Aðili

Varpholt

FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Kona sem upplifði harðræði á Lauga­landi lýsir símtali frá Braga

Bragi Guðbrandsson, fyrr­verandi forstjóri Barna­verndar­stofu, hringdi í konu sem vistuð var á meðferðar­heimilinu Lauga­landi fyrir tveimur vikum síðan. Konan segir Braga hafa fullyrt að engin gögn styddu það að konur sem vistaðar voru á meðferðar­heimilinu hefðu verið beittar ofbeldi þar. Ellefu konur hafa lýst harðræði og ofbeldi af hálfu Ingjalds Arnórs­sonar forstöðu­manns. Bragi segir tímabært að „maður sé ekki hundeltur“ vegna slíkra mála.

12 mín. lestur

FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skóla­stjórnendur trúðu ekki frásögn stúlku af ofbeldi á Lauga­landi

Stúlka sem vistuð var á Lauga­landi trúði skóla­systur sinni í Hrafna­gilsskóla fyrir því að hún væri beitt ofbeldi á meðferðar­heimilinu og sýndi henni áverka á líkama sínum. Skóla­stjórnendur vísuðu frásögn þar um á bug með þeim orðum að stúlkurnar á Lauga­landi væru vandræða­unglingar sem ekki ætti að trúa. Fyrr­verandi skóla­stjóri segir að í dag myndi hann tengja þær aðferðir sem beitt var á meðferðar­heimilinu við ofbeldi.
3:23
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Greindi Braga frá ofbeldinu en hann gerði ekkert með það

María Ás Birgis­dóttir lýsir því að hún hafi verið beitt illri meðferð og andlegu ofbeldi af Ingjaldi Arnþórs­syni þegar hún var vistuð á meðferð­ar­heimlinu Lauga­landi. Hún greindi þáverandi forstjóra Barna­verndar­stofu, Braga Guðbrands­syni, frá ofbeldinu en hann bar lýsingu hennar í Ingjald sem hellti sér yfir hana fyrir vikið. Fulltrúar barna­verndar­yfirvalda brugðust ekki við ítrekuðum upplýsingum Maríu um ástandið á Lauga­landi.

20 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár