi var að deyja“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Það eina sem ég vildi var að deyja“

Ásta Önnu­dóttir, sem var vistuð um tveggja ára skeið á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, lýsir því að hún hafi orðið fyrir slíku and­legu ofbeldi þar að það hafi dregið úr henni lífs­vilj­ann. Hún hafi verið glað­vært barn en fram­koman í hennar garð á heim­il­inu hafi barið alla gleði úr henni. Það sé fyrst nú, im tveimur ára­tugum síðar, sem hún sé að jafna sig.
Ítrekaðar upplýsingar bárust um illa meðferð á Laugalandi en Barnaverndarstofa brást ekki við
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Ítrek­aðar upp­lýs­ingar bár­ust um illa með­ferð á Lauga­landi en Barna­vernd­ar­stofa brást ekki við

Gögn frá umboðs­manni barna sýna að þangað bár­ust ítrek­aðar til­kynn­ingar á árunum 2000 til 2010 um slæmar aðstæður barna á vist­heim­il­unum Varp­holti og Lauga­landi, sem rekið var af sömu aðilum. Var Barna­vernd­ar­stofu gert við­vart vegna þess. Fleiri kvart­anir bár­ust beint til Barna­vernd­ar­stofu, en þáver­andi for­stjóri, Bragi Guð­brands­son, kann­að­ist ekk­ert við málið þegar leitað var svara við því af hverju ekki var brugð­ist við og starf­semin aldrei rann­sökuð.

Mest lesið undanfarið ár