Telja að Ásmundur Einar verði að segja af sér Formaður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis og full­trúi Mið­flokks­ins telja báðar að Ásmundi Einari Daðasyni sé ekki lengur sætt í ráð­herra­stóli í ljósi þess að hann hafi leynt upp­lýs­ingum fyrir nefnd­inni. Mynd: Velferðarráðuneyti

Telja að Ásmundur verði að segja af sér: „Hann laug bara að okkur“

Halldóra Mogensen, for­maður vel­ferð­ar­nefndar, segir að Ásmundi Einari Daðasyni félags­mála­ráð­herra sé ekki sætt á ráð­herra­stóli. „Hann laug bara að okkur,“ segir Anna Kolbrún Árna­dóttir full­trúi Mið­flokks­ins í nefnd­inni.

Formaður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis hefur óskað eftir því að Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra mæti á opinn fund nefnd­ar­innar á mánu­dag­inn til þess að ræða efni fréttar Stund­ar­innar frá því í morgun.

Í frétt­inni kemur fram að Ásmundur Einar hafi haldið upp­lýs­ingum um afskipti Braga Guð­brands­sonar, þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, af barna­vernd­ar­máli leyndum fyrir vel­ferð­ar­nefnd Alþingis.

Formaður nefnd­ar­innar og í það minnsta einn nefnd­ar­manna telja að Ásmundi Einari sé ekki sætt í stóli ráð­herra í ljósi þeirra upp­lýs­inga sem fram koma í blað­inu; hann verði að segja af sér.

Vel­ferð­ar­nefnd Alþingis fund­aði í morgun og var frétt Stund­ar­innar rædd þar og sú ósk for­manns nefnd­ar­innar, Halldóru Mogensen þing­manns Pírata, að Ásmundur Einar myndi mæta á opin fund næst­kom­andi mánu­dag til að svara fyrir málið.

Halldóra óskaði eftir því þegar í nótt, eftir lestur Stund­ar­innar, en enn hafa ekki borist svör við því hvort ráð­herra mæti.

Halldóra sagði í sam­tali við Stundina að ágætis sam­staða hefði verið um að ráð­herra þyrfti að koma fyrir nefnd­ina og svara fyrir efni fréttar Stund­ar­innar.

„Aðallega snýr það að þeim ósann­indum sem hann virð­ist hafa farið fram með fyrir nefnd­inni og á þingi en eins þá ákvörðun að bjóða Braga fram sem kandi­dat Íslands, og raunar Norð­ur­land­anna, sem full­trúa í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna. Það hlýtur að þurfa að ræða það í sam­heng­inu.

Halldóra segir að ef frétt Stund­ar­innar sé rétt, þ.e. að ráðu­neyti Ásmundar hafi búið yfir umræddum gögnum en leynt Alþingi þeim, sé Ásmundi Einari ekki sætt áfram á ráð­herra­stóli.

„Það eitt og sér að ráð­herra hafi sagt okkur ósatt og hann hafi leynt upp­lýs­ingum frá vel­ferð­ar­nefnd Alþingis, sem er eft­ir­lits­að­ili með störfum ráð­herra, og að hann hafi leynt upp­lýs­ingum frá þing­inu og í raun og veru sagt því ósatt, það finnst mér málið svo alvar­legt að hann verður að segja af sér ráð­herra­dómi.“

Segir að meirihlutinn hafi staðið í vegi
fyrir því að upplýsingar kæmu fram

Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­maður Mið­flokks­ins, á einnig sæti í vel­ferð­ar­nefnd og sat fund­inn í morgun. Hún segir málið alvar­legt í ljósi fram­göngu Ásmundar Einars á fundi nefnd­ar­innar 28. febr­úar síð­ast­lið­inn en þar lét Ásmundur Einar hjá líða að upp­lýsa um þær upp­lýs­ingar sem ráðu­neyt­inu voru afhentar, um málið sem Stundin geinir frá í dag. Umfjöllun Stund­ar­innar byggir á upp­lýs­ingum sem aðstoð­ar­maður Ásmundar Einars, skrif­stofu­stjóri vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins og lög­fræð­ingur fengu afhentar þann 31. jan­úar síð­ast­lið­inn. 

„Hann laug bara að okkur, það er bara þannig. Við eigum að heita aðili sem á að veita ráð­herra aðhald en samt sem áður var ekki auð­velt að fá fram þessar upp­lýs­ingar sem Stundin styðst við. Það voru aðilar innan vel­ferð­ar­nefndar, úr rík­is­stjórn­ar­meiri­hlut­anum, sem stóðu eins mikið í vegi fyrir því og þeir gátu, en það hafð­ist.“ Anna Kolbrún vísar þarna til þess að þing­mönnum var greint frá því 24. apríl að þeir gætu skoðað gögn er lúta að nið­ur­stöðum vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins í málum barna­vernd­ar­nefnda sem höfðu kvartað undan afskiptum Braga af ein­stökum málum og óeðli­legum sam­skiptum hans við barna­vernd­ar­starfs­menn í skjala­geymslu Alþingis. Þó var tekið fram að strangur trún­aður ríkti yfir gögnum og óheim­ilt með öllu væri að taka af þeim afrit.

Anna Kolbrún segir Ásmundi Einari ekki sætt í stóli ráð­herra í ljósi þess­ara upp­lýs­inga. „Nei, og sér­stak­lega ekki í ljósi þess að hann hefur lýst því yfir að mál­efni barna séu hans for­gangs­mál. Ef svo er á hann að segja satt í þessu máli, gefa allar upp­lýs­ingar og vinna eftir því verk­lagi sem hann boðar. Það hefur hann ekki gert til þessa.“

Vilja frekari upplýsingar

Stundin heyrði líka í Andrési Inga Jónssyni, þing­manni Vinstri grænna, og Guðjóni S. Brjáns­syni, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar en báðir sitja þeir í vel­ferð­ar­nefnd. Þeir sögð­ust ekki hafa kynnt sér málið fylli­lega utan þess sem fram kom á fundi nefnd­ar­innar. Andrés Ingi taldi sig því ekki geta tjáð sig um málið að öðru leyti en því að hann væri fylgj­andi því að Ásmundur Einar mætti á opinn fund nefnd­ar­innar í næstu viku. Guðjón tók í sama streng og vildi fá frek­ari svör frá ráð­herra. Halla Signý Krist­jáns­dóttir, sam­flokks­kona Ásmundar Einars og full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins í nefnd­inni, sat ekki fund­inn í morgun og sagð­ist því ekki geta tjáð sig þegar Stundin leit­aði eftir því

Segir ávirðingarnar alvarlegar

Stundin hafði þá sam­band við Ólaf Þór Gunn­ars­son, þing­mann Vinstri grænna og 1. Vara­for­mann vel­ferð­ar­nefndar, og spurði hann hvort hann teldi eðli­legt að Ásmundur Einar segði af sér í ljósi þess­ara upp­lýs­inga. „Ég bara er ekki til­bú­inn til að svara því afdrátt­ar­laust fyrr en ég er búinn að heyra afstöðu ráð­herr­ans, einkum þar sem ég sat ekki sjálfur umræddan fund 28. Febrúar,“ sagði Ólafur.

Ólafur Þór Gunn­ars­sonÞing­maður VG og 1. vara­for­maður vel­ferð­ar­nefndar segir ávirð­ing­arnar á hendur Ásmundi Einari alvar­legar.

Þegar blaða­maður gekk harðar að Ólafi og spurði hvort eðli­legt væri að ráð­herra, hvaða mála­flokks sem væri, sæti áfram yrði hann upp­vís að því að leyna þing­nefnd upp­lýs­ingum svar­aði Ólafur því til að vissu­lega væri það mjög alvar­legt ef slíkt gerð­ist. „Enda var nefndin ein­huga um að fá hann á sinn fund og ég held að það sé mjög mik­il­vægt að ráð­herra fái tæki­færi til að svara þessu frammi fyrir nefnd­inni, með hvaða hætti þessi gögn voru til í ráðu­neyt­inu og hvort honum hafi raun­veru­lega verið kunn­ugt um þau eða ekki. Ég veit það ekki eins og er og treysti mér því ekki til að svara. Eins og þú segir, þetta eru mjög alvar­legar ávirð­ingar sem þarna koma fram og því mjög mik­il­vægt að ráð­herra fái að svara þeim frammi fyrir nefnd­inni.“

Stundin hafði sam­band við Ásmund Einar Daðason og aðstoð­ar­mann hans og bauð ráð­herra við­tal vegna máls­ins. Greindi Stundin frá því að í vinnslu væri frétt um Braga Guð­brands­son og barna­vernd­ar­mál. Ásmundur hringdi frá Strass­borg, sagð­ist hugs­an­lega hafa tíma fyrir stutt síma­við­tal en vildi þá vita hverjar spurn­ing­arnar væru. Hann bað um að upp­lýs­inga­full­trúa ráðu­neyt­is­ins yrðu sendar spurn­ing­arnar áður en við­talið færi fram. Stundin féllst ekki á slíka við­talstil­högun en bauð ráðu­neyt­inu að koma hverjum þeim upp­lýs­ingum eða athuga­semdum á fram­færi sem vilji stæði til. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár