Vilja skýringar frá Barnaverndarstofu

Konur sem lýst hafa ofbeldi og illri með­ferð á meðan þær voru vistaðar sem börn á með­ferð­ar­heim­il­inu á Lauga­landi vilja fá skýr­ingar á hvernig stóð á því að Barna­vernd­ar­stofa brást eft­ir­lits­hlut­verki sínu.

Vilja skýringar frá Barnaverndarstofu
Fundar með kon­unum Heiða Björg Pálma­dóttir, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, fundar á morgun með kon­unum sem lýst hafa illri með­ferð á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, áður Varp­holti. Mynd: Heiða Helgadóttir

Full­trúar kvenna sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, áður Varp­holti, í Eyja­firði sem börn funda á morgun með Heiðu Björg Pálma­dóttur, for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu. Fund­ar­efnið er ofbeldi og ill með­ferð sem kon­urnar hafa lýst að þæf hafi orðið fyrir á meðan þær voru vistaðar á með­ferð­ar­heim­il­inu, af hendi Ingjalds Arn­þórs­sonar sem veitti heim­il­inu for­stöðu á árunum 1997 til 2007.

Þegar hefur hátt í tugur kvenna stigið fram opin­ber­lega og greint frá því að hafa verið beittar harð­ræði og ofbeldi þegar þær voru vistaðar í Varp­holti og á Lauga­landi. Í hópi á Facebook sem stofn­aður var af konum sem höfðu upp­lifað ofbeldi á með­ferð­ar­heim­il­inu eru nú 25 manns. Þar af eru tveir karl­menn, en fyrsta árið í rekstri heim­il­is­ins voru vistuð þar bæði stúlkur og drengir en horfið var frá því og ein­ungis stúlkur vistaðar þar frá árinu 1998 með þeim rökum að með því næð­ist meiri ró fyrir stúlk­urnar „til að byggja upp og styrkja eigin sjálfs­mynd“, að því er segir á vef Barna­vernd­ar­stofu.

Full­trúar kvenn­anna ósk­uðu eftir fund­inum með Heiðu Björgu eftir að hún lýsti því yfir í Stund­inni að hún væri boðin og búin til að hitta og ræða við þær. Á fund­inum von­ast kon­urnar eftir að fá svör við ýmsum spurn­ingum, til að mynda hversu margar til­kynn­ingar Barna­vernd­ar­stofu bár­ust um harð­ræði á með­ferð­ar­heim­il­inu. Vitað er að þegar árið 2000 barst til­kynn­ing um illa með­ferð á stúlku sem þar var vistuð og að árið 2001 upp­lýsti umboðs­maður barna um að til emb­ætt­is­ins hefðu borist nokkur fjöldi kvart­ana þess efnis.

Voru sendar í fóstur eftir dvölina

Þá vilja kon­urnar fá upp­lýs­ingar um hvers vegna sumar þeirra voru sendar á fóst­ur­heim­ili að lok­inni langri með­ferð í Varp­holti eða á Lauga­landi. Þær telja margar hverjar að engar ástæður hafi verið til þess að vista þær fjarri for­eldrum sínum eftir með­ferð­ar­vist­un­ina og hafa engar skýr­ingar fengið á þeim ákvörð­unum.

Þá vilja kon­urnar fá upp­lýs­ingar um hver verði næstu skref Barna­vernd­ar­stofu. Rekstur með­ferð­ar­heim­il­is­ins var á ábyrgð Barna­vernd­ar­stofu, sem gerði þjón­ustu­samn­ing­inn við Ingjald og átti að sjá um bæði innra og ytra eft­ir­lit með rekstr­inum. Konurnar telja aug­ljóst að Barna­vernd­ar­stofa hafi brugð­ist hlut­verki sínu.

Konurnar eiga einnig fund með Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barna­mála­ráð­herra, næst­kom­andi föstu­dag. Í fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í síð­ustu viku sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra að Ásmundur hefði upp­lýst rík­is­stjórn­ina um að hann hefði mál­efni Varp­holts og Lauga­lands til athug­unar og ákvörðun um hvort fram færi opin­ber rann­sókn myndi ráð­ast af þeirri athugun.

Stundin hefur að und­an­förnu óskað eftir að fá öll þau gögn sem til kunna að vera um með­ferð­ar­heim­ilið að Varp­holti og Lauga­landi hjá bæði Barna­vernd­ar­stofu og emb­ætti umboðs­manns barna. Þau gögn hafa enn ekki verið afhent en til­tekið er að um mikið magn sé að ræða og mikið um per­sónu­legar upp­lýs­ingar sem þurfi að afmá.

Þá óskaði Stundin eftir við­tali við Helgu Ein­ars­dóttur hjá Barna­vernd Reykja­víkur, sem fór með mál fjöl­margra þeirra stúlkna sem sendar voru úr Reykja­vík til vist­unar í Varp­holti og Lauga­landi. Helga hefur hins vegar ekki gefið færi á við­tali.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.
Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfisbundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.
„Þetta er áframhaldandi ofbeldi“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­hald­andi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár