Ráðuneytið vill leynd um mál Braga

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið segir að bréf sem fjall­aði um fyr­ir­hug­aðar aðgerðir til að efla traust á sviði barna­vernd­ar­mála hafi verið „form­leg nið­ur­staða“ ráðu­neyt­is­ins í kvört­un­ar­málum vegna Barn­ar­vernd­ar­stofu.

Ráðuneytið vill leynd um mál Braga
Kandídat Íslands Rík­is­stjórn Íslands vill að Bragi Guð­brands­son fái sæti í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna en vill ekki veita upp­lýs­ingar um hvernig hann var hreins­aður af ásök­unum barna­vernd­ar­nefnda.

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið vill ekki veita neinar upp­lýs­ingar um nið­ur­stöður í málum er varða umkvart­anir þriggja barna­vernd­ar­nefnda vegna sam­skipta við Barna­vernd­ar­stofu og Braga Guð­brands­son for­stjóra hennar.

Þetta er ljóst af svörum ráðu­neyt­is­ins við upp­lýs­inga­beiðni Stund­ar­innar frá því í febr­úar. Eins og Stundin greindi frá þann 9. des­em­ber síð­ast­lið­inn hefur Bragi Guð­brands­son verið gagn­rýndur fyrir óeðli­leg inn­grip í ein­stök barna­vernd­ar­mál og sagður fara út fyrir vald­heim­ildir sínar.

Ráðu­neytið telur Braga ekki hafa ekki gerst sekan um brot í starfi en vill ekki útskýra opin­ber­lega hvernig kom­ist var að þeirri nið­ur­stöðu eða hvað var hæft og hvað ekki í athuga­semdum þriggja barna­vernd­ar­nefnda sem báru hann þungum sökum.

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur ákvað þann 23. febr­úar síð­ast­lið­inn að sækj­ast eftir sæti fyrir Íslands hönd í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna og útnefna Braga Guð­brands­son sem full­trúa Íslands.

Sama dag sendi ráðu­neytið þremur barna­vernd­ar­nefndum bréf og full­yrti á vef sínum að þar væri greint frá „nið­ur­stöðum“ vegna umkvart­ana nefnd­anna er vörð­uðu sam­skipti og starfs­hætti Braga. 

Í bréf­unum var þó ekki fjallað um neinar nið­ur­stöður í málum heldur ein­göngu um við­brögð ráðu­neyt­is­ins og fyr­ir­hug­aðar aðgerðir til að end­ur­heimta traust og trúnað á sviði barna­vernd­ar­mála. Stundin óskaði eftir því að fá afhentar raun­veru­legar 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár