Tartalettuhátíð í nánd

Lík­leg­ast hefði fæstum dottið í hug að Georg Arnar Hall­dórs­son yrði kokkur enda var hann með afbrigðum mat­vandur fram eftir aldri, líkt og hann greinir sjálfur frá. En nú er öldin önnur og Georg hefur þróað bragð­lauk­ana til muna síðan hann útskrif­að­ist sem kokkur fyrir tæpum ára­tug.

Tartalettuhátíð í nánd
Feðgar Georg Arnar Hall­dórs­son ásamt syni sínum Hirti Georgs­syni. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Lengi vel hafði ég ekki mik­inn áhuga á mat og var í raun mjög mat­vandur. Ég er alinn upp við hefð­bund­inn íslenskan mat. Fiskur var oft á borðum og mamma tók slátur en mér fannst allt við slát­ur­gerð­ina mjög ógeð­fellt þegar ég var yngri. Eftir að ég byrj­aði í fag­inu og lærði að borða og meta mat sé ég hins vegar betur hvað æskan hefur mikil áhrif á mann og margt þaðan hefur að hluta til veitt manni inn­blástur. Mér hefur lærst að kunna að meta betur hefð­bund­inn, íslenskan mat og ég reyni líka að nota íslenskt hrá­efni eins mikið og kostur er við elda­mennsk­una,“ segir Georg.

Í gagn­fræða­skóla hóf hann störf á pitsu­stað heima í Mos­fellsbæ og fór því snemma að vinna með hrá­efni og við mat­ar­gerð án þess að ætla sér í fyrstu neitt með það. Hann ætl­aði sér að verða lista­maður en vann áfram á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár