„Kom mölbrotin út af meðferðarheimilinu“

Teresa Dröfn Freys­dóttir Njarðvík vill að barna­vernd­ar­nefnd­irnar sem komu að hennar máli þegar hún var stelpa við­ur­kenni að starfs­fólk þeirra hafi ekki fylgst nógu vel með með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi og þaggað niður það sem þar gekk á. Teresa seg­ist vilja fá almenna við­ur­kenn­ingu á því sem hún lenti í og afsök­un­ar­beiðni. Enn fái hún martraðir sem snú­ist um að hún sé læst inni á Lauga­landi og yfir hana hellist reglu­lega sú til­finn­ing að hún sé valda­laus og ein­hver, sem vill henni ekki vel, stjórni lífi hennar.

„Kom mölbrotin út af meðferðarheimilinu“
Teresa Dröfn Freys­dóttir Njarðvík Teresa segir að stelp­urnar sem voru á með­ferð­ar­heim­il­inu á Lauga­landi hafi ekki þorað að láta vita af ofbeld­inu sem þær urðu fyrir þar enda hafi kvart­anir þeirra alltaf verið afgreiddar sem mót­þrói vand­ræðaung­linga. Hún segir að börn fái ekki að njóta vafans inn í kerf­inu. Mynd: Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík

Teresa Dröfn Freys­dóttir Njarðvík var send á með­ferð­ar­heim­ilið Lauga­land í Eyja­firði sum­arið 2004 eftir að hafa verið í mánuð á Barna- og ung­linga­geð­deild­inni, en hún var lögð þar inn eftir til­raun til sjálfs­vígs. Þá var hún þrettán ára gömul. 

„Ég var lang­yngsta stelpan á Lauga­landi og átti lítið sam­eig­in­legt með hinum stelp­unum sem flestar áttu sögu um áfeng­is­notkun eða aðra vímu­efna­neyslu. Eftir á að hyggja hefði aldrei átt að vista mig þarna, ég var barn sem átti mjög bágt vegna heim­il­is­að­stæðna en ég var ekki í neyslu. Ég var send á Lauga­land út af hegð­un­ar­vanda. Barna­vernd ákvað það. En minn stærsti vandi voru heim­il­is­að­stæð­urnar. For­eldrar mínir voru í mik­illi neyslu og enn þann dag í dag skil ég ekki af hverju var ekki gripið inn í það í stað þess að senda mig í burtu. Litli bróðir minn, sem þá var að byrja í sex ára bekk, var skil­inn …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­hald­andi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár