Fjármálaráð varar við skattalækkunum og ósjálfbærri hagstjórn: „Nú virðist sem verið sé að gefa aftur í“

Fjár­mála­ráð gagn­rýnir skatta­af­slátt ferða­þjón­ust­unnar og leið­réttir ranga full­yrð­ingu í grein­ar­gerð sem fylgir fjár­mála­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar.

Fjármálaráð varar við skattalækkunum og ósjálfbærri hagstjórn: „Nú virðist sem verið sé að gefa aftur í“

Flest bendir til þess að afkoma hins opin­bera verði í raun nei­kvæð á næstu árum sé miðað við frum­jöfnuð hins opin­bera og hann leið­réttur fyrir áhrifum hag­sveifl­unnar. Slík rekstr­ar­nið­ur­staða getur ekki talist sjálf­bær til lengri tíma. 

Þetta kemur fram í álits­gerð um fjár­mála­stefnu nýrrar rík­is­stjórnar sem fjár­mála­ráð skil­aði fjár­laga­nefnd Alþingis milli jóla og nýárs. Þar er varað sér­stak­lega við því að ráð­ist verði í stór­fellda aukn­ingu rík­is­út­gjalda án sam­svar­andi tekju­öfl­unar.

Á meðal þess sem fjár­mála­ráð gagn­rýnir í álits­gerð sinni eru áform rík­is­stjórn­ar­innar um áfram­hald­andi skattaí­vilnun fyrir ferða­þjón­ust­una, óljós fram­setn­ing og skortur á ítar­upp­lýs­ingum, ósam­ræmi milli stefnu­mörk­unar og spá­gerðar og áform um þenslu­hvetj­andi ráð­staf­anir án þess að mót­væg­is­að­gerðir séu til­greindar.

Lækkun tekjuskatts stríði gegn markmiði um stöðugleika

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur boðað lækkun tekju­skatts, en fjár­mála­ráð telur að slíkt sé ekki til þess fallið að við­halda stöð­ug­leika í efna­hags­málum. 

„Lækkun skatta við þessar aðstæður leiðir til auk­innar verðbólgu og er þar að auki þenslu­hvetj­andi þ.e. ef önnur tekjuöflun er ekki aukin eða dregið úr útgjöldum hins opin­bera á sama tíma. Stefnan útlistar engar slíkar aðgerðir,“ segir í umsögn ráðs­ins. 

Að sama skapi er bent á að aukn­ing útgjalda við þenslu­að­stæður kalli á frek­ari tekjuöflun, nið­ur­skurð ann­arra útgjalda eða blöndu beggja.

„Lækkun skatta við þessar aðstæður
leiðir til auk­innar verðbólgu“

„Það að stjórnvöld geri hvor­ugt felur í raun í sér að þau velti ábyrgð­inni yfir á stjórn pen­ingamála og er líklegt að slíkt muni tefja núver­andi vaxta­lækk­un­ar­ferli að öðru óbreyttu,“ segir í umsögn­inni.

Gagnrýna skattaívilnun ferðaþjónustunnar

 Fjár­mála­ráð gagn­rýnir þá stefnu rík­is­stjórn­ar­innar að við­halda skattaí­vilnun á ferða­þjón­ust­una með því að hafa hana áfram í lægra þrepi virð­is­auka­skatts.

Fram kemur að slíkt sé ekki til þess fallið að auka vöxt og fjöl­breytni í íslensku atvinnu­lífi auk þess sem erfitt sé að finna hald­bær rök fyrir því hvers vegna skatt­lagn­ing ferða­þjón­ustu ætti að vera frá­brugðin skatt­lagn­ingu ann­arra atvinnu­greina. 

 „Afleið­ing hins mikla vaxtar grein­ar­innar á und­anförnum árum hefur birst í hærra raun­gengi, versn­andi sam­keppn­is­stöðu ann­arra útflutn­ings­greina og ruðn­ingsáhrifum. Þá er vert að benda á að sú skatta­lega ívilnun sem greinin hefur búið við er til þess fallin að beina takmörkuðum aðföngum, þ.m.t. mannauði, þjóðarbúsins inn í grein­ina,“ segir í umsögn ráðs­ins.

„Ef slík bjögun væri ekki til staðar myndu þau aðföng leita í þær greinar þar sem væntur jað­arábati er hvað mestur og þannig hámarka þjóðhags­legan ábata og jafn­framt gera aðrar greinar sam­keppn­is­hæf­ari.

Sú stefnu­breyt­ing sem nú er boðuð og felst í því að við­halda skattaívilnun grein­ar­innar er því ekki til þess fallin að auka vöxt og fjölbreytni í íslensku atvinnulífi.“

Hnýtt er sér­stak­lega í full­yrð­ingu sem er sett fram í grein­ar­gerð fjár­mála­stefnu Bjarna Bene­dikts­sonar þess efnis að afkoma opin­berra aðila í heild upp á 3 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu, sé „ágætur árangur“ og „til þess fall­inn að hægja á fremur en að ýta undir áfram­hald­andi eft­ir­spurn­ar­vöxt í hag­kerf­inu“.

Fjár­mála­ráð svarar: „Það er ekki alls kostar rétt. Afkoma opin­berra fyr­ir­tækja gegnir ekki sveiflujöfnun­ar­hlut­verki í jafn ríkum mæli eins og afkoma hins opin­bera í A-hluta.“ Þá er bent á að hag­sveiflu­leiðréttur frumjöfnuður sá sá mæli­kvarði sem segir til um aðhalds­stigið og engar upplýsingar séu gefnar um hann í stefn­unni. Aðhalds­stigið í A-hluta sé því óljóst þó full­yrða megi að það fari minnk­andi og sé því ekki til þess fallið að hægja á eft­ir­spurn­ar­vexti.

Minnt er á að í síð­ustu fjár­mála­á­ætlun hafi komið fram að svo virt­ist sem stjórnvöld væru að stíga lausar á bensíngjöfina þegar þau ættu að vera að bremsa og áfram yrði slakað á aðhalds­stig­inu. „Nú virð­ist sem verið sé að gefa aftur í á sama tíma og óvissan hefur auk­ist,“ segir fjár­mála­ráð nú. Þetta er í sam­ræmi við álykt­anir sem dregnar voru í nýlegri frétta­skýr­ingu Stund­ar­innar, sjá hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár