Aðili

Kolbrún Þorsteinsdóttir

Greinar

Biðin eftir niðurstöðu í Laugalandsmálinu orsakar áfallastreitu
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Biðin eftir nið­ur­stöðu í Lauga­lands­mál­inu orsakar áfallastreitu

Kolbrún Þor­steins­dóttir, ein kvenn­ana sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, segir að það að hafa greint frá ofbeldi sem hún varð fyrir þar hafi valdið áfallastreitu. Hið sama megi segja um fleiri kvenn­anna. Löng bið eftir nið­ur­stöðum rann­sóknar á með­ferð­ar­heim­il­inu hefur aukið á van­líðan kvenn­ana.
Skólastjórnendur trúðu ekki frásögn stúlku af ofbeldi á Laugalandi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skóla­stjórn­endur trúðu ekki frá­sögn stúlku af ofbeldi á Lauga­landi

Stúlka sem vistuð var á Lauga­landi trúði skóla­systur sinni í Hrafna­gils­skóla fyrir því að hún væri beitt ofbeldi á með­ferð­ar­heim­il­inu og sýndi henni áverka á lík­ama sínum. Skóla­stjórn­endur vís­uðu frá­sögn þar um á bug með þeim orðum að stúlk­urnar á Lauga­landi væru vand­ræðaung­lingar sem ekki ætti að trúa. Fyrr­ver­andi skóla­stjóri segir að í dag myndi hann tengja þær aðferðir sem beitt var á með­ferð­ar­heim­il­inu við ofbeldi.
Greindi Braga frá ofbeldinu en hann gerði ekkert með það
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Greindi Braga frá ofbeld­inu en hann gerði ekk­ert með það

María Ás Birg­is­dóttir lýsir því að hún hafi verið beitt illri með­ferð og and­legu ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni þegar hún var vistuð á með­ferð­ar­heiml­inu Lauga­landi. Hún greindi þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, Braga Guð­brands­syni, frá ofbeld­inu en hann bar lýs­ingu hennar í Ingjald sem hellti sér yfir hana fyrir vikið. Full­trúar barna­vernd­ar­yf­ir­valda brugð­ust ekki við ítrek­uðum upp­lýs­ingum Maríu um ástandið á Lauga­landi.
Forstjóri Barnaverndarstofu beitti sér hart til varnar Ingjaldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

For­stjóri Barna­vernd­ar­stofu beitti sér hart til varnar Ingjaldi

Bragi Guð­brands­son, þáver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, lagð­ist þungt á rit­stjóra og blaða­mann DV vegna umfjöll­unar um meint ofbeldi af hálfu Ingjalds Arn­þórs­sonar, þáver­andi for­stöðu­manns með­ferð­ar­heim­il­is­ins á Lauga­landi. Þá beitti Bragi sér fyrir því að félags­mála­ráðu­neytið kann­aði ekki ásak­anir á hendur Ingjaldi og mælti með að ráð­herra tjáði sig ekki um málið.
Þriðja hvert barn á meðferðaheimilum sagði starfsmann hafa beitt sig ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Þriðja hvert barn á með­ferða­heim­ilum sagði starfs­mann hafa beitt sig ofbeldi

Í skýrslu fyrir Barna­vernd­ar­stofu kemur fram að tæp­lega þriðj­ungur barna sagð­ist hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu starfs­manna á með­ferð­ar­heim­ilum á vegum barna­verndar árin 2000 til 2007. Samt segir að lítið ofbeldi hafi verið á með­ferð­ar­heim­il­unum og að sum til­felli til­kynnts ofbeldis hafi verið „hluti af því að stoppa óæski­lega hegðun barns“.

Mest lesið undanfarið ár