Veikja tekjustofna á þenslutímum: Boða hátt í 30 milljarða skattalækkanir

Rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins setti fram kostn­að­ar­söm lof­orð í stjórn­ar­sátt­mál­anum. Ætla að lækka skatta og falla frá 19 millj­arða tekju­öfl­un­ar­á­formum fyrri rík­is­stjórnar.

Veikja tekjustofna á þenslutímum: Boða hátt í 30 milljarða skattalækkanir

Þær skatta­lækk­anir sem rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins boðar í stjórn­ar­sátt­mála sínum gætu kostað rík­is­sjóð vel yfir 30 millj­arða á ári þegar þær verða að fullu komnar til fram­kvæmda.

Þar að auki hyggst ný rík­is­stjórn falla frá tekju­öfl­un­ar­á­formum fyrri stjórnar sem áttu að auka tekjur rík­is­sjóðs um 19 millj­arða króna á árs­grund­velli.

Þannig verða tekju­stofnar hins opin­bera rýrðir sam­hliða stór­felldri útgjalda­aukn­ingu rétt eins og tíðk­að­ist á útrás­ar­ár­unum og gagn­rýnt var harð­lega í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis eftir hrun. 

Stórir tekjustofnar veiktir

Helstu skatta­lækk­an­irnar sem rík­is­stjórnin boðar eru lækkun neðra þreps tekju­skatts og lækkun trygg­inga­gjalds.

Þá verður virð­is­auka­skattur af bókum afnum­inn og frí­tekju­mark atvinnu­tekna eldri borg­ara hækkað upp í 100 þús­und krónur á mán­uði.

Samkvæmt útreikn­ingum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins mun lækkun neðra þreps tekju­skatts­ins um eitt pró­sentu­stig kosta um 14 millj­arða á ári.

Trygg­inga­stofnun hefur reiknað út að hækkun frí­tekju­marks af atvinnu­tekjum eldri borg­ara upp í 100 þús­und muni kosta rík­is­sjóð 1,3 millj­arða á ári. 

Þá ætti afnám bóka­skatts­ins að kosta í kringum 300 til 400 millj­ónir ef miðað er við tekj­urnar sem virð­is­auka­skattur af bók­sölu hefur skilað á und­an­förnum árum. 

Í kjara­samn­ingum árið 2016 var byggt á sam­komu­lagi sem gert hafði verið við fjár­mála­ráð­herra um að trygg­inga­gjaldið myndi lækka í þremur skrefum og verða jafn hátt árið 2018 og það var fyrir hrun. Eins og bent var á í Morg­un­blað­inu í gær kostar lækkun trygg­ing­ar­gjalds sem þessu nemur um 20 millj­arða. Í ljósi þess að talað er um lækkun trygg­inga­gjalds sem „for­gangs­mál“ í stjórn­ar­sátt­mál­anum hlýtur að mega slá því föstu að gjaldið verði a.m.k. lækkað um 15 millj­arða á kjör­tíma­bil­inu. 

Út frá ofan­greindum for­sendum felur stjórn­ar­sátt­mál­inn í sér fyr­ir­heit um skatta­lækk­anir upp á rúma 30 millj­arða.

Tekju­lækk­unin gæti orðið 5 til 10 millj­örðum minni ef gengið verður skemur í lækkun trygg­inga­gjalds, en að sama skapi gæti hún orðið 13 til 15 millj­örðum meiri ef kosn­inga­lof­orð Sjálf­stæð­is­flokks­ins um að lækka neðra þrep tekju­skatts niður í 35 pró­sent verður efnt. Í fyr­ir­sögn þess­arar fréttar er notað var­kárt orða­lag og talað um „hátt í 30 millj­arða“, en þá er miðað við neðri mörk þeirra lof­orða sem hægt er að lesa út úr stjórn­ar­sátt­mál­anum. 

Hvað sem því líður er ljóst að stjórn­ar­sátt­mál­inn felur í sér fyr­ir­heit um tug­millj­arða skatta­lækk­anir og veik­ingu stórra tekju­stofna á þenslu­tímum í takt við þá stefnu sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn boð­aði í kosn­inga­bar­áttu sinni.

Kolefnisgjald hækkað helmingi minna

Ofan á þetta bæt­ist að fallið verður frá tekju­öfl­un­ar­á­formum fyrri rík­is­stjórnar sem áttu að skila árlegum við­bót­ar­tekjum í rík­is­sjóð upp á um það bil 19 millj­arða sam­kvæmt fjár­mála­á­ætlun og fjár­laga­frum­varpi Bene­dikts Jóhann­es­sonar, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Kolefn­is­gjald verður hækkað helm­ingi minna á næsta ári en til stóð sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi Bene­dikts og verða tekj­urnar þar nær 1,6 millj­örðum en þeim 3,2 sem gert var ráð fyrir. 

Þyngra vegur þó sú ákvörðun að hætta við að færa ferða­þjón­ustu upp í efra þrep virð­is­auka­skatts­ins. Slík hækkun átti að auka tekjur rík­is­sjóðs um 17,5 millj­arða á ári frá og með 2019. 

Á móti kemur að ný rík­is­stjórn hlýtur að falla frá áformum fyrri stjórnar um lækkun almenna þreps virð­is­auka­skatts­ins árið 2019. Með því koma 13,5 millj­arða tekjur á móti þeim 17,5 millj­örðum sem tap­ast. 

Samhliða skatta­lækk­unum boðar rík­is­stjórnin stór­aukin útgjöld til ýmissa mála­flokka. Dregið verður úr tekju­af­gangi hins opin­bera og eigna­tekjur úr banka­kerf­inu vegna lækk­unar eig­in­fjár við­skipta­bank­anna nýttar til inn­viða­upp­bygg­ingar. Á meðal fyr­ir­hug­aðra aðgerða eru sam­göngu­verk­efni og mann­virkja­gerð um allt land, efl­ing heil­brigð­is­kerf­is­ins, lækkun greiðslu­þátt­töku sjúk­linga og aukið fjár­magn til háskóla­stigs­ins og lög­gæslu. Þetta verður vart skilið öðru­vísi en sem fyr­ir­heit um útgjalda­aukn­ingu upp á tugi millj­arða á ári.

Fjármagnseigendur varðir fyrir verðbólguáhrifunum

Þær skatta­hækk­anir sem boð­aðar eru í stjórn­ar­sátt­mál­anum duga skammt til að vega upp á móti útgjalda­aukn­ing­unni og skatta­lækk­un­unum.

Fram hefur komið að gert sé ráð fyrir að hóf­leg hækkun fjár­magnstekju­skatts skili um 2,5 millj­arða við­bót­ar­tekjum í rík­is­sjóð. Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar kemur líka fram að skatt­stofn fjár­magnstekju­skatts­ins verði end­ur­skoð­aður. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra stað­festi í við­tali við RÚV í gær að umrædd end­ur­skoðun á skatt­stofn­inum snú­ist m.a. um að verja fjár­magns­eig­endur fyrir verð­bólgu­á­hrifum.

Þá verða leiðir til gjald­töku í ferða­þjón­ustu kann­aðar í sam­ráði við grein­ina, svo sem „mögu­leikar á álagn­ingu komu- eða brott­far­ar­gjalds“ eins og segir í stjórn­ar­sátt­mál­anum. Samkvæmt svari fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Oddnýjar G. Harð­ar­dóttur, þing­konu Sam­fylk­ing­ar­innar, um tekjur af komu­gjöldum má gera ráð fyrir að þau skili 4,2 millj­örðum í rík­is­sjóð á ári.

Samtals eru þetta aðeins 6,7 millj­arðar. Syk­ur­skattur, sem Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur nefnt sem mögu­leika, gæti skilað fáeinum millj­örðum í rík­is­sjóð, en engu er slegið föstu um slíkan skatt í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur áður tekið mjög harða afstöðu gegn honum. 

Í stjórn­ar­sátt­mál­anum kemur fram að heild­ar­end­ur­skoðun verði gerð á gjald­töku í sam­göngum og á grænum sköttum auk þess sem skatta­eft­ir­lit verði eflt sem og bar­átta gegn skatta­skjólum. Óljóst er hve miklum tekjum þetta mun skila en vand­séð að þær mæti nema broti af kostn­að­inum af þeim skatta­lækk­unum og þeim útgjalda­á­formum sem hér hefur verið fjallað um.

Láta Seðlabankann einan um að sporna við þenslunni

Allt í allt er ljóst að fjár­mála­stefna nýrrar rík­is­stjórnar er gjör­ó­lík þeirri stefnu sem Benedikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi for­maður Við­reisnar og fjár­mála­ráð­herra, lagði grunn að í sinni stuttu ráð­herra­tíð.

Stefna rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur felur í sér veru­lega slökun á aðhaldi rík­is­fjár­mál­anna. Fyrir vikið er hætt við því að Seðla­bank­inn verði svo gott sem lát­inn einn um að vega upp á móti þensl­unni í hag­kerf­inu í gegnum pen­inga­stefn­una og að vextir verði hækk­aðir. 

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um banka­hrunið var hag­stjórn­ar­stefna fyr­ir­hrunsár­anna gagn­rýnd fyrir einmitt þetta: bog­inn var spenntur of hátt, skatta­lækk­anir á þenslu­tímum drógu úr aðhaldi og kyntu undir hag­sveifl­unni fremur en að dempa hana og búa í hag­inn fyrir mýkri lend­ingu. 

„Efnahags- og fram­fara­stofn­unin, Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn og Seðla­banki Íslands eru á einu máli um að tíma­setn­ing skatta­lækk­ana á árunum 2005 til 2007 hafi verið óheppi­leg,“ segir í 4. kafla skýrsl­unnar þar sem því er lýst hvernig skatta­lækk­anir á þenslu­tímum voru „olía á eld­inn, þ.e. [juku] ofþensl­una veru­lega og þar með lík­urnar á kröft­ugum sam­drætti að þenslu­skeið­inu loknu. Engu að síður var skatta­lækk­unum hrint í fram­kvæmd þótt þær kynnu að valda hag­kerf­inu skaða vegna þess að þeim hafði verið lofað í sam­keppni stjórn­mála­flokka um atkvæði í aðdrag­anda kosn­inga.“  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár