Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni

Börn sem vistuð voru á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, áður Varp­holti, voru beitt alvar­legu and­legu ofbeldi með kerf­is­bundnum hætti. Á þriðja tug þeirra barna sem tekin voru við­töl við við rann­sókn á starf­semi með­ferð­ar­heim­il­is­ins lýstu einnig því að hafa orðið fyrir lík­am­legu ofbeldi og áreitni eða hafa orðið vitni að slíku ofbeldi. Barna­vernd­ar­stofa brást eft­ir­lits­hlut­verki sínu.

Þetta kemur fram í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um starf­semi heim­il­is­ins á árunum 1997 til 2007. Aðeins voru tekin við­töl við 34 af þeim 65 börnum sem vistuð voru á heim­il­inu. Þegar hafa komið fram vitn­is­burðir um að fólki hafi ekki staðið til boða að segja sína sögu fyrir rann­sókn­ar­nefnd­inni.

Sextán konur sem vistaðar voru á heim­il­inu á þessum árum stíga nú fram í Stund­inni og skila skömminni þangað sem hún á heima. 

Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík

Á Lauga­landi 2004-2005, 13-14 ára. 

„Mér leið ömur­lega á Lauga­landi, reyndi ítrekað að taka eigið líf og finnst ég …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (8)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SV
    Salvör Valgeirsdóttir skrifaði
    ❤💔❤💔❤
    Áfram þið 👏🏼
    0
  • April Summer skrifaði
    Varđandi hörpu særós gleymist ađ nefna saumuđu skurđina sem blæddi úr þegar hann neyddi hana ađ lyfta 4 þyngstu innkaupa pokunum
    0
  • April Summer skrifaði
    Áfram stelpur ❤💯
    0
  • SE
    Sigríður Eggertsdóttir skrifaði
    Það er lágmark að draga þessi hjón tll ábyrgðar og Braga Guðbrandsson. Það er ógeðslegt þjóðfélag þar sem ekki er tekið á sökudólgum og svo mælt með endurkjöri Braga Guðbrandssonar í stað þess að hann stæði fyrir máli sínu hér heima.
    3
  • Mummi Týr skrifaði
    Barnaverndarstofa með Braga Guðbrandsson í forstöðu vissu alveg hvernig landið lá þarna. Barnmálaráðherra mælti svo með Braga Guðbrandssyni í endurkjör í nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins til næstu fjögurra ára á fundi aðildarríkja Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í New York. Kerfið klikkar ekki á sínum :)
    4
    • GH
      Guðrún Hálfdánardóttir skrifaði
      Algjörlega galið. Það þarf svo sannarlega að skoða feril Braga og það strax.
      0
  • Baldur Garðarsson skrifaði
    Svona á alls ekki að koma fram við unglinga. Hvar er þessi skýrsla finnanleg?
    0
    • https://gev.is/utgafa-greinargerdar-um-medferdarheimilid-i-varpholti-og-a-laugalandi-1997-2007/
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfisbundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.
„Þetta er áframhaldandi ofbeldi“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­hald­andi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár