Forstjórinn „alveg rólegur“ yfir fjölda kvartana undan honum

Barna­vernd á Íslandi logar í átökum. Barna­vernd­ar­nefndir kvarta undan dóna­legum sam­skiptum og óeðli­legum inn­gripum Braga Guð­brands­sonar, for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu. Fyrr­ver­andi for­stöðu­kona Barna­húss seg­ist aldrei hafa upp­lifað annað eins og sam­starfið við Braga.

Forstjórinn „alveg rólegur“ yfir fjölda kvartana undan honum
Bragi Guð­brands­son Er rólegur yfir umfangs­miklum ávirð­ingum starfs­fólks í barna­vernd gegn honum. Mynd: DV / Sigtryggur Ari

Starfs­fólk Barna­vernd­ar­nefndar Reykja­víkur hefur árum saman varist beinum afskiptum Braga Guð­brands­sonar, for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, af ein­stökum barna­vernd­ar­málum, þar sem Bragi grípur inn í mál, kippir ein­stökum börnum fram fyrir röð­ina í með­ferð­ar­úr­ræðum án sam­ráðs við barna­vernd, úrskurðar um við­kvæm mál­efni án full­nægj­andi upp­lýs­inga og fer harka­lega gegn barna­vernd­ar­nefnd og starfs­mönnum hennar. Barna­vernd­ar­nefnd Reykja­víkur og fleiri barna­vernd­ar­nefndir á land­inu hafa lagt fram kvart­anir til félags­mála­ráðu­neyt­is­ins og bíður ráðu­neytið svara Braga vegna umfangs­mik­illa kvart­ana. 

„Ég er alveg rólegur yfir þessu,“ segir Bragi. „Ég held að gögnin eigi eftir að leiða í ljós að þetta hafi verið stormur í vatns­glasi.“ 

Að miklu leyti snúa kvart­an­irnar að sam­skipta­háttum Braga. Fyrr­ver­andi for­stöðu­kona Barna­húss, Vigdís Erlends­dóttir, seg­ist í sam­tali við Stundina hafa leitað til stétt­ar­fé­lags og félags­mála­ráðu­neyt­is­ins vegna sam­skipta­hátta og trufl­ana af völdum for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu. Hún hafi „hvorki fyrr né síðar“ upp­lifað sam­starf eins og þetta. „Það gekk á með ein­kenni­legum sam­skiptum,“ segir hún. Hennar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár