Félag tengt Jóni Ásgeiri stefndi Birni Inga út af ábyrgð upp á 21 milljón

Björn Ingi Hrafns­son gekkst í per­sónu­lega ábyrgð á hluta­fjár­kaupum í fata­merk­inu JÖR. Hlutaféð var aldrei lagt fram og stefndi félag í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur og Birgis Bielt­vedts honum því þegar lánið var flokkað sem „mjög alvar­leg van­skil“. Björn Ingi segir að búið sé að greiða skuld­ina að stóru leyti.

Félag tengt Jóni Ásgeiri stefndi Birni Inga út af ábyrgð upp á 21 milljón
Áralöng við­skipti við Jón Ásgeir Björn Ingi og Jón Ásgeir Jóhann­es­son hafa tengst ýmsum böndum í við­skiptum á liðnum árum, meðal ann­ars í gegnum sjón­varps­þátt­inn Eyjuna sem Björn Ingi var með á Stöð 2 og einnig fata­merkið JÖR.

Birni Inga Hrafns­syni fjár­festi, fyrr­ver­andi eig­anda Eyjunnar, Pressunnar, DV og fleiri fjöl­miðla, var stefnt í nóv­em­ber í fyrra út af rúm­lega 21 millj­ónar króna skuld við félagið Tailor Holding ehf. Þetta félag er í jafnri eigu félags Ingi­bjargar Pálma­dóttur, eig­in­konu Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar, og félags í eigu fjár­fest­is­ins Birgis Bieltsvelts og eig­in­konu hans, Eyglóar Bjarkar Kjart­ans­dóttur. Félag Ingi­bjargar sem á Tailor Holding heitir Apogee ehf. og er Jón Ásgeir pró­kúru­hafi félags­ins ásamt Ingi­björgu. End­an­legur eig­andi Apogee ehf. Er félag í Lúx­em­borg sem heitir Moon Capital S.Á.R.L. En það hefur oftsinni verið í fréttum út af eign­ar­haldi á fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu 365. 

Tailor Holding ehf. er svo stýrt af starfs­manni Jóns Ásgeirs sem heitir Jón Skafta­son en hann hefur verið hægri hönd fjár­fest­is­ins um nokk­urra ára skeið og meðal ann­ars komið að aflands­við­skiptum þeirra hjóna í gegnum félagið Guru Invest sem Stundin greindi frá úr Panama­skjöl­unum.  Jón er sonur Krist­ínar Þor­steins­dóttur, fyrr­ver­andi starfs­manns á sam­skipta­sviði Baugs og núver­andi rit­stjóra Frétta­blaðs­ins sem er í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur.  

Vanskil upp á 21 milljónBjörn Ingi var í per­sónu­legri ábyrgð fyrir hlutafé í fata­merk­inu JÖR sem hann fjár­festi í ásamt félagi í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur, eig­in­konu Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar.

„Mjög alvarleg vanskil“

Tailor Holding ehf. átti meiri­hluta, 51 pró­sent í fata­merk­inu JÖR en það var varð gjald­þrota í árs­byrjum 2017. Björn Ingi fjár­festi einnig í JÖR, sam­kvæmt fréttum, ásamt eig­in­konu sinni Kolfinnu Von Arn­ar­dóttur. Bæði Ingi­björg og Jón Ásgeir sem og Björn Ingi fjár­festu því í JÖR. JÖR  varð gjald­þrota i árs­byrjun í fyrra.

Í árs­reikn­ingi Tailor Holding ehf. fyrir árið 2016 kemur fram að stærsta eign félags­ins það ár var samn­ings­krafa upp á 17 millj­ónir króna. Einnig var lán til tengdra aðila upp á tæpar 12 millj­ónir króna. Þessar tvær kröfur mynd­uðu nær allar eignir Tailor Holding ehf. En eign­ar­hlut­ur­inn í JÖR ehf. hafði þá verið færður niður úr 25 millj­ónum króna í tæp­lega 700 þús­und krónur í aðdrag­anda gjald­þrots fata­merk­is­ins.

Ekki virð­ist hafa verið greitt af þessu láni og í nóv­em­ber í fyrra hafði krafan leitt „mjög alvar­legra van­skila“ að hálfu Björns Inga og stefndi Tailor Holding ehf. honum sam­kvæmt yfir­liti yfir van­skil Björns Inga sem Stundin hefur undir höndum.  

„Það er búið að greiða stóran hlut af þessu en ekki allt“ 

Björn Ingi: Búið að greiða skuldina að hluta

Björn Ingi segir að ástæða stefn­unnar sé per­sónu­leg ábyrgð sem hann gekkst í þegar félag eig­in­konu hans keypti hlut í JÖR í gegnum eign­ar­halds­fé­lag. „Þetta er per­sónu­leg ábyrgð. Konan mín keypti hlut í JÖR og þetta er per­sónu­leg ábyrgð mín út af því.“ 

Björn Ingi segir að búið sé að greiða stóran hluta af skuld­inni. „Það er búið að greiða stóran hlut af þessu en ekki allt,“ segir Björn Ingi. Hann segir að málið sé ekki lengur fyrir dóm­stólum og að unnið sé að því að ljúka því.

Margar fréttir hafa verið sagðar um fjár­málaum­svif Björns Inga síð­ast­liðna mán­uði eftir harðar deilur um eign­ar­hald á fjöl­miðla­sam­steyp­unni Press­unni og gjald­þrot félags­ins eftir að helstu eignir þess voru seldar út úr henni til nýrra hlut­hafa. Deil­urnar hafið staðið á milli Björns Inga og Róberts Wessmann. Óljóst er hver fjár­magn­aði kaupin á fjöl­miðlum Pressunnar út úr félag­inu og til nýs félags, Frjálsrar fjöl­miðl­unar ehf. Þetta JÖR-mál og stefnan út af per­sónu­legri ábyrgð Björns Inga er því bara eitt af mörgum málum sem tengj­ast stór­felldum fjár­fest­ingum hans og tengdra aðila í fyr­ir­tækjum á Íslandi á liðnum árum.  

Viðskipti með sjónvarpsþátt

Leiðir Björns Inga Hrafns­sonar og Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar hafa legið nokkrum sinnum saman á síð­ustu árum. Björn Ingi var meðal ann­ars ráð­inn sem við­skipta­rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, frí­blaðs fjöl­miðla­fyr­ir­tækis Jóns Ásgeirs 365, árið 2007 eftir að hann hafði hætt í stjórn­málum.

Árið 2014 gerði Björn Ingi samn­ing við 365 um að vinna viku­legan þátt fyrir Stöð 2 sem kall­ast Eyjan, líkt og sam­nefndur fjöl­mið­ill sem þá var í eigu Björns Inga. Stundin greindi frá því í apríl 2015 að Björn Ingi, eða fyr­ir­tæki hans, fengi 2 millj­ónir á mán­uði fyrir þátt­inn og að samn­ing­ur­inn í heild sinni væri því upp á 70 til 80 millj­ónir króna. Samkvæmt frétt Stund­ar­innar á þeim tíma var samn­ings­gerðin við Björn Ingi fyrst og fremst áhuga­mál Jóns Ásgeirs sjálfs og olli samn­ing­ur­inn við hann deilum innan 365 „Þetta var fyrst og fremst áhuga­mál Jóns Ásgeirs,“ sagði heim­ild­ar­maður blaðs­ins þá.  

Stundin reyndi að ná tali af Jóni Skafta­syni og Birgi Bielt­vedt en án árang­urs. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár