Mjög óalgengt að forstjóri Barnaverndarstofu skipti sér af því hvort einstök börn fari í Barnahús

Bragi Guð­brands­son boð­aði til fundar um mál­efni stúlkn­anna sem hann hafði beitt sér fyrir að yrðu látnar umgang­ast föður sinn þrátt fyrir grun­semdir barna­vernd­ar­nefndar og með­ferð­ar­að­ila um kyn­ferð­is­brot.

Mjög óalgengt að forstjóri Barnaverndarstofu skipti sér af því hvort einstök börn fari í Barnahús
Boðaði til fundar um mál stúlkn­anna Bragi taldi upp­lýs­ingar list­með­ferð­ar­fræð­ings ótrú­verð­ugar. Nið­ur­staða fund­ar­ins var sú að önnur stúlkn­anna færi ekki í Barnahús en yrði áfram hjá list­með­ferð­ar­fræð­ingnum.

Mjög óal­gengt er að for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu hafi afskipti af því hvort til­tekin börn fari í við­tal í Barna­húsi eða boði til fundar um slík mál. Þetta stað­festir Ólöf Ásta Farest­veit, for­stöðu­maður Barna­húss, í sam­tali við Stundina. Fyrr­ver­andi starfs­maður Barna­húss tekur í sama streng og segir slíkt ekki hafa tíðkast í sinni starfs­tíð. 

Í skjölum sem Barna­vernd­ar­stofa afhenti vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu í fyrra vegna kvart­ana barna­vernd­ar­nefnda kemur fram að Bragi Guð­brands­son, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, hafi boðað starfs­menn Barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar til fundar um mál­efni tveggja stúlkna þann 20. jan­úar 2017, sömu stúlkna og Bragi hafði beitt sér fyrir að yrðu látnar umgang­ast föður sinn þrátt fyrir grun­semdir barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar og með­ferð­ar­að­ila um kyn­ferð­is­brot. Á fund­inum lýsti Bragi efa­semdum um trú­verð­ug­leika þeirra upp­lýs­inga sem borist höfðu frá list­með­ferð­ar­fræð­ingi sem barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar hafði sent stúlk­urnar til.  

Barna­vernd­ar­nefnd hafði farið fram á að önnur þeirra færi í við­tal í Barna­húsi vegna vís­bend­inga um kyn­ferð­is­brot af hálfu föður. Gerði lög­reglan ráð fyrir slíku við­tali og til­kynnti strax að beðið yrði eftir nið­ur­stöðum þess. Til­vís­un­ar­bréfið gleymd­ist hins vegar í póst­hólfi Barna­húss auk þess sem tölvu­póst­kerfið bil­aði á sama tíma.

Loks var ákveðið á fund­inum þann 20. jan­úar að stúlk­urnar yrðu ekki teknar í við­tal í Barnahús heldur yrðu áfram hjá list­með­ferð­ar­fræð­ingnum. Að sögn for­stöðu­manns Barna­húss var þó ekki lagt mat á trú­verð­ug­leika þeirra upp­lýs­inga sem komu fram í við­töl­unum hjá list­með­ferð­ar­fræð­ingnum. Afar erfitt sé að meta trú­verð­ug­leika slíkra upp­lýs­inga.

Áskrift hjá póstinum hafði runnið út

Stundin hafði sam­band við Ólöfu Ástu, for­stöðu­mann Barna­húss, í byrjun mán­aðar og spurði hvort fleiri til­vís­un­ar­bréf hefðu legið óhreyfð í póst­hólfi Barna­húss í kringum ára­mótin 2016 og 2017. Hún sagði að lík­lega hefði verið um tvö bréf að ræða en benti á að það væri á ábyrgð barna­vernd­ar­nefndar að fylgja málum eftir ef Barnahús brygð­ist ekki við til­vís­un­ar­bréfi.

„Barna­húsi bár­ust bréf á þessum tíma á nán­ast hverjum degi sem póst­ur­inn bar beint í hús til okkar eins og alla tíð (fyr­ir­tækja­þjón­usta). Við höfum frá upp­hafi verið með póst­hólf þar sem heim­il­is­fang BH er leyni­legt.  Mistök voru gerð hjá póst­inum en áskriftin að póst­hólf­inu rann út á þessum tíma og póst­ur­inn hætti því að koma með póst sem hafði borist í Barnahús í póst­hólfið, en samt bár­ust okkur bréf. Engin til­kynn­ing barst frá póst­inum þess efnis að áskriftin hefði runnið út,“ segir hún í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

Hún bætir því við að til­vís­un­ar­bréfið hafi verið mót­tekið eftir að Bragi ræddi við starfs­mann Barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar. „Til þess að fyr­ir­byggja að svona nokkuð gæti komið upp aftur sagði Barnahús upp póst­hólf­inu síð­ast­liðin ára­mót og allar barna­vernd­ar­nefndir senda nú á heim­il­is­fang Barna­húss,“ skrifar Ólöf. 

„Það er alltaf barna­vernd­ar­nefnd­anna að fylgja málum eftir. Ef þær t.d. heyra ekki frá Barna­húsi þá ber þeim skylda til að bregð­ast við, því þær einar vita að málið hefur verið sent þangað,“ sagði hún svo þegar Stundin ræddi við hana sím­leiðis.

„Gerist mjög sjaldan“

Eftir að til­vís­un­ar­bréfið kom í leit­irnar boð­aði Bragi Guð­brands­son til fundar um mál­efni stúlkn­anna sem fram fór 20. jan­úar 2017. Þar gerði Bragi athuga­semd við að að önnur stúlkan hefði „við­ur­kennt“, sam­kvæmt skýrslu list­með­ferð­ar­fræð­ings, að faðir hefði brotið gegn henni. Orða­lagið væri ein­kenni­legt og benti, að mati Braga, til þess að „gengið hefði verið á eftir þessum upp­lýs­ingum hjá barn­inu“.

Bragi brýndi fyrir barna­vernd­ar­starfs­mönnum að „stíga ekki inn í deilur milli for­eldra um umgengni“ og vís­aði þar vænt­an­lega til þess að barna­vernd hafði ráð­lagt móður stúlkn­anna að halda þeim í „öruggu skjóli“ meðan meint kyn­ferð­is­brot væru rann­sökuð. Þetta sam­ræm­ist þeim þrýst­ingi sem Bragi hafði áður sett á starfs­mann barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar, í sam­ráði við föð­urafa stúlkn­anna, sam­kvæmt þeim skráðu sam­skiptum sem til eru um afskipti hans af umræddu máli. 

Aðspurð hvort algengt sé að for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu boði til fundar um mál ein­stakra barna sem vísað hefur verið í Barnahús segir Ólöf Ásta svo ekki vera. „Nei, það er ekki algengt. Það ger­ist mjög sjaldan, þetta er nátt­úr­lega sitt­hvor stofn­unin,“ segir hún. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár