Nýja vinnan breytti lífinu

Líf Ragn­heiðar Elísa­betar Þur­íð­ar­dóttur breytt­ist eftir að hún varð við­burða­stjóri Mengis.

Nýja vinnan breytti lífinu

„Ég byrj­aði í klass­ísku píanó­n­ámi sjö ára og bjó þá í 55 fer­metra íbúð í mið­bænum þannig að það þurfti að ryðja til í stof­unni til að koma hljóð­fær­inu fyrir, en eftir 12 ár hætti ég. Þetta var mjög íhalds­samt nám og það var rosa­lega lítið sem maður mátti impró­vísera og ég vissi ekki hvað ég vildi gera eftir það. Ég íhug­aði að verða blaða­maður eða kokkur; ég ferð­að­ist um Suður-Ameríku í fjóra og hálfan mánuð eftir að ég útskrif­að­ist úr MH; síðan byrj­aði ég og hætti í dönsku­námi við Háskóla Íslands.

Síðan kynn­ist ég Mengi og það opn­aði nýjan heim fyrir mér. Þetta er vett­vangur fyrir til­raunir og verk í vinnslu og er rosa­lega mik­il­vægur fyrir fólk sem vill prófa sig áfram. Hér upp­lifir maður rosa­lega margt og kynn­ist mörgum ein­stak­lingum og það æxl­að­ist þannig að það opn­að­ist staða sem mér var boðin, og það var ákvörðun sem breytti lífi mínu mjög mikið, því líf mitt hefur meira eða minna snú­ist um þetta.

Ég er kannski smá hlé­dræg, fann ekki minn vina­hóp fyrr en á þriðja ári í MH, en þessi vinna hefur opnað mig rosa­lega. Ég hef kom­ist að því að ég hef mikla unun af því að vinna með öðru fólki, að hjálpa við að setja upp sýn­ingar, þótt það sé aðal­lega á bak við tjöldin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár