Uppskriftir mannfræðingsins

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir mann­fræð­ingur gerð­ist græn­metis­neyt­andi fyrir örfáum árum og gefur hér upp­skriftir að góðum og hollum réttum. „Það var ekki fyrr en rúmum tveimur árum síðar sem ég tók skrefið að fullu og gerð­ist vegan (e. græn­keri) og sneiði ég nú hjá öllum dýra­af­urðum. Þannig forð­ast ég hag­nýt­ingu gagn­vart dýrum.“

Uppskriftir mannfræðingsins

Pasta ríka mannsins

Ég á í nokk­urs konar ástar/hat­urs-sam­bandi við pasta þar sem meira hefur verið um hatur. Ég ólst upp hjá ein­stæðri móður sem var í tveimur störfum og jafn­vel þótt pen­ing­ur­inn hafi aðeins farið í helstu nauð­synjar dugði hann aldrei út mán­uð­inn. Pasta með pastasósu úr nið­ur­suðu­dós var því oft í mat­inn og ég fékk algjört ógeð. Nú er ég hægt og rólega farin að læra að pasta getur verið bragð­gott ef maður hefur efni á því að setja eitt­hvað meira út í það en Hunts-pastasósu. Þessi upp­skrift heitir því „pasta ríka manns­ins,“ þar sem inni­halds­efnin eru fleiri en tvö. Þessi rjóma­kennda upp­skrift með græn­meti þykir mér vera afar góð.

200 g pasta

2 fernur Oatly jurta-mat­reiðsl­urjómi

3 saxaðir hvít­lauks­geirar

Hálfur græn­metisten­ingur

Nokkrir sveppir

5 msk. nær­ing­ar­ger (e. nutritional yeast)

Sriracha Mayo Sauce, eftir smekk

Klípa sjáv­ar­salt

Klípa pipar

Hand­fylli spínat

Hálf, nið­ur­skorin paprika …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár