Forstjóri Barnaverndarstofu styður rannsókn á Laugalandi

Heiða Björg Pálma­dóttir fund­aði í gær með full­trúum kvenna sem lýst hafa ofbeldi á meðan þær voru vistaðar á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og Lauga­landi. Konurnar segja að þeim hafi verið vel tekið og að Heiða Björg hafi sagst styðja að opin­ber rann­sókn færi fram.

Forstjóri Barnaverndarstofu styður rannsókn á Laugalandi
Ánægðar með fund­inn Þær systur Brynja og Gígja segja að þeim hafi verið vel tekið á fundi með for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, Heiðu Björg Pálma­dóttur.

Full­trúar kvenna sem lýst hafa illri með­ferð og ofbeldi á með­ferð­ar­heim­il­inu sem rekið var í Varp­holti og síðar Lauga­landi í Eyja­firði fund­uðu í gær með Heiðu Björgu Pálma­dóttur, for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu. Konurnar segja að þeim hafi verið vel tekið og Heiða Björg hafi lýst því að hún vildi að mál þeirra yrði rann­sakað af opin­berum aðilum.

Brynja Skúla­dóttir fund­aði með Heiðu Björgu í gær fyrir hönd kvenn­anna, ásamt Gígju Skúla­dóttur systur sinni. Þær voru báðar vistaðar á með­ferð­ar­heim­il­inu á árunum 1999 til 2001 og lýstu í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar ofbeldi, bæði and­legu og lík­am­legu, af hálfu Ingjalds Arn­þórs­sonar for­stöðu­manns heim­il­is­ins. „Eitthvað sem ég sagði gerði það að verkum að Ingjaldi fannst ég van­þakk­lát. Hann varð skyndi­lega ævar­eiður og dró mig eina út úr hópnum eftir möl­inni á bíla­stæð­inu þannig að ég rispað­ist og marð­ist. Hann tók mig kverka­taki og svo öskr­aði hann yfir mig sví­virð­ingar alla leið­ina heim. Þegar þangað var komið hélt nið­ur­læg­ingin áfram þar sem hann stóð yfir mér í rúm­inu mínu og öskr­aði,“ sagði Gígja í við­tali við Stundina.

„Hann tók mig kverka­taki og svo öskr­aði hann yfir mig sví­virð­ingar alla leið­ina heim“
Gígja Skúla­dóttir

Brynja segir í sam­tali við Stundina að starfs­menn Barna­vernd­ar­stofu hafi aug­ljós­lega verið búin að kynna sér málið þegar þær systur komu til fundar við þau í gær. „Þau tóku okkur mjög vel og mér fannst ljóst að þau taka þetta mjög alvar­lega. Þau eru víst að fara yfir öll gögn sem eru til hjá Barna­vernd­ar­stofu og kalla eftir þeim gögnum sem til eru ann­ars staðar í kerf­inu. Hún [Heiða Björg] sagð­ist von­góð um að Ásmundur [Einar Daðason] vilji rann­saka þetta og hún sagð­ist sjálf vilja að það yrði gert, helst að skipuð yrði óháð nefnd sem rann­sak­aði málið.“

Í við­tali við Stundina 29. jan­úar síð­ast­lið­inn sagði Heiða Björg, aðspurð um við­brögð við frá­sögnum kvenn­anna: „Við munum fagna ein­hvers konar skoðun á mál­unum, gögn­unum, ég held að það sé alltaf af hinu góða.“

„Það er sjálf­sagt að þú hafir það eftir mér aftur að stofan styðji að það fari fram skoðun á mál­inu“
Heiða Björg Pálma­dóttir
for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu

Stundin sendi fyr­ir­spurn á Heiðu Björgu þar sem hún var beðin að stað­festa að hún hefði lýst því á fund­inum í gær að hún teldi rétt að fram færi opin­ber rann­sókn á starf­semi með­ferð­ar­heim­il­is­ins í Varp­holti og Lauga­landi, í ljósi vitn­is­burðar kvenn­ana um ofbeldi og ofríki þar. Heiða Björg sagði í svari sínu að Barna­vernd­ar­sofa styddi að fram færi skoðun á mál­inu, líkt og félags- og barna­mála­ráð­herra hefði upp­lýst að væri til athug­anar að gera. 

„Á fund­inum í gær end­ur­tók ég ofan­greinda afstöðu og það er sjálf­sagt að þú hafir það eftir mér aftur að stofan styðji að það fari fram skoðun á mál­inu. Stofan treystir ráð­herra og ráðu­neyt­inu til að meta með hvaða hætti það verður gert og tekur ekki afstöðu til þess hvort skipa eigi sér­staka rann­sókn­ar­nefnd eða setja málið í annan far­veg,“ segir í svari Heiðu Bjargar.

Ráðherra tjáir sig ekki fyrr en að afloknum fundi

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, sagði í við­tali í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar að hann hefði á þeirri stundu ekki efn­is­leg gögn til að taka afstöðu til hvort skipuð yrði rann­sókn­ar­nefnd til að fara ogan í saumana á starf­sem­inni í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007, undir for­stöðu Ingjalds. Ellefu nafn­greindar konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu rit­uðu Ásmundi bréf 1. febr­úar síð­ast­lið­inn þar sem þær fóru fram á að slík rann­sókn­ar­nefnd yrði skipuð. Ásmundur á fund með full­trúum kvenn­ana á morgun og ekki er ólík­legt að mál skýrist í fram­hald­inu. Samkvæmt svari frá félags­mála­ráðu­neyt­inu við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar er málið í skoðun innan ráðu­neyt­is­ins og mun Ásmundur bíða með að tjá sig um um málið fyrr en eftir fund hans með kon­unum.

„Ég hef látið vita af því í ráðu­neyt­inu að ég vil mjög gjarnan taka þátt í rann­sókn á þessu máli en ég vil ekki tala við blaða­menn"
Bryndís Sím­on­ar­dóttir

Stundin hefur að und­an­förnu rætt við ýmsa sem komu að starf­semi með­ferð­ar­heim­il­is­ins. Hafa fæstir viljað láta hafa neitt eftir sér. Þar á meðal er Bryndís Sím­on­ar­dóttir, fjöl­skyldu­fræð­ingur sem veitti fostöðu­hjón­unum, Ingjaldi og konu hans, Áslaugu Brynjars­dóttur, hand­leiðslu einu sinni í viku frá árinu 2002 og síðan stúlk­unum og fjöl­skyldum þeirra frá árinu 2005. „Ég hef látið vita af því í ráðu­neyt­inu að ég vil mjög gjarnan taka þátt í rann­sókn á þessu máli en ég vil ekki tala við blaða­menn," sagði Bryndís.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.
Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfisbundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.
„Þetta er áframhaldandi ofbeldi“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­hald­andi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár