Tíu mest lesnu fréttaskýringar Stundarinnar á árinu

Aðstæður fanga, starfs­fólks í ferða­þjón­ustu og ungs fólks á fast­eigna­mark­aði, þetta var á meðal þeirra við­fangs­efna sem mest lesnu frétta­skýr­ingar árs­ins fjöll­uðu um.

Tíu mest lesnu fréttaskýringar Stundarinnar á árinu

1  Fangelsi án lausnar

Í fang­els­inu á Hólms­heiði eru konur lok­aðar inni vegna brota sem þær frömdu undir áhrifum áfengis- og vímu­efna. Fá úrræði eru hins vegar til staðar inni í fang­els­inu til þess að mæta þessum vanda, þar sem einn sál­fræð­ingur sinnir öllum föngum í fang­elsum og eng­inn með­ferð­ar­gangur er fyrir konur. Það er ekki heldur neitt sem tekur við þeim þegar þær ljúka afplánun, og þær lýsa því hvernig þær fara beint úr fang­elsi á göt­una og þaðan aftur inn í fang­elsið. Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir kynnti sér lífið í fang­els­inu á Hólms­heiði.

 

2 Það sem SÁÁ vill ekki tala um

Meðferð SÁÁ snýst um að lækna „lífs­hættu­legan heila­sjúk­dóm,“ en konur hafa upp­lifað ógn­anir og áreitni frá dæmdum brota­mönnum í með­ferð­inni. Ung stúlka lýsir því hvernig hún hætti í með­ferð vegna ógn­ana og áreitis. Vinkona móður hennar var vikið fyr­ir­vara­laust úr með­ferð án skýr­inga, eftir að hún til­kynnti um áreitni, og ekki vísað í önnur úrræði þrátt fyrir alvar­leika sjúk­dóms­ins. For­svars­menn SÁÁ segja gagn­rýni ógna öryggi og heilsu ann­arra sjúk­linga og vísa henni á bug.

 

3 Ungt fólk flýr klær GAMMA og heldur sig í hreiðrinu

Stundin rýndi í hús­næð­is­málin á árinu og komst að því að ungt fólk situr eftir í lengstu sam­felldu upp­sveiflu lýð­veld­is­sög­unnar. Þrátt fyrir auk­inn hag­vöxt og kaup­mátt hefur sjaldan verið erf­ið­ara fyrir ungt fólk að koma sér upp þaki yfir höf­uðið. Hús­næð­is­skortur, fjölgun erlendra ferða­manna og upp­kaup stórra leigu­fé­laga á jafn­vel heilu íbúða­blokk­unum hefur ýtt undir sífellt hækk­andi hús­næðis- og leigu­verð á und­an­förnum árum sem veldur því að fjöldi fólks kemst ekki úr for­eldra­húsum, gefst jafn­vel upp og flytur úr landi. Ekki sér fyrir end­ann á þeirri þróun.

 

4 Ótti og grátur eftir störf á farfuglaheimili á Selfossi

Stundin fjall­aði ítar­lega um brot á erlendu starfs­fólki á árinu. Ein sagan er af Dagmöru og Gabrielu, pólskum konum sem voru ráðnar til starfa á Far­fugla­heim­il­inu á Selfossi. Himinn og haf var hins vegar á milli þess hvernig starfið var aug­lýst og hvernig það var í raun. Vinnu­tími var mun lengri, frí var mun minna, matur var ekki inni­fal­inn og laun ekki greidd.

  

5 Seldi í Sjóði 9 sama dag og neyðarlögin voru sett

Í byrjun októ­ber greindi Stundin frá því að Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hefði selt allar eignir sínar í Sjóði 9 hjá Glitni dag­ana 2. til 6. októ­ber árið 2008, en hann var þá þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Umfjöll­unin var unnin í sam­starfi við RME og breska fjöl­mið­il­inn Guardian og byggði á nýjum gögnum sem varpa ljósi á hluta­bréfa­sölu Bjarna í Glitni í febr­úar 2008 en hann fund­aði með banka­stjóra Glitnis tveimur dögum áður en hann byrj­aði að selja bréfin.

Enn er í gildi lög­bann á Stundina vegna umfjöll­un­ar­innar. 

 

6 Tengsl manndrápsmanna við útlendingahatur og ógnanir

Sveinn Gestur Tryggva­son var í sumar hand­tek­inn fyrir morðið á Arnari Jónssyni Aspar, en hann hafði áður ógnað og hótað fólki sem hefur sett sig á móti þjóð­ern­issinn­uðum stjórn­málum, líkt og Stundin greindi frá. Hann fang­aði því að hæl­is­leit­andi kveikti í sér og kom meðal ann­ars að heim­ili blogg­ara sem hafði haldið úti gagn­rýni á þjóð­ern­is­sinna. 

 

7 Íslendingar flytja úr landi til að geta lifað af framfærslu sinni

Stundin fjall­aði um land­flótta Íslend­inga til Spánar, en um 200 Íslend­ingar hafa keypt hús­næði á Spán­ar­ströndum það sem af er þessu ári. Þúsundir búa allt árið eða að hluta á Costa Blanca, Hvítu strönd­inni. Öryrkjar og eldri borg­arar geta lifað mann­sæm­andi lífi í stað þess að berj­ast við fátækt, en helm­ingi ódýr­ara er að lifa á Spáni en á Íslandi.

 

8 Forsætisráðherra á gráu svæði stjórnmála og viðskipta

Í mars á þessu ári rýndi Stundin í tengsl Bjarna Bene­dikts­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, við við­skipta­lífið en hann var umsvifa­mik­ill í við­skiptum sam­hliða þing­mennsku. Félög sem hann stýrði eða átti aðkomu að stefna í að skilja eftir sig tæp­lega 130 millj­arða króna af afskriftum, sem nemur næstum því tvö­faldri upp­hæð leið­rétt­ingar verð­tryggðra hús­næð­is­lána. Bjarni og faðir hans tóku ákvarð­anir um sölu hluta­bréfa þegar hann var í kjörað­stæðum til að njóta upp­lýs­inga sem almennur aðili á mark­aði hafði ekki. Síðar á árinu kom í ljós að Bjarni seldi allar eignir sínar í Sjóði 9 hjá Glitni dag­ana fyrir hrun árið 2008.

 

9 Stríðsglæpamaðurinn sem við elskuðum: Saga af glæpum og meðvirkni

Karl Th. Birg­is­son rifj­aði upp hvernig íslenska þjóðin stóð með stríðs­glæpa­manni sem stóð að skefja­lausu ofbeldi og morðum á gyð­ingum og fleirum í seinni heims­styrj­öld­inni. Morg­un­blaðið tók meðal ann­ars þá fyrir sem bentu á sann­anir í máli Eðvalds Hin­riks­sonar og tengdi þá við sov­ésku leyni­þjón­ust­una.

  

10 Draumurinn á Íslandi breytist í martröð

Með örum vexti ferða­manna­iðn­aðar á Íslandi hafa skap­ast kjörnar aðstæður fyrir brot þar sem vinnu­veit­endur nýta sér van­þekk­ingu erlendra starfs­manna. Stundin fjall­aði ítar­lega um málið og sagði sögur starfs­manna af erlendum upp­runa sem upp­lifði sig svikið. 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár