Vanrækti rannsóknarskylduna með því að kalla ekki eftir frekari gögnum um afskipti Braga af Hafnarfjarðarmálinu

Skjölin sem Stundin birti í lok apríl og vörp­uðu ljósi á sam­skipti Braga Guð­brands­sonar við barna­vernd­ar­starfs­mann og föð­urafa tveggja stúlkna gáfu til­efni til frek­ari könn­unar ráðu­neyt­is­ins að mati úttekt­ar­nefndar. Úttektin stað­festir meg­in­at­riðin í fréttum Stund­ar­innar um afskipti Braga af barna­vernd­ar­mál­inu og vit­neskju ráðu­neyt­is­ins.

Vanrækti rannsóknarskylduna með því að kalla ekki eftir frekari gögnum um afskipti Braga af Hafnarfjarðarmálinu

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið lét undir höfuð leggj­ast að afla gagna um sam­skipti Braga Guð­brands­sonar við barna­vernd­ar­starfs­mann og föður máls­að­ila í Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu þrátt fyrir að skjöl, sem ráðu­neytið fékk afhent ann­ars vegar 16. nóv­em­ber 2016 og hins vegar 31. jan­úar 2017, gæfu fullt til­efni til frek­ari skoð­unar. 

Um er að ræða sömu skjöl og Stundin fjall­aði um í ítar­legri frétt um afskipti Braga Guð­brands­sonar af umræddu barna­vernd­ar­máli þann 27. apríl síð­ast­lið­inn, en sam­kvæmt þeim skráðu sam­skiptum sem liggja fyrir þrýsti Bragi á barna­vernd­ar­starfs­mann, í sam­ráði við föð­urafa tveggja stúlkna, um að koma í kring umgengni stúlkn­anna við föður þeirra þrátt fyrir grun­semdir barna­vernd­ar­nefndar og með­ferð­ar­að­ila um að hann hefði brotið kyn­ferð­is­lega gegn þeim.

„Ég vissi ekk­ert hvort pabb­inn í þessu til­viki hefði gert eitt­hvað á hlut þessa barns eða ekki. Ég var ekki dóm­bær á það og hafði ekki aðgang að neinum gögnum og hafði í raun og veru engan áhuga á að vita það,“ sagði Bragi þegar Stundin fjall­aði um málið þann 27. apríl.

„Ráðuneyt­inu hefði verið í lófa lagið að óska eftir gögnum frá barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar eða Barna­vernd­ar­stofu á grund­velli 4. mgr. 5. gr. barna­vernd­ar­laga en gerði það ekki,“ segir í úttekt Kjartans Bjarna Björg­vins­sonar hér­aðs­dóm­ara og Krist­ínar Bene­dikts­dóttur dós­ents um máls­með­ferð vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á kvört­unum barna­vernd­ar­nefnda undan vinnu­brögðum Barna­vernd­ar­stofu og for­stjóra hennar. 

Málsatvik ekki nægilega upplýst til að snupra mætti Braga

Í úttekt­inni er ekki tekin efn­is­leg afstaða til vinnu­bragða Braga að öðru leyti en því að bent er á að á grunni fyr­ir­liggj­andi gagna hafi ekki verið hægt að slá því föstu að Bragi hefði farið út fyrir verk­svið sitt með afskipt­unum eða brotið gegn þagn­ar­skyldu í sam­skiptum sínum við föður máls­að­ila. Ráðu­neytið hafi ekki ekki upp­lýst máls­at­vik nægi­lega vel til að geta lagt dóm á emb­ætt­is­færslur Braga og hvorki virt rann­sókn­ar­regl­una né and­mæla­regl­una við með­ferð máls­ins. 

„Ráðuneytið fékk gögn afhent frá aðstoð­ar­manni ann­ars málsað­il­ans sem var ósáttur við aðkomu for­stjórans að málinu. Það atriði hefði eitt og sér átt að gefa ráðuneyt­inu til­efni til að kanna frekar efni gagn­anna og þá afla frek­ari gagna og skýringa hjá for­stjóranum,“ segir í úttekt­inni. „Slíkt var hins vegar ekki gert, þrátt fyrir að ekki verði annað séð en að ráðuneytið hafi byggt aðfinnslur sínar við það að for­stjórinn hafi greint föðurafa barna frá sam­skiptum barna­vernd­ar­nefndar við móður barn­anna alfarið á þessum sömu gögnum, þá einkum og sér í lagi tölvupósti for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu til föðurafans, dags. 4. janúar 2017.“

Dagállinn sem Stundin birti var eina
samtímagagnið um afskipti Braga

Fram kemur að ef for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu hefði verið gef­inn kostur á að tjá sig um málið hefði hann getað lagt fram frek­ari gögn til að varpa ljósi á það. Eina gagnið sem lýsir því í hverju afskipti for­stjór­ans af mál­inu fólust sé dagáll barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar frá 4. jan­úar 2017.

Áður hefur Stundin birt dagálinn í heild, með per­sónu­grein­an­legum og við­kvæmum upp­lýs­ingum afmáðum. Birtir úttekt­ar­nefndin sama gagn í nið­ur­stöðu sinni og stað­festir að því leyti frétta­flutn­ing Stund­ar­innar. 

„Fyrir liggur að for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu fékk ekki færi á að tjá sig um ofan­greindan dagál áður en ráðuneytið gerði athuga­semdir við störf hans. Verður að telja að með því að leggja þær upplýsingar sem þar greinir til grund­vallar nið­ur­stöðu, án þess að gefa for­stjóranum tæki­færi á að tjá sig um þær, hafi ráðuneytið hvorki gætt að rannsóknar­skyldu sinni né and­mælarétti for­stjórans,“ segir í úttekt­inni.

Hér að neðan má sjá dagál barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar sem úttekt­ar­nefndin birtir í heild auk tölvu­pósts­sam­skipta föð­urafans við Braga, með við­kvæmum upp­lýs­ingum afmáðum.

„(föður­afi [...]) hefur verið í sam­bandi við Braga vegna málsins. Bragi var búinn að fá upplýsingar frá Barnahúsi um fyrri vinnslu þar. Bragi hélt í upp­hafi símtals að stúlkurnar hefðu einnig farið í skýrslutöku/könnun­ar­við­tal í Barnahúsi 2012 en það var ekki rétt þar þá voru þær [...] og var það leiðrétt.

Bragi spurði um efni til­kynn­ing­ar­innar og spyr hvort að ástæða hafi verið að kanna málið að nýju og senda stúlkurnar aftur í Barnahús. Lesið var upp úr til­kynn­ing­unni fyrir Braga, sem barst frá list­með­ferð­ar­fræð­ingi og að það hafi verið mat starfs­manna að upplýsing­arnar sem þar kæmu fram væru þess eðlis að nauð­syn­legt væri að vísa þeim aftur í Barnahús. Bragi spyr hvort að reglu­leg umgengni hafi verið og upplýsir [X] hann um að skv. þeim upplýsingum sem [X] hefur hófst umgengni á ný í vor eða sumar og var búin að vera um ein­hvern tíma. B og C (móður og móður­amma) hafa upplýst und­ir­rit­aða um að föður­amma og afi hafi verið beðin um að bera ábyrgð á stúlkunum í umgengni. Föður­amma sagði einnig frá því í símtali að en sagði þá einnig að D (faðir stúlkn­anna) hafi stundum verið hjá dætrum sínum í stutta stund einn. Bragi bendir á að honum finnst ótrúlegt að ef mað­ur­inn sé raun­veru­lega með pedófílu að hann brjóti á dætrum sínum strax og hann fái að hitta þær. [X] seg­ist ekki þekkja það en bendir á að umgengni hafi verið um nokkurn tíma. [X] bendir einnig á að fyrsta til­kynn­ing sem barst hafi verið vegna net­notk­unar föður en inn á kynlífsspjallsíðu hafði hann hakað við það sem hann hafði áhuga á og var það m.a. áhugi á kynlífi með börnum sínum og fantasíur um að vakna með [...] (barni sínu) ofan á sér og stunda með henni kynlíf. Önnur til­kynn­ing hafi síðan borist frá lækni eftir lækn­is­skoðun og nú sú þriðja frá list­með­ferð­ar­fræð­ingi stúlkn­anna.

Bragi bendir á að Barnahús hafi ekki fengið tilvísun vegna málsins. [X] var búinn að kanna það og var tilvísun gerð 6. des. og send þann 7. des og skv. upplýsingum frá póstinum er ekki búið að sækja hana í pósthólf Barnahúss.

Bragi kemur ítrekað inn á það að það sé slæmt að móðir sé að hamla umgengni og að barna­vernd þurfi að fara var­lega í þeim efnum. [X] bendir á að sam­kvæmt leið­bein­ingum frá Heiðu, lögfr. Barna­vernd­ar­stofu, hafi [X] bent móður og lögfræð­ingi hennar að fara til sýslu­mann og óska eftir tímabund­inni breyt­ingu á umgengni á meðan málið væri til könnunar hjá barna­vernd. Það hafi verið alveg skýrt að barna­vernd hafi ekki verið að hafa bein afskipti af umgengn­inni, fyrir utan að hafa verið tilbúin að útvega eft­ir­lits­að­ila svo að umgengni gæti farið fram um jólin og þannig komið á móts við óskir föðurömmu og afa. Það hafi verið í höndum lögfræð­inga for­eldra að semja um fyr­ir­komu­lag umgengn­innar fyrir hönd sinna skjólstæð­inga og barna­vernd hafi ekki skipt sér af því.

Bragi óskar eftir því að [X] reyni að tala um fyrir móður svo að föður­amma geti fengið að hitta stúlkurnar áður en hún falli frá, en hún sé mjög veik á sjúkrahúsi og eigi jafn­vel stutt eftir. Bragi segir að einnig sé vert að benda á að ef hún virki­lega óttist um stúlkurnar í umsjá föður þá ætti hún ekki að vera með tálmun og Bragi sagð­ist telja að um tálmun sé að ræða. Hann sagði að föður­afi stúlkn­anna hafi sagt að ef þetta haldi áfram muni faðir fara í for­ræð­is­deilu og ef hún sé að tálma gæti hann fengið for­ræði. [X] bendir á að föður­for­eldrum standi alltaf til boða að hitta [börnin] á heim­ili [þeirra] og seg­ist Bragi vita það en að þá finn­ist þeim þau vera að svíkja son sinn sem þau trúa stað­fast­lega að sé sak­laus.

Rætt var stutt­lega um atburð­arásina þegar gerð var til­raun til umgengni um jólin. Bragi bendir á að þar sem eft­ir­lit hafi verið hafi móðir átt að standa við umgengn­ina. [X] tekur ekki afstöðu til þess þar sem allar ákvarð­anir varð­andi umgengn­ina hafi verið teknar af lögfræð­ingum for­eldra og eina aðkoma barna­verndar hafi verið að útvega stað og eft­ir­lits­að­ila til að umgengnin gæti gæti farið fram. Föður­amma og afi voru ekki tilbúin til að hitta stúlkurnar án föður og móðir ekki tilbúin að leyfa umgengni þegar faðir væri við­staddur. Afstaða móður hafi legið fyrir skv. tölvupóstum á milli lögfræð­inga aðila. [X] benti á að vegna veik­inda föðurömmu getur það skipt máli að [börnin] fái að hitta ömmu sína sem fyrst en það er ekki sama tímaspursmál fyrir stúlkurnar að hitta föður sinn. Vonandi ná for­eldrar sam­komu­lagi í gegnum lögfræð­inga. [X] sam­þykkir að benda móður á það að það sé mik­il­vægt fyrir stúlkurnar að hitta ömmu sína, áður en hún fellur frá. Bragi segir að barna­verndin verði að passa að hafa ekki skoðun og tekur [X] [undir það] og ítrekar að móður hafi verið leið­beint að fara til sýslu­manns og óska eftir tímabund­inni breyt­ingu þar. Bragi seg­ist telja að hún hafi ekki gert það og sé því að tálma umgengni. [Föður­afi] hafi sagt að sýslu­maður kann­ist ekki við málið. [X] seg­ist ekki vita hvort móðir hafi farið eða ekki, en henni og lögmanni hennar hafi verið leið­beint um að gera það en [X] hafi ekki fylgt því eftir frekar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár