Uppskrift

Upp­skrift­irnar sem geta ært heima­kokk­inn

Flestir heima­kokkar þekkja þá til­finn­ingu að klúðra upp­skriftum þar sem hafa þarf eitt eða fleiri tækni­leg atriði í huga. Bearna­ise-sósa og majo­nes eru kannski þekkt­ustu dæmin um slíkar upp­skriftir sem flestir hafa lík­lega klúðrað ein­hvern tím­ann. Heim­ildin fékk Nönnu Rögn­vald­ar­dóttur og Hrefnu Sætran til að deila upp­skriftum sem geta reynt á færni og þol­in­mæði heima­kokks­ins.

Myndband9 mín. lestur

Uppskrift

Nota­leg­heit og sam­vera á aðvent­unni

Steinunn Gunn­ars­dóttir og syst­urnar Margrét Sigrún og Kristín Ragna Hösk­ulds­dætur eru fag­ur­kerar og sæl­kerar. Þær koma úr sam­held­inni fjöl­skyldu að vestan og finnst gaman að njóta sam­veru­stunda á aðvent­unni með sínum nán­ustu. Þær halda fast í hefðir varð­andi jóla­mat og bakstur á aðventu og jólum og sett­ust niður með blaða­konu í nota­legt jóla­spjall og deildu upp­skriftum með les­endum.

9 mín. lestur

Uppskrift

Lífsins tré í kaffi og súkkulaði

Matur og nor­ræn goða­fræði hafa lengi verið ástríða Oddnýjar Cöru Edwards og hefur hún síð­ast­liðin ár rann­sakað og kynnt sér heil­næma eig­in­leika asks­ins sem í goða­fræð­inni er kall­aður lífs­ins tré. Í raun má nýta alla hluta trés­ins til mat­ar­gerðar og Oddný þróar nú vöru­línu af kaffi, te, súkkulaði og eins konar áka­víti þar sem ask­ur­inn er not­aður sem íblöndu­an­ar­efni.

8 mín. lestur

Uppskrift

Litlar mar­sípantertur með smjör­kremi og kon­íaki í jóla­gjafir

Sigríður Björk Braga­dóttir, mat­reiðslu­maður og fram­kvæmda­stjóri Salt Eldhús, er mikið jóla­barn sem elskar allt jóla­stúss og þá sér­stak­lega það sem snýr að mat. Hún bakar mikið og mat­reiðir ýmsar krásir á þessum árs­tíma og gefur hér les­endum upp­skrift að hinum franska jóla­drumbi bûche de noel og steiktu eggja­brauði sem er ein­falt en góm­sætt og til­valið að gæða sér á t.d. á jóla­dags­morgni.
Uppskrift

Eldar hollan mat sem börnin elska

Heil­næmar og hollar mat­ar­venjur barna standa nærri hjarta Magneu Guðnýjar Ferdin­ands­dóttur, sem fyrir fjórtán árum fann ástríðu sinni far­veg í starfi þegar hún réð sig sem mat­ráð á Leik­skól­anum Reyn­is­holti. Þar töfrar hún fram hina ýmsu græn­met­is­rétti og hreina fæðu sem falla vel í kramið hjá börn­unum. Hún hefur helgað sig nær­ingu ungra barna og segir aldrei of seint að breyta mat­ar­venjum barna til góðs.

Myndband

Mest lesið undanfarið ár