Mynd: Morgunblaðið / Eggert Jóhannesson

Útgjaldagleði án skattahækkana? Svona yrðu áhrifin á þjóðarbúið

„Vextir og gengi krón­unnar verða hærri en ella hefði verið,“ segir í nýju riti Seðla­bank­ans þar sem spáð er fyrir um efna­hags­leg áhrif slök­unar á aðhalds­stigi rík­is­fjár­mála. Ný rík­is­stjórn mun stór­auka rík­is­út­gjöld, en óljóst er hvernig Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Vinstri græn ætla að ná saman um skatt­breyt­ingar.

Ef útgjöld hins opin­bera verða stór­aukin á næstu árum án auk­innar skatt­heimtu og mót­væg­is­að­gerða á tekju­hlið rík­is­fjár­mál­anna munu vextir Seðla­bank­ans hækka, verð­bólga aukast, gengi krón­unnar styrkj­ast og við­skipta­af­gangur Íslands hverfa hraðar en áður leit út fyrir. Bent er á þetta í nýju riti Seðla­banka Íslands um Pen­inga­mál sem kom út í morgun sam­hliða til­kynn­ingu um vaxta­á­kvörðun. 

Rekstur rík­is­sjóðs er nú þegar í járnum ef litið er til afkomu af reglu­legum rekstri og hún leið­rétt fyrir hag­sveifl­unni. Þetta er vegna þess að í tíð fyrri rík­is­stjórna hafa tekju­stofnar hins opin­bera verið veiktir með skatta­lækk­unum sam­hliða umtals­verðri aukn­ingu útgjalda á miðju þenslu­skeiði. 

Þeir flokkar sem vinna nú að myndun rík­is­stjórnar, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Vinstri­hreyf­ingin grænt fram­boð og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, boð­uðu allir veru­lega útgjalda­aukn­ingu í kosn­inga­bar­átt­unni. Hins vegar er óljóst hvernig flokk­arnir geta náð saman um aðgerðir í skatta­málum.

Vilja efna tugmilljarða útgjaldaloforð 

Katrín Jak­obs­dóttir verður for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son lík­lega fjár­mála­ráð­herra. Þau munu bera lyk­ilá­byrgð á hag­stjórn­inni næstu ár ef af rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu verður.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lof­aði 100 millj­arða útgjalda­aukn­ingu til inn­viða­upp­bygg­ingar næstu árin sam­hliða stór­felldum skatta­lækk­unum. Vinstri græn lof­uðu árlegri útgjalda­aukn­ingu upp á tugi millj­arða sam­hliða skatta­hækk­unum sem áttu þó ekki að leggj­ast á almenn­ing.

Í öllum þremur flokk­unum er and­staða við að færa ferða­þjón­ustu­tengda starf­semi upp í efra þrep virð­is­auka­skatt­kerf­is­ins, en sú aðgerð átti að skila 18 millj­arða tekjum í rík­is­sjóð. Um leið og fallið verður frá þeirri hækkun verða eflaust áform frá­far­andi stjórnar um almenna lækkun efra virð­is­auka­skatt­þreps­ins dregin til baka. 

Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður standa nú yfir og eru bundnar vonir við að mál­efna­samn­ingur liggi fyrir um helg­ina og verði afgreiddur í flokks­stofn­unum.

Frétta­blaðið full­yrti í fyr­ir­sögn í gær að gert væri ráð fyrir „óbreyttri stöðu í skatta­málum“ og sagði rík­is­stjórn­ina sem nú er í myndun ekki ætla að ráð­ast í skatta­hækk­anir.

Við­mæl­endur Stund­ar­innar úr flokk­unum kann­ast ekki við að þessu hafi verið slegið föstu en benda á að vissu­lega séu skatta­stefnur flokk­anna ólíkar og vart muni nást sam­staða um veru­legar eða rót­tækar breyt­ingar á sviði skatta­mála. 

Auðlegðarskattur ekki inni í myndinni

Ólíklegt verður að telj­ast að Vinstri græn sam­þykki skatta­lækk­anir á kom­andi kjör­tíma­bili nema þær séu sér­stak­lega í þágu lág­tekju- og milli­tekju­hópa. Að sama skapi er ekki senni­legt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gefi eftir í and­stöðu sinni við hátekju­skatta eða aukna þrepa­skipt­ingu, hækkun veiði­gjalda og skatta­á­lag á háar fjár­magnstekjur. Þá er auð­legð­ar­skattur ekki inni í mynd­inni í við­ræðum flokk­anna sam­kvæmt upp­lýs­ingum Stund­ar­innar.

Eins og fram kom í gær er það einkum vilj­inn til útgjalda­aukn­ingar og inn­viða­upp­bygg­ingar og vonir um póli­tískan stöð­ug­leika, sterkan þing­meiri­hluta og sögu­legar sættir sem gerir það að verkum að þing­menn og áhrifa­fólk í VG telja sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn fýsi­legt.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er horft til þess að nýta ein­skiptis­tekjur úr við­skipta­bönk­unum vegna lækk­unar eig­in­fjár þeirra til að fjár­festa í innviðum auk þess sem hægt verður á greiðslu rík­is­skulda; klipið verður af afgangi rík­is­sjóðs og útgjöld til heil­brigðis- og mennta­mála stór­aukin. 

Almennt má telja að mun erf­ið­ara verði fyrir flokk­ana þrjá að ná saman um tekju­öfl­un­ar­leiðir, skatta­hækk­anir og aðgerðir sem draga úr þenslu heldur en að sætt­ast á aukin rík­is­út­gjöld og aðrar þenslu­hvetj­andi ráð­staf­anir. Að þessu leyti gæti það orðið þrautin þyngri fyrir rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Vinstri grænna að við­halda efna­hags­legum stöð­ug­leika á næstu árum.

Óljóst hvernig breytingarnar verða fjármagnaðar

Í nýju riti Seðla­bank­ans um Pen­inga­mál er bent á að í aðdrag­anda nýaf­stað­inna kosn­inga voru settar fram hug­myndir um aukin útgjöld og lækkun skatta án þess að skýrt væri hvernig slíkar breyt­ingar yrðu fjár­magn­aðar. 

„Í þessu sam­hengi er mik­il­vægt að hafa í huga að þótt hag­vöxtur sé hæg­ari en hann var í fyrra er hann enn mik­ill. Fram­leiðslu­þættir eru full­nýttir og spenna því enn nokkur í þjóð­ar­bú­inu og horfur á að svo verði áfram bróð­ur­part spá­tím­ans. Minna aðhald í rík­is­fjár­málum mun því óhjá­kvæmi­lega hafa í för með sér að vextir og gengi krón­unnar verða hærri en ella hefði verið,“ segir í rit­inu.

„Minna aðhald í rík­is­fjár­málum mun því óhjá­kvæmi­lega hafa í för með sér að vextir og gengi krón­unnar verða hærri en ella hefði verið“

Seðla­bank­inn birtir frá­viks­dæmi sem sýnir afleið­ingar þess ef útgjöld rík­is­sjóðs aukast miðað við „það sem virð­ast vera neðri mörk þeirra kosn­inga­lof­orða sem kynnt voru í aðdrag­anda kosn­inga“. 

For­send­urnar eru þessar: Miðað er við að sam­neyslu­út­gjöld auk­ist um 16 millj­arða árlega, tekju­til­færslur til heim­ila um 6 millj­arða og fjár­fest­ing­ar­út­gjöld rík­is­ins um 20 millj­arða. Alls er þetta 42 millj­arða útgjalda­aukn­ing frá og með næsta fjár­laga­ári. Jafn­framt er miðað við fallið verði frá áformum um að færa ferða­þjón­ustu­tengda starf­semi í efra þrep virð­is­auka­skatt­kerf­is­ins árið 2019 sem sam­svarar um 18 millj­arða við­bót­ar­slökun í rík­is­fjár­málum.

Svona telur Seðla­bank­inn að áhrifin yrðu af þess­ari slökun á aðhalds­stigi rík­is­fjár­mál­anna:

Bent er á að mikil slökun á aðhaldi rík­is­fjár­mála hefði í för með sér aukn­ingu heild­ar­eft­ir­spurnar í þjóð­ar­bú­inu þótt hag­vaxt­ar­á­hrifin yrðu minni en sem nemur umfangi útgjalda­aukans þar sem hluti auk­innar eft­ir­spurnar bein­ist að inn­fluttri vöru og þjón­ustu. Þótt aukin fjár­fest­ing í innviðum geti aukið lang­tíma­hag­vaxt­ar­getu þjóð­ar­bús­ins séu skamm­tíma­á­hrifin í meg­in­at­riðum þau sömu og ann­arra slök­un­ar­að­gerða þegar spenna er enn í þjóð­ar­bú­inu, sem­sagt þenslu­hvetj­andi.

Taka verður sviðs­mynd­inni sem hér er dregin upp með fyr­ir­vara, enda byggir hún á því að rík­is­sjóður verði rek­inn með halla frá og með 2019. Slíkt myndi sam­ræm­ast illa lögum um opin­ber fjár­mál og ganga gegn sjálf­bærni­mark­miðum lag­anna. Þótt for­sendum Seðla­bank­ans sé lýst sem „neðri mörkum“ þeirra kosn­inga­lof­orða sem kynnt voru er ósenni­legt að slök­unin á aðhalds­stigi rík­is­fjár­mál­anna verði jafn mikil og þarna er gert ráð fyrir. Sviðs­myndin skýrir hins vegar vel þær hættur sem fel­ast í lægra aðhalds­stigi og ójafn­vægis milli frum­gjalda og frum­tekna hins opin­bera.

Ofan á efna­hags­legu áhrifin bæt­ast auð­vitað áhrifin á stöðu rík­is­sjóðs. Það gefur auga leið að ef dregur úr frum­jöfn­uði rík­is­sjóðs munu skuldir hins opin­bera lækka hægar og vaxta­kostn­aður hins opin­bera verða meiri en ella.

Vextir Seðlabankans yrðu strax hærri 

Slaki á aðhalds­stigi rík­is­fjár­mál­anna mun þýða að herða þarf á aðhaldi pen­inga­stefn­unnar. Þannig yrði dregið úr eft­ir­spurn einka­að­ila til að skapa rými fyrir aukna eft­ir­spurn hins opin­bera.

Gengi krón­unnar myndi hækka sem beindi enn auknum hluta eft­ir­spurn­ar­innar út úr þjóð­ar­bú­inu. Við þetta myndi við­skipta­af­gang­ur­inn við útlönd hverfa hraðar en áður leit út fyrir og vera nán­ast horf­inn árið 2020.

„Meiri hag­vöxtur en í grunn­spá hefur í för með sér að meiri fram­leiðslu­spenna bygg­ist upp og verð­bólga verður því heldur meiri. Á móti vegur hins vegar að vextir Seðla­bank­ans verða um 1⁄2 pró­sentu hærri frá og með næsta ári,“ segir í riti Seðla­bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið undanfarið ár