Viðfangsefni úttektar ekki í samræmi við kynningu forsætisráðuneytisins

Í upp­hafi var full­yrt að óháða úttektin tæki til máls­með­ferðar Barna­vernd­ar­stofu, barna­vernd­ar­nefnda og ráðu­neyt­is­ins í til­teknum barna­vernd­ar­málum. Svo var hlut­verk úttekt­ar­nefnd­ar­innar þrengt án þess að greint væri frá því opin­ber­lega.

Viðfangsefni úttektar ekki í samræmi við kynningu forsætisráðuneytisins

Óháða úttektin um um barna­vernd­ar­mál sem birt var í gær fjallar aðeins um hluta þess sem for­sæt­is­ráðu­neytið boð­aði að yrði tekið til skoð­unar þegar til­kynnt var um gerð úttekt­ar­innar á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins þann 2. maí síð­ast­lið­inn. 

Í frétta­til­kynn­ingu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins kom fram að úttektin beind­ist að máls­með­ferð Barna­vernd­ar­stofu, barna­vernd­ar­nefnda og vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins í til­teknum barna­vernd­ar­málum.

Til­kynn­ingin um úttekt­ina varð til þess að vel­ferð­ar­nefnd Alþingis ákvað að gera hlé á umfjöllun sinni um emb­ætt­is­færslur Braga Guð­brands­sonar og Ásmundar Einars Daða­sonar félags­mála­ráð­herra og aðhaf­ast ekk­ert fyrr en eftir að nið­ur­stöður úttekt­ar­innar lægju fyrir.

Af sam­skiptum Stund­ar­innar við utan­rík­is­ráðu­neyti Norð­ur­land­anna má ráða að stjórn­völd þar hafi haldið, rétt eins og þing­menn á Íslandi, að úttektin beind­ist sér­stak­lega að vinnu­brögðum og emb­ætt­is­færslum Braga Guð­brands­sonar, fram­bjóð­anda Norð­ur­land­anna til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna. 

Til­kynn­ing for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins var hins vegar send út áður en gerður var verk­samn­ingur við úttekt­ar­að­ila, þau Kjartan Bjarna Björg­vins­son hér­aðs­dóm­ara og Kristínu Bene­dikts­dóttur dós­ent við laga­deild HÍ.

Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu var falið að gera þann samn­ing, en samið var um að afmarka úttekt­ina og láta hana bein­ast sér­stak­lega að máls­með­ferð vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. Stundin greindi frá þessu í frétt þann 31. maí síð­ast­lið­inn, en þá hafði vel­ferð­ar­nefnd Alþingis ekki fengið upp­lýs­ingar um að mark­mið úttekt­ar­innar hefði verið end­ur­skoðað og þrengt á skil­grein­ingu verk­efn­is­ins.

Í úttekt­inni sjálfri, sem birt­ist á stjórn­ar­ráðsvefnum í gær, kemur skýrt fram að úttektin hafi verið unnin í sam­ræmi við verk­samn­ing­inn og hafi beinst að máls­með­ferð og efn­is­legri athugun ráðu­neyt­is­ins í kjöl­far kvart­ana barna­vernd­ar­nefnda í Reykja­vík, Hafn­ar­firði og Kópavogi vegna Barna­vernd­ar­stofu og for­stjóra hennar.

„Ljóst er að umræddar kvart­anir byggð­ust á því að alvar­legar brotala­mir væru á stjórn­sýslu barna­vernd­ar­mála á Íslandi og miðar úttektin af þeim sökum að því að upp­lýsa hvernig ráðu­neytið brást við þessum kvört­unum sem æðsta yfir­vald barna­vernd­ar­mála. Þá bein­ist úttektin einnig að athugun ráðu­neyt­is­ins í kjöl­far ábend­ingar for­manns barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar, 16. nóv­em­ber 2017, um afskipti for­manns­ins af svoköll­uðu Hafn­ar­fjarð­ar­máli árið 2017 og þeirri nið­ur­stöðu sem ráðu­neytið lýsti í bréfi til for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, dags. 27. febr­úar 2018, meðal ann­ars um að hann hafi farið út fyrir verk­svið sitt og ekki sett málið í réttan far­veg.“

Í úttekt­inni er ekki tekin efn­is­leg afstaða til vinnu­bragða og emb­ætt­is­færslna Braga Guð­brands­sonar í svoköll­uðu Hafn­ar­fjarð­ar­máli að öðru leyti en því að bent er á að á grunni fyr­ir­liggj­andi gagna hafi ekki verið hægt að slá því föstu að Bragi hefði farið út fyrir verk­svið sitt með afskiptum að mál­inu né brotið gegn þagn­ar­skyldu í sam­skiptum sínum við föður máls­að­ila.

Ráðu­neytið hafi ekki upp­lýst máls­at­vik nægi­lega vel til að geta lagt dóm á emb­ætt­is­færslur Braga og hvorki rækt rann­sókn­ar­skyldu sína né and­mæla­regl­una gagn­vart Braga við með­ferð máls­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár