Mynd: Pressphotos

U-beygja hjá Sjálfstæðisflokki: Lofa 100 milljarða útgjaldaaukningu samhliða lækkun skatta

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gagn­rýndi póli­tíska and­stæð­inga fyrir „stór­aukin rík­is­út­gjöld sem munu ekki stand­ast“ en lofar nú að lækka skatta og „bæta 100 millj­örðum við í inn­viða­upp­bygg­ingu“ þótt Ísland sé „á toppi hag­sveifl­unnar“.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vill auka rík­is­út­gjöld til inn­viða­upp­bygg­ingar um 100 millj­arða á næstu árum umfram það sem gert er ráð fyrir í fjár­mála­á­ætlun frá­far­andi rík­is­stjórnar, en um leið lækka skatta og auka fram­lög til vel­ferð­ar­mála.

Þetta kemur fram í kosn­inga­á­herslum sem birt­ust á vef Sjálf­stæð­is­flokks­ins þann 14. októ­ber, viku eftir að Bjarni Bene­dikts­son gagn­rýndi aðra flokka harð­lega fyrir „stór­aukin rík­is­út­gjöld sem munu ekki stand­ast“. 

Svo virð­ist sem flokk­ur­inn hafi nýlega ákveðið að víkja frá þeirri stefnu að ein­skiptis­tekjur og óreglu­legar arð­greiðslur úr bönkum yrðu nær ein­vörð­ungu nýttar til skulda­lækk­unar hjá hinu opin­bera. Gert var ráð fyrir slíkri til­högun í fjár­mála­á­ætlun frá­far­andi rík­is­stjórnar og jafn­framt í fjár­mála­á­ætlun Bjarna Bene­dikts­sonar sem sam­þykkt var í fyrra.

Í stað­inn boðar flokk­ur­inn að arð­greiðslur úr bönk­unum til rík­is­ins verði not­aðar til að stór­auka rík­is­út­gjöld á næstu árum sam­hliða veg­legum skatta­lækk­unum, meðal ann­ars lækkun tekju­skatts og trygg­inga­gjalds.

Sagði óábyrgt að auka útgjöld „á toppi hagsveiflunnar“

Í Víg­lín­unni á Stöð 2 þann 7. októ­ber síð­ast­lið­inn benti Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra á að Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, tal­aði fyrir „tuga millj­arða auknum rík­is­út­gjöldum á hverju ári“. Hann sagði þetta óábyrgt og til þess fallið að kynda undir verð­bólgu í ljósi þess að Ísland væri „á toppi hag­sveifl­unnar“. 

Þátta­stjórn­and­inn Heimir Már Pét­urs­son spurði: „Hefði það valdið óþarfa spennu í þjóð­fé­lag­inu ef það hefðu til dæmis verið settir þrír, fjórir, fimm, millj­arðar til við­bótar í heil­brigð­is­kerfið, í Land­spít­al­ann?“

Bjarni svar­aði á þá leið að umsagn­að­ilar við fjár­mála­á­ætlun hefðu einmitt metið það svo. „Það var mat umsagn­ar­að­ila við fjár­mála­á­ætl­un­ina,“ sagði hann. Fjár­mála­ráð sem fékk þetta til umsagnar, Seðla­bank­inn og aðrir, þeir sögðu: ‘Þið eruð alveg á ytri brún þess sem hægt er að gera í vexti rík­is­út­gjalda. Nú verð­iði að passa ykkur.’ Þegar Seðla­bank­inn lækk­aði vexti núna fyrir nokkrum dögum síðan, þá var verið að vísa í ábyrg rík­is­fjár­mál. Þetta hangir nefni­lega allt saman.“ 

„Bætum 100 milljörðum við í innviðauppbyggingu“

Þremur dögum seinna, þann 10. októ­ber, mætti Bjarni Bene­dikts­son í For­ystu­sætið á RÚV og sagð­ist vilja taka „um tugi millj­arða, jafn­vel allt að hund­ruð millj­örðum“ út úr banka­kerf­inu og verja fénu til inn­viða­upp­bygg­ingar. 

Þann 14. októ­ber birti svo Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn kosn­inga­á­herslur sínar á vefnum. Þar kemur fram að flokk­ur­inn vilji nýta þessar ein­skiptis­tekjur, arð­greiðslur úr bönk­unum, til  inn­viða­upp­bygg­ingar fremur en að afla auk­inna skatt­tekna. „Bætum 100 millj­örðum við í inn­viða­upp­bygg­ingu,“ segir á vefnum. „Bank­arnir hafa bol­magn til að greiða rík­inu allt að 100 millj­arða króna í sér­stakar arð­greiðslur á næstu árum. Við viljum nýta fjár­magnið, til við­bótar við áður áætl­aðar fram­kvæmdir, í nauð­syn­legar inn­viða­fjár­fest­ingar til að bæta veg­ina, og styrkja sam­göngur um allt land, en einnig aðra inn­viði svo sem í heil­brigð­is­kerf­inu og mennta­kerf­inu.“

Á skjön við fyrirheit í fjármálaáætlunum

Hvorki var gert ráð fyrir hinni miklu aukn­ingu útgjalda vegna inn­viða­upp­bygg­ingar í fjár­mála­á­ætlun Bjarna Bene­dikts­sonar, sem sam­þykkt var í fyrra, né í fjár­mála­á­ætlun Bene­dikts Jóhann­es­sonar og frá­far­andi rík­is­stjórnar sem sam­þykkt var síð­asta sumar. Áætl­an­irnar eru settar fram og sam­þykktar á grund­velli laga um opin­ber fjár­mál, en fyr­ir­komu­lag­inu var komið á til að tryggja gagn­sæi og fyr­ir­sjá­an­leika í rík­is­fjár­málum.

Í áætl­un­inni sem Bjarni Bene­dikts­son lagði fram á Alþingi vorið 2016 kom skýrt fram að tekið væri mið af því að „óreglu­legar tekjur sem kunna að falla til á tíma­bil­inu eins og sér­stakar arð­greiðslur eða sölu­hagn­aður af eigna­sölu“ verði nýttar „til lækk­unar á skuldum og þar með til lækk­unar á vaxta­kostn­aði rík­is­sjóðs“.

Þetta er jafn­vel skýr­ara í fjár­mála­á­ætlun Bene­dikts Jóhann­es­sonar og frá­far­andi rík­is­stjórnar þar sem til­greint er að ráð­staf­anir „í formi óreglu­legra arð­greiðslna, s.s. vegna lækk­unar eig­in­fjár bank­anna“ muni nýt­ast til að lækka heild­ar­skuldir rík­is­sjóðs umtals­vert og draga úr vaxta­gjöldum rík­is­sjóðs. Þá segir orð­rétt: „Öllu óreglu­legu og ein­skiptis fjár­streymi rík­is­sjóðs s.s. arð­greiðslum, ávinn­ingi af sölu eign­ar­hluta í fjár­mála­fyr­ir­tækjum, sam­drætti í skuld­settum gjald­eyr­is­vara­forða verði varið til að hraða enn frekar nið­ur­greiðslu skulda eða til lækk­unar á ófjár­mögn­uðum líf­eyr­is­skuld­bind­ingum. Þannig verði fjár­hags­staða rík­is­sjóðs treyst, dregið úr vaxta- kostn­aði og afkoman bætt og svig­rúm myndað til upp­bygg­ingar og skatta­lækk­ana, til að mæta áhættu­þáttum eða til sveiflu­jöfn­unar í hag­kerf­inu þegar á þarf að halda.“

„Þarna er fjár­magn sem er ekki getið
um í lang­tíma­á­ætlun í rík­is­fjár­málum“

Bjarni tal­aði um fyr­ir­hug­aða útgjalda­aukn­ingu í For­ystu­sæt­inu á RÚV fyrr í mán­uð­inum. „Hérna erum við að tala um tugi millj­arða, jafn­vel allt að hund­ruð millj­örðum. Við höfum reyndar tekið út úr banka­kerf­inu hund­rað millj­arða í arð á síð­ustu tveimur árum, en þarna er fjár­magn sem er ekki getið um í lang­tíma­á­ætlun í rík­is­fjár­málum sem við í Sjálf­stæð­is­flokknum sjáum fyrir okkur að nýta til þess að fara í þessa inn­viða­upp­bygg­ingu,“ sagði hann. 

Raunin er hins vegar sú að getið er um fjár­magnið, þ.e. mögu­leik­ann á óreglu­legum arð­greiðslum vegna lækk­unar eig­in­fjár bank­anna, í fjár­mála­á­ætlun frá­far­andi stjórnar (bls. 43), en þar var hins vegar gert ráð fyrir að fjár­mun­irnir yrðu not­aðir til nið­ur­greiðslu skulda.

Fleiri flokkar lofa stórauknum ríkisútgjöldum

Sam­fylk­ingin og Vinstri græn hafa einnig talað fyrir því að taka arð út úr bönk­unum og nýta til upp­bygg­ingar.

Flokk­arnir vilja hins vegar að inn­viða­upp­bygg­ingin verði líka fjár­mögnuð með stór­auknum skatt­tekjum, meðal ann­ars með auk­inni gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi, auknum álögum á hátekju- og stór­eigna­fólk, grænum sköttum og ann­að­hvort hækkun virð­is­auka­skatts á ferða­þjón­ustu eða komu­gjöldum. Áherslur Pírata eru um margt svip­aðar, en þeir vilja meðal ann­ars hækka fjár­magnsteku­skatt og bjóða upp fisk­veiði­heim­ildir á mark­aði. 

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur varað við skatta­hækk­unum en talað fyrir því að  afgang­ur­inn af rekstri rík­is­sjóðs verði nýttur til þess að auka útgjöld til heil­brigðis-, sam­göngu- og mennta­mála um 20 millj­arða árlega á kjör­tíma­bil­inu. Flokk­ur­inn vill jafn­framt leita eftir sam­starfi við líf­eyr­is­sjóð­ina um að fjár­festa fyrir minnst 10 millj­arða árlega í þjón­ustu- og hjúkr­unar­í­búðum fyrir aldr­aða í sveit­ar­fé­lögum þar sem þörfin er brýn­ust.

Viðreisn vill virkja lífeyrissjóðina

Viðreisn leggur líka áherslu á sam­starf við líf­eyr­is­sjóði. Í pistli eftir Benedikt Jóhann­es­son, stofn­anda og fyrr­ver­andi for­mann flokks­ins, hvetur hann til þess að í stað við­bót­ar­skatta á lands­menn verði leitað sam­starfs við líf­eyr­is­sjóð­ina um að fjár­magna við­hald og upp­bygg­ingu inn­viða.

„Það á að vera for­gangs­verk­efni stjórn­valda að hefja alvar­legar við­ræður við for­svars­menn líf­eyr­is­sjóð­anna um með hvaða hætti þeir geti komið með rík­inu að fjár­mögnun inn­viða­verk­efna þjóð­fé­lags­ins á næstu árum,“ skrifar Benedikt í grein á vef Við­skipta­blaðs­ins. „Þetta byggir á því að sjóð­irnir fjár­festi í fjár­mögnun verk­efn­anna og þannig yrði um leið létt af þeim þrýst­ingi á að fjár­festa á hinum þrönga og litla íslenska hluta­bréfa­mark­aði.“ For­ystu­fólk í Viðreisn hefur lagt áherslu á að ríkið haldi áfram að nota ein­skiptis­tekjur til að greiða niður skuldir. 

Þannig leggja flestir flokk­anna áherslu á stór­auknar fjár­fest­ingar til inn­viða­upp­bygg­ingar en greinir á um aðferðir og tekju­öfl­un­ar­leiðir. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er þó eini stóri flokk­ur­inn sem lofar því að lækka skatta sam­hliða stór­auknum rík­is­út­gjöldum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið undanfarið ár