ASÍ varar við óábyrgri hagstjórn og gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að hunsa ábendingar sérfræðinga

ASÍ furðar sig á stað­hæf­ingum fjár­mála­ráð­herra um að minni sam­keppn­is­hæfni sé aðal­lega vegna launa­þró­unar: „Minni sam­keppn­is­hæfni útflutn­ings­greina má fyrst og fremst rekja til styrk­ingar á nafn­gengi krón­unnar. Hlut­deild launa­fólks í hag­vext­inum er síst of stór.“

ASÍ varar við óábyrgri hagstjórn og gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að hunsa ábendingar sérfræðinga

Rík­is­stjórnin hefur ekki kynnt nein heild­stæð áform um að styrkja tekju­grunn rík­is­ins til fram­búðar svo hægt sé að standa undir auknum útgjöldum til langs tíma. Hætt er við því að þegar um hægist í efna­hags­líf­inu muni tekjur rík­is­sjóðs ekki duga til að fjár­magna núver­andi útgjalda­stig. Þannig þurfi jafn­vel að grípa til aðhalds­að­gerða þegar síst skyldi, það er nið­ur­skurðar eða auk­innar skatt­heimtu.

Þetta kemur fram í umsögn Alþýðu­sam­bands Íslands um fjár­mála­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar sem fjár­laga­nefnd barst í dag. „ASÍ telur tví­sýnt hvort að sú fjár­mála­stefna sem hér er sett fram muni styðja við efna­hags­legan og félags­legan stöð­ug­leika á kom­andi árum sökum þeirra ann­marka sem á henni eru,“ segir í umsögn­inni.

„Samkvæmt stefn­unni á fyrst og fremst að auka útgjöld með því að draga úr afgangi af rík­is­rekstr­inum á sama tíma og dregið er úr tekju­öfl­un­ar­á­formum fyrri rík­is­stjórnar. Hætt er við áform um að færa ferða­þjón­ustu­tengda starf­semi í efra þrep virð­is­auka­skatts og fyr­ir­hug­aðar eru frek­ari skatta­lækk­anir. Engin áform virð­ast hins vegar uppi um að styrkja tekju­grunn rík­is­ins til fram­búðar til að standa undir auknum útgjöldum.“ 

Ábendingar fjármálaráðs ítrekað hunsaðar

ASÍ gagn­rýnir stjórn­völd fyrir að hunsa ítrekað þær ábend­ingar sem fram koma í umsögnum fjár­mála­ráðs um hag­stjórn og fram­setn­ingu fjár­mála­á­ætl­ana og fjár­mála­stefna. Þannig sé til að mynda ómögu­legt að meta aðhalds­stig fjár­mála­stefn­unnar með full­nægj­andi hætti í ljósi þess að í henni er ekki að finna grein­ingu á hag­sveiflu­leið­réttum frum­tekjum og frum­gjöldum. 

Í álits­gerð fjár­mála­ráðs um fjár­mála­stefn­una sem Stundin fjall­aði um í byrjun jan­úar er varað sér­stak­lega við því að ráð­ist verði í stór­fellda aukn­ingu rík­is­út­gjalda án sam­svar­andi tekju­öfl­unar. Aðrar aðfinnslur fjár­mála­ráðs lúta til dæmis að áformum rík­is­stjórn­ar­innar um áfram­hald­andi skattaí­vilnun fyrir ferða­þjón­ust­una, óljósri fram­setn­ingu og skorti á ítar­upp­lýs­ingum, ósam­ræmi milli stefnu­mörk­unar og spá­gerðar og áformum um þenslu­hvetj­andi ráð­staf­anir án þess að neinar mót­væg­is­að­gerðir séu til­greindar.

„Hlutdeild launafólks í hagvextinum er síst of stór“

Í grein­ar­gerð sem fylgir fjár­mála­stefn­unni, sem lögð er fram í formi þings­á­lykt­un­ar­til­lögu frá Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra, er full­yrt að raun­gengi á mæli­kvarða launa hafi hækkað veru­lega síð­ast­liðin ár sem dragi mjög úr sam­keppn­is­hæfni útflutn­ings­greina, sér­stak­lega þeirra sem eru með hlut­falls­lega háan launa­kostnað, svo sem nýsköp­unar- og tækni­greina.

„Í síð­ustu kjara­samn­ingslotu var samið um launa­hækk­anir sem voru veru­lega umfram fram­leiðni­vöxt en slík þróun er ósjálf­bær til lengri tíma litið. Vegna hag­felldra ytri skil­yrða rætt­ust ekki spár um ólgu í efna­hags­málum í kjöl­far svo mik­illa launa­hækk­ana,“ segir í grein­ar­gerð fjár­mála­ráð­herra. 

ASÍ lýsir furðu á stað­hæf­ingum sem fram koma í þessum kafla. „Minni sam­keppn­is­hæfni útflutn­ings­greina má fyrst og fremst rekja til styrk­ingar á nafn­gengi krón­unnar síð­ast­lið­inn ár en ekki launa­þró­unar. Þá sýna þær launa­hækk­anir sem verið hafa umfram kjara­samn­inga á síð­ustu árum ber­lega að hlut­deild launa­fólks í hag­vext­inum er síst of stór,“ segir í umsögn ASÍ. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár