Þorsteinn: Jafnvel enn alvarlegra en málið sem varð síðustu ríkisstjórn að falli

Fyrr­ver­andi félags­mála­ráð­herra segir ekki hægt að halda fram­boði Braga Guð­brands­sonar til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna til streitu fyrr en málið sem Stundin fjall­aði um á föstu­dag hefur verið upp­lýst að fullu.

Þorsteinn: Jafnvel enn alvarlegra en málið sem varð síðustu ríkisstjórn að falli

Þor­steinn Víglunds­son, fyrr­ver­andi félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, segir að í ljósi þeirra upp­lýs­inga sem fram komu í for­síðu­um­fjöllun Stund­ar­innar á föstu­dag sé brýnt að nið­ur­stöður vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins í kvört­un­ar­málum barna­vernd­ar­nefnda gegn Barna­vernd­ar­stofu verði birtar opin­ber­lega sem allra fyrst. Ekki sé hægt að halda fram­boði Braga Guð­brands­sonar til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna til streitu fyrr en málið hafi verið upp­lýst að fullu. 

Stundin sló á þráð­inn til Þor­steins á föstu­dag­inn, en Þor­steinn var félags- og jafn­rétt­is­ráð­herra þegar kvart­anir barna­vernd­ar­nefnda komu inn á borð vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins í fyrra. 

„Þetta kom þangað inn um miðjan nóv­em­ber, hálfum mán­uði áður en ég fór úr ráðu­neyt­inu. Ég setti af stað form­lega rann­sókn, enda taldi ég málið svo alvar­legt að rann­saka þyrfti það ofan í kjöl­inn. Það sem þið [Stundin] fjallið um varðar eina af þeim kvört­unum en í nóv­em­ber var málið ekki komið fram af þeirri nákvæmni sem birt­ist hjá ykkur. Það var hins vegar alveg ljóst að þarna var full ástæða til að fara mjög vand­lega, og með form­legum hætti, yfir málið af hálfu ráðu­neyt­is­ins.“

Þor­steinn seg­ist ekki hafa haft spurnir af vinnu ráðu­neyt­is­ins eftir að hann hvarf úr ráð­herra­emb­ætti. Hins vegar liggi fyrir að málið var í form­legum rann­sókn­ar­far­vegi innan ráðu­neyt­is­ins við stjórn­ar­skiptin. 

„Þessar upp­lýs­ingar lágu að hluta til fyrir í ráðu­neyt­inu þá, og vænt­an­lega var fyllt upp í það síðan eftir því sem rann­sókn­inni vatt fram. Ég held að það sé eðli­leg krafa að ráðu­neytið birti nið­ur­stöður þess­arar rann­sóknar. Auðvitað verður að gæta að per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­miðum, en þarna er um að ræða form­legar kvart­anir af hálfu þriggja barna­vernd­ar­nefnda. Ég trúi ekki öðru en að ráðu­neytið hafi lokið rann­sókn­inni og það er full­kom­lega eðli­leg krafa að nið­ur­stöður þeirrar rann­sóknar verði birtar,“ segir Þor­steinn. 

Hann bendir á að um er að ræða opin­bera stofnun og for­stjóra hennar, afskipti sem gerðar hafi verið alvar­legar athuga­semdir við hvort séu eðli­leg og innan ramma hans starfs­skyldna. „Í svona alvar­legum málum hvílir mjög rík skylda á barna­vernd­ar­yf­ir­völdum að tryggja að hags­munir barna séu í fyrsta sæti,“ segir Þor­steinn.

„Í svona alvar­legum málum hvílir mjög rík
skylda á barna­vernd­ar­yf­ir­völdum að tryggja
að hags­munir barna séu í fyrsta sæti“

„Ég tel mjög eðli­legt, miðað við þær upp­lýs­ingar sem þarna hafa komið fram, að nið­ur­stöður þess­arar rann­sóknar verði birtar og eðli­legt af hálfu vel­ferð­ar­nefndar að gera kröfu um að þess­ari leynd verði aflétt og nið­ur­stöð­urnar komi þá skýrt fram.“

Eins og Stundin greindi frá á föstu­dag hefur Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra búið yfir ítar­legum upp­lýs­ingum um afskipti Braga Guð­brands­sonar af barna­vernd­ar­mál­inu í Hafn­ar­firði frá 31. jan­úar 2018. Þann 26. febr­úar sagði Ásmundur Einar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi að Bragi hefði ekki brotið af sér með neinum hætti og væri fram­bæri­legur kandídat til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna. Á fundi vel­ferð­ar­nefndar tveimur dögum síðar lét Ásmundur ósagt að Bragi Guð­brands­son hefði beitt barna­vernd­ar­starfs­mann þrýst­ingi á sama tíma og hann átti ítrekuð sam­skipti við föður máls­að­ila og til­vís­un­ar­bréf vegna sama máls gleymd­ist í póst­hólfi Barna­húss sem heyrði óbeint undir Braga. Þá lagði ráð­herra engin gögn fyrir nefnd­ina þótt hann hefði kallað eftir því að nefndin færi ræki­lega yfir málið. 

„Sé það raunin að hann hafi ekki greint nefnd­inni frá mál­inu með réttum hætti og haldið upp­lýs­ingum vís­vit­andi leyndum, þá er það gríð­ar­lega alvar­legt. Sér í lagi í ljósi yfir­lýs­inga sinna í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma tveimur dögum fyrr um að það væri mjög mik­il­vægt að nefndin færi mjög ítar­lega yfir þetta mál,“ segir Þor­steinn. „Hann verður að standa skil á því gagn­vart þing­inu hver hin efn­is­lega nið­ur­staða ráðu­neyt­is­ins var og hverju það sætir að hann hafi ekki greint þing­mönnum frá þessu á þessum tíma­punkti.“

Þor­steinn segir mik­il­vægt að menn geri hreint fyrir sínum dyrum áður en fram­boðs­frestur til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna rennur út. „Það hlýtur að vera aug­ljós krafa að það sé eng­inn slíkur skuggi hang­andi yfir fram­boði Braga til þessa mik­il­væga emb­ættis, og þá er þeim mun mik­il­væg­ara að ráðu­neytið birti nið­ur­stöður sínar í þess­ari rann­sókn svo menn geti lagst yfir þá efn­is­legu nið­ur­stöðu og þann rök­stuðn­ing sem liggur að baki,“ segir hann.

„Hann verður að standa skil á því
gagn­vart þing­inu hver hin efn­is­lega
nið­ur­staða ráðu­neyt­is­ins var“

„Ráðu­neytið hlýtur að hafa farið mjög vand­lega efn­is­lega yfir þær ásak­anir sem þarna eru bornar fram og tekið afstöðu til þeirra. Ég tel liggja í augum uppi að ekki er hægt að halda þessu fram­boði til streitu án þess að málið sé upp­lýst að fullu og það sé þá skýrt að þarna hafi allt verið með eðli­legum hætti – sem ég held að megi alla­vega setja veru­legar efa­semdir við, svo ekki sé sterkar að orði kveðið. 

Aðspurður hvort hann telji þetta mál eiga eitt­hvað sam­merkt með því máli sem varð síð­ustu rík­is­stjórn að falli segir Þor­steinn:

„Mér finnst þessi mál vera fylli­lega sam­bæri­leg og þetta mál jafn­vel alvar­legra ef raunin er sú að ráð­herra leyndi þingið þessum upp­lýs­ingum vís­vit­andi, og það þrátt fyrir að hafa mætt fyrir vel­ferð­ar­nefnd sér­stak­lega til að gera grein fyrir mál­inu. Þeirri stöðu var aldrei til að dreifa í mál­inu sem kom upp í fyrra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár