Þingmenn fá að sjá gögn um athugun ráðuneytisins í „leyniherberginu“

Strangur trún­aður um nið­ur­stöður vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins í kvört­un­ar­málum barna­vernd­ar­nefnda.

Þingmenn fá að sjá gögn um athugun ráðuneytisins í „leyniherberginu“

Þingmenn vel­ferð­ar­nefndar fá að skoða gögn um nið­ur­stöður vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins í málum er varða umkvart­anir barna­vernd­ar­nefnda vegna sam­skipta við Barna­vernd­ar­stofu í skjala­geymslu á nefnda­sviði Alþingis. Þeim er óheim­ilt að afrita gögnin með neinum hætti og eru bundnir ströngum trún­aði. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var nefnd­inni til­kynnt um þetta á þriðju­dag en um er að ræða sömu gögn og Stundin hefur óskað eftir vegna ítar­legrar umfjöll­unar sem birt­ist í blað­inu sem kemur út á morgun. 

Þann 16. mars síð­ast­lið­inn synj­aði vel­ferð­ar­ráðu­neytið upp­lýs­inga­beiðni Stund­ar­innar er laut að nið­ur­stöðum ráðu­neyt­is­ins í málum barna­vernd­ar­nefnda er kvartað höfðu undan afskiptum Braga Guð­brands­sonar hjá Barna­vernd­ar­stofu af ein­stökum málum. 

Stundin kærði synjun ráðu­neyt­is­ins til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál þar sem málið er nú til með­ferðar. Í umsögn ráðu­neyt­is­ins til úrskurð­ar­nefndar vegna kærunnar er meðal ann­ars vísað til 1. mgr. 7. gr. upp­lýs­inga­laga um að réttur almenn­ings til aðgangs að gögnum um mál­efni starfs­manna hins opin­bera taki ekki til „gagna í málum sem varða umsóknir um starf, fram­gang í starfi eða starfs­sam­bandið að öðru leyti“. Fram kemur að það sé í ljósi þessa ákvæðis sem ráðu­neytið telji sér ekki skylt að afhenda gögn um nið­ur­stöður ráðu­neyt­is­ins með per­sónu­grein­an­legum upp­lýs­ingum afmáðum. Af þessu má skilja að til­gang­ur­inn sé sá að vernda frið­helgi Braga Guð­brands­sonar sem opin­bers starfs­manns, en sem kunn­ugt er hefur rík­is­stjórn Íslands til­nefnt hann sem fram­bjóð­anda Íslands til barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Í umræðum um umkvart­anir barna­vernd­ar­nefnd­anna hefur Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra full­yrt að for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu hafi ekki gerst sekur um brot í starfi. Ráðu­neytið neitar hins vegar að afhenda óper­sónu­grein­an­leg gögn um hvernig kom­ist var að þeirri nið­ur­stöðu; hvað var hæft og hvað ekki í athuga­semdum þeirra þriggja barna­vernd­ar­nefnda sem báru for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu þungum sökum. 

Hingað til hefur ráðu­neytið ekki sýnt Alþingi gögnin en nú hefur þing­mönnum verið gert kleift að skoða upp­lýs­ing­arnar í því sem stundum hefur verið kallað „leyni­her­bergið“ á Alþingi í opin­berri umræðu og í fjöl­miðlum. Óskaði vel­ferð­ar­nefnd gögn­unum í lok mars en sam­kvæmt þing­skap­ar­lögum ber stjórn­valdi að verða við upp­lýs­inga­beiðni nefndar innan sjö daga frá mót­töku beiðn­innar. Gögnin bár­ust fyrst nú í vik­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár