Tveir fundir og tvær sölur Bjarni Bene­dikts­son seldi hluta­bréf sín í Glitni tveimur dögum eftir að hafa fundað með banka­stjóra Glitnis um stöðu banka­kerf­is­ins í febr­úar 2008. Hinn 2. októ­ber seldi hann eignir sínar í Sjóði 9 eftir að hafa setið neyð­ar­fund um sölu Glitnis fjórum dögum áður. Mynd: Heiða Helgadóttir

Seldi í Sjóði 9 sama dag og neyðarlögin voru sett

Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi þing­maður og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, seldi allar eignir sínar í Sjóði 9 hjá Glitni dag­ana 2. til 6. októ­ber árið 2008. Þann 6. októ­ber miðl­aði hann upp­lýs­ingum um störf FME til fram­kvæmda­stjóra hjá Glitni. Ný gögn varpa ljósi á hluta­bréfa­sölu Bjarna í Glitni í febr­úar 2008 en hann fund­aði með banka­stjóra Glitnis tveimur dögum áður en hann byrj­aði að selja bréfin.

Bjarni Bene­dikts­son, núver­andi for­sæt­is­ráð­herra og þáver­andi alþing­is­maður, seldi fyrir rúm­lega 50 millj­ónir króna í  Sjóði 9 hjá Glitni banka dag­ana 2. til 6. októ­ber árið 2008 og bjarg­aði þannig sjálfum sér frá því að tapa pen­ingum í banka­hrun­inu dag­ana á eftir. Bjarni hafði á þessum tíma, vegna stöðu sinnar sem þing­maður, aðgang að upp­lýs­ingum um raun­veru­lega stöðu Glitnis vegna þátt­töku sinnar á fundum um slæma stöðu bank­ans og fjár­mála­kerf­is­ins í heild. 

Sama dag, 6. októ­ber, miðl­aði Bjarni upp­lýs­ingum um vinnu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins í aðdrag­anda banka­hruns­ins til fram­kvæmda­stjóra hjá Glitni, sem er vinur hans. Faðir Bjarna, Benedikt Sveins­son, og föð­ur­bróðir hans, Einar Sveins­son, seldu einnig  í Sjóði 9 dag­ana fyrir banka­hrunið 2008. 

Upp­lýs­ing­arnar um sölu Bjarna Bene­dikts­sonar og ætt­ingja hans á eign­unum í Sjóði 9 og tölvu­pósts­sam­skiptin við starfs­mann Glitnis koma fram í gögnum innan úr Glitni banka sem Stundin hefur undir höndum og vinnur úr í sam­starfi við Reykja­vík Media og breska blaðið Guardian.

„Ég átti á sínum tíma eitt­hvað í Sjóði 9 en ég man ekki eftir því að það hafi verið eitt­hvað sem mig rekur minni til að hafi skipt ein­hverju máli.“

Í við­tali í þætt­inum Víg­lín­unni á Stöð 2 í des­em­ber í fyrra sagði Bjarni Bene­dikts­son, aðspurður um hvort hann sjálfur hefði átt í Sjóði 9 og selt eitt­hvað sjóðnum dag­ana fyrir banka­hrunið: „Ekkert sem skiptir máli. Ég átti á sínum tíma eitt­hvað í Sjóði 9 en ég man ekki eftir því að það hafi verið eitt­hvað sem mig rekur minni til að hafi skipt ein­hverju máli.“

Bjarni svar­aði spurn­ing­unni því hvorki ját­andi né neit­andi. Ljóst er hins vegar að hann seldi fyrir umræddar 50 millj­ónir. 

Gengið frá söl­unni 2. októ­berGengið var frá sölu Bjarna á hlut­deild­ar­skír­teinum hans í Sjóði 9 þann 2. októ­ber í kerfum Glitnis eins og þessi mynd mynd sýnir. Salan átti hins vegar ekki að ganga í gegn fyrr en 6. októ­ber.

„Búið að losa Sj9.“

Bjarni sat neyðarfundinn   

Þegar Bjarni seldi þessar eignir sínar hafði íslenska ríkið sagst ætla að yfir­taka 75 pró­senta hlut í Glitni þann 29. sept­em­ber 2008 með því að leggja bank­anum til nýtt hlutafé upp á 84 millj­arða. Margir róuð­ust þó við inn­grip rík­is­ins í Glitni og í gang fóru við­ræður um sam­ein­ingu fjár­mála­fyr­ir­tækja, til dæmis Lands­bank­ans og Glitnis.  Óróinn og spennan í fjár­mála­kerf­inu og sam­fé­lag­inu var hins vegar mikil.

Bjarni, sem á þessum tíma var meðal ann­ars í efna­hags- og skatta­nefnd, sat fundi á þessum tíma þar sem erfið staða Glitnis var rædd. Hann var einn þriggja þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem sat neyð­ar­fund um fram­tíð Glitnis í höf­uð­stöðvum Stoða, stærsta hlut­hafa Glitnis, nótt­ina áður en íslenska ríkið fékk bank­ann í fangið þann 29. sept­em­ber 2008. Frá þess­ari aðkomu Bjarna var greint í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis. Á fund­inum kom fram að staða Glitnis væri „gríð­ar­lega alvar­leg“ eins og haft var eftir einum fund­ar­manni í skýrsl­unni. 

Seldi fjórum dögum eftir fundinn

Bjarni útskýrði veru sína á neyð­ar­fund­inum með þeim orðum að Þor­steinn Már Bald­vins­son, stjórn­ar­for­maður Glitnis, hefði beðið hann að sitja fund­inn: „Stjórn­ar­for­maður Glitnis [Þor­steinn Már Bald­vins­son] óskaði eftir því við Kristján Þór Júl­í­us­son að hann, ég og Illugi kæmum til fundar við hann í þeim til­gangi að útskýra hvað væri að ger­ast í bank­anum og sam­skiptum hans við stjórn­völd. Við fórum þrír á fund­inn seint á sunnu­dags­kvöldið, ég hygg að það hafi verið milli kl. 11 og 12, og þar gerði Þor­steinn Már grein fyrir sjón­ar­miðum bank­ans vegna þeirrar alvar­legu stöðu sem var uppi. Þessi fundur stóð ekki lengi en á honum voru einnig Lárus Welding og lög­maður bank­ans. Meg­in­til­efni fund­ar­ins var ósk bank­ans um að fá að upp­lýsa okkur um sína hlið mála. Við þeirri beiðni var sjálf­sagt að verða.“

Bjarni sat fund­inn sem þing­maður og hafði í krafti þeirrar stöðu sinnar aðgang að upp­lýs­ingum um stöðu Glitnis beint innan úr bank­anum sjálfum. Staða Glitnis á þessum tíma var ein­föld, svo vitnað sé í tölvu­póst sem Össur Skarp­héð­ins­son sendi til Þórunnar Svein­bjarn­ar­dóttur umhverf­is­ráð­herra aðfara­nótt 29. sept­em­ber: „Kost­irnir voru að láta Glitni fara í þrot eða „beila“ hann út. 

Fjórum dögum eftir að hafa setið þennan neyð­ar­fund um stöðu Glitnis 28. sept­em­ber, þann 2. októ­ber 2008, byrj­aði Bjarni Bene­dikts­son að selja hlut­deild­ar­skír­teini sín í Sjóði 9 hjá Glitni. 

Vitneskja á vitorði fárra

Á þessum tíma lá þó ekki fyrir að  sett yrðu neyð­ar­lög á Íslandi og að allt banka­kerfið myndi hrynja til grunna. Raunar hafði það komið mörgum í opna skjöldu þegar Geir H. Haarde til­kynnti á blaða­manna­fundi, rétt fyrir mið­nætti þann 5. októ­ber, að ekki væri talin þörf á sér­stökum aðgerða­pakka vegna ástands fjár­mála­kerf­is­ins. Líkt og lof­orð rík­is­ins um hlutafé fyrir Glitni höfðu gert nokkrum dögum áður róuðu orð Geirs marga.

Vinna hafði hins vegar staðið yfir í Fjár­mála­eft­ir­lit­inu og við­skipta­ráðu­neyt­inu við gerð frum­varps­ins til neyð­ar­lag­anna í nokkra daga þegar þetta var og voru utan­að­kom­andi lög­menn meðal ann­ars kall­aðir til þeirrar vinnu, eins og fram kemur í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis. 

Þegar mark­aðir voru opn­aðir mánu­dag­inn 6. októ­ber var það því aðeins á vit­orði þröngs hóps úr stjórn­kerf­inu og við­skipta­líf­inu hver stærð­argráða vandi íslenska fjár­mála­kerf­is­ins var. Í hádeg­inu 6. októ­ber var sagt frá því í fréttum að Fjár­mála­eft­ir­litið hefði stöðvað við­skipti með hluta­bréf við­skipta­bank­anna þriggja og ann­arra fjár­mála­fyr­ir­tækja. 

Klukkan 16, eftir lokun mark­aða þann 6. októ­ber, hélt Geir H. Haarde for­sæt­is­ráð­herra ræðu sína þar sem hann bað Guð að blessa Ísland og dag­ana á eftir yfir­tók Fjár­mála­eft­ir­litið Glitni og Lands­bank­ann, Glitni þann 7. októ­ber og Kaupþing tveimur dögum síðar. Banka­hrunið á Íslandi var skollið á.  

Gekk frá sölunni 2. október

Síðasta sala Bjarna á eignum sínum í Sjóði 9 átti sér því stað sama dag og Geir H. Haarde hélt fræga ræðu sína og neyð­ar­lögin voru sett. Þennan dag seldi Bjarni hlut­deild­ar­skír­teini í Sjóði 9 fyrir 21 milljón króna en þetta var síð­asti dag­ur­inn þar sem opið var fyrir við­skipti með eignir í Sjóði 9. Bjarni hafði reyndar ekki mik­inn tíma til þess að selja þennan dag þar sem sjóðnum var lokað klukkan 11.29 en þá ákvað Fjár­mála­eft­ir­litið að loka fyrir öll við­skipti með hluta­bréf íslensku við­skipta­bank­anna þriggja. Bjarni hafði því ein­ungis tím­ann frá opnun mark­aða þann dag­inn og fram til klukkan 11.29 til að selja eign­irnar í Sjóði 9. 

Samkvæmt tölvu­póstum og við­skipta­kvitt­unum frá Glitni gekk Bjarni frá söl­unni í Sjóði 9 fimmtu­dag­inn 2. októ­ber en tekið var fram að hún ætti ekki að ganga í gegn fyrr en mánu­dag­inn 6.  

Þann 2. októ­ber 2008, klukkan 20.49, sendi starfs­maður í einka­banka­þjón­ustu Glitnis tölvu­póst til þeirrar deildar Glitnis sem sá um við­skipti með Sjóð 9. Efni tölvu­pósts­ins var: „Losun á Bjarna Ben 7829 (ekki fyrr en 6.10.)“ Í tölvu­póst­inum stóð.  Hæ. Fæ ég leyfi á að selja sj 9 21.000.000 og kaupa í sj 5 og 7 í staðin.“ Þetta var sam­þykkt morg­un­inn eftir, föstu­dag­inn þriðja, og fékk starfs­maður einka­banka­þjónstunnar eft­ir­far­andi tölvu­póst frá starfs­manni í skjala­deild Glitnis: „Búið að losa Sj9.“ 

Áður hafði Bjarni selt hlut­deild­ar­skír­teini í Sjóði 9 í þrennum við­skiptum fyrir tæp­lega 30 millj­ónir króna þann 2. októ­ber.  Auk þessa hafði Bjarni selt eignir upp á 30 millj­ónir króna í skulda­bréfa­sjóðnum Sjóði 1 hjá Glitni þann 24. sept­em­ber 2008 og keypti hann norskar krónur fyrir upp­hæð­ina. Þessar 30 millj­ónir setti Bjarni í norskar krónur. 

Einn af stjórn­ar­mönn­unum í Sjóði 9, Illugi Gunn­ars­son, þáver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var einn nán­asti sam­starfs­maður Bjarna og skrif­uðu þeir tveir meðal ann­ars fræga grein í Morg­un­blaðið saman í febr­úar 2008. Í grein­inni fjöll­uðu þeir um stöð­una í íslenska banka­kerf­inu.  

„Bjarni ben segir að … fme séu á skrilljón að vinna í þessu núna … ein­hver að tala við Jónas?“ 

Miðlaði upplýsingum um störf FME til Glitnis

Klukkan 14.15 þann 6. októ­ber sendi Einar Örn Ólafsson, fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­ing­ar­banka­sviðs Glitnis og vinur Bjarna Bene­dikts­sonar, eft­ir­far­andi tölvu­póst á Atla Rafn Björns­son, aðstoð­ar­mann Lárusar Weldings, banka­stjóra Glitnis: „Bjarni ben segir að … fme séu á skrilljón að vinna í þessu núna … ein­hver að tala við Jónas?“ Með Jónasi vís­aði Einar Örn til Jónasar Fr. Jóns­sonar, for­stjóra FME. 

Ekki kemur fram um hvað nákvæm­lega Einar Örn er að tala í tölvu­póst­inum. Þennan dag var Fjár­mála­eft­ir­litið hins vegar að taka ákvörðun um hver fram­tíð Glitnis yrði og hvort raun­hæft væri fyrir ríkið að efna hluta­fjár­lof­orðið frá 29. sept­em­ber eða ekki. Ætlaði ríkið að „beila“ bank­ana út eða ekki, svo vitnað sé í orð Össurar Skarp­héð­insssonar um stöð­una.

Stjórn Glitnis sendi Fjár­mála­eft­ir­lit­inu bréf þennan dag með þeirri beiðni að hlut­hafa­fundur Glitnis yrði fluttur til þriðju­dags­ins 7. októ­ber 2008 vegna þess að Glitni vant­aði fjár­magn til að greiða lán þann dag­inn og þurfti því fjár­mun­ina frá íslenska rík­inu.

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis er fjallað um þetta og segir að svar fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins við erindi stjórnar Glitnis hafi borist klukkan 23 þann 6. októ­ber og að það hafi verið á þá leið að ekki væri hægt að svara spurn­ing­unni um hlut­hafa­fund­inn þann dag­inn. Í rann­sókn­ar­skýrsl­unni kemur jafn­framt fram að lög­menn sem unnu grein­ar­gerð um for­sendu­brest­inn í hluta­fjár­lof­orði rík­is­ins út af slæmri stöðu Glitnis hafi einnig unnið að bréfi þar sem hluta­fjár­lof­orð­inu var rift og að það hafi verið dag­sett þann 7. októ­ber. Glitnir var svo yfir­tek­inn af Fjár­mála­eft­ir­lit­inu þriðju­dag­inn 7. októ­ber eftir setn­ingu neyð­ar­lag­anna.

Mikið gekk því á þennan dag sem Bjarni og Einar Örn áttu í sam­skiptum um vinnu og aðgerðir Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Hluta­fjár­aukn­ing íslenska rík­is­ins í Glitni var síð­asta mögu­lega hálm­stráið fyrir bank­ann til að forð­ast það að hann yrði yfir­tek­inn af Fjár­mála­eft­ir­lit­inu að öllu leyti með til­heyr­andi tapi fyrir hlut­hafa og við­skipta­vini Glitnis í ein­hverjum til­fellum. Upp­lýs­ingar um stöðu máls­ins hjá FME gátu hins vegar verið gulls ígildi á þessum tíma þar sem ein­ungis tveir kostir voru í stöð­unni fyrir Glitni. Ekkert var heldur ljóst um það á þessum tíma hversu mikið tap eig­enda hlut­deild­ar­skír­teina í Sjóði 9 yrði.

„Allir skynsamir fjárfestar hefðu verið að íhuga að selja á þessum tíma.“

Tveir fundir og tvær sölurBjarni Bene­dikts­son seldi hluta­bréf sín í Glitni tveimur dögum eftir að hafa fundað með banka­stjóra Glitnis um stöðu banka­kerf­is­ins í febr­úar 2008. 2. októ­ber seldi hann eignir sínar í Sjóði 9 eftir að hafa setið neyð­ar­fund um sölu Glitnis fjórum dögum áður.

Engar innherja­upplýsingar segir Bjarni

Bjarni Bene­dikts­son segir í sam­tali við blaða­mann The Guardian, sem vinnur að mál­inu með Stund­inni, að hann hafi selt eignir í Sjóði 9 í aðdrag­ana banka­hruns­ins. Hann seg­ist ekki hafa búið yfir neinum inn­herj­a­upp­lýs­ingum um neyð­ar­lögin á þessum tíma og að sölur  í Sjóði 9 hafi verið rann­sak­aðar og ekk­ert hafi komið út úr þeim rann­sóknum. Svo segir Bjarni: „Allir skyn­samir fjár­festar hefðu verið að íhuga að selja á þessum tíma.“ Bjarni vill ekki gefa nákvæmar upp­lýs­ingar um tíma­setn­ingar og upp­hæðir í mál­inu.

Aðspurður um sam­talið við Einar Örn Ólafsson segir hann „Ég hafði enga vit­neskju um neyð­ar­lögin. Ég bjó ekki yfir neinum trún­að­ar­upp­lýs­ingum. Það getur verið að ég hafi hringt í hann en ég man ekki eftir því. En, og það sem er mik­il­væg­ast, þá hafði ég engar trún­að­ar­upp­lýs­ingar fram að færa á þessum tíma.“ 

Bjarni segir jafn­framt aðspurður að hann skilji af hverju fólki kunni að þykja við­skiptaum­svif hans á árunum fyrir hrunið að vera ein­kenni­leg og óvið­eig­andi. „Skömmu eftir þessa atburði sagði ég að það væri ekki við­eig­andi fyrir mig að halda áfram að starfa í stjórn­málum og við­skiptum á sama tíma. Ég seldi öll mín hluta­bréf, hætti starfi í stjórnum og ein­beitti mér að mínum póli­tíska ferli. Þetta hefur allt verið rann­sakað og ekki einu sinni hefur verið haft sam­band við mig út af þessu.“

Stundin gerði til­raunir til að ná í Bjarna Bene­dikts­son í gær­kvöldi til að spyrja hann frek­ari spurn­inga um málið en án árang­urs. Beiðni blaðs­ins um sam­tal við Bjarna hefur ekki verið svarað.

Faðir Bjarna og föðurbróðir seldu líka 

Faðir Bjarna, Benedikt Sveins­son, og föð­ur­bróðir hans seldu líka eignir sínar í Sjóði 9 í aðdrag­anda  banka­hruns­ins á Íslandi. Benedikt seldi eignir í Sjóði 9 fyrir tæp­lega 260 millj­ónir króna þann 27. ágúst 2008 í gegnum félag sitt Haf­silfur eign­ar­halds­fé­lag ehf. Einar Sveins­son seldi í Sjóði 9 sama dag og Bjarni, þann 6. októ­ber fyrir rúm­lega 1020 millj­ónir króna í tveimur færslum. Þetta gerði Einar í gegnum einka­hluta­fé­lag sitt Hrómund ehf. Þá kom fram í Frétta­blað­inu í des­em­ber í fyrra að Benedikt Sveins­son hefði inn­leyst eignir í Sjóði 9 og milli­fært 500 millj­ónir af reikn­ingi sínum í Glitni til Flórída þann 26. sept­em­ber 2008.

Þre­menn­ing­arnir björg­uðu því tals­verðum fjár­munum úr Sjóði 9 á þessum tíma þegar á harð­bakk­ann var farið að slá í íslenska banka­kerf­inu. Sjóðs­fé­lagar í Sjóði 9 fengu á end­anum, í lok októ­ber 2008, greitt út 85,12 pró­sent af þeim inni­stæðum sem þeir áttu í sjóðnum þann 6. októ­ber. En tekið skal fram að þetta var alls­endis óljóst á þeim tíma sem Fjár­mála­eft­ir­litið velti fyrir sér næstu skrefum í Glitn­is­mál­inu þann 6. októ­ber þar sem sem Sjóður 9 var áhættu­fjár­fest­inga­sjóður. 

Hefðu fengið minna til baka

Miðað við end­an­legar end­ur­heimtur sjóðs­fé­laga í Sjóði 9 hefði Bjarni Bene­dikts­son fengið greiddar rúm­lega 42,8 millj­ónir króna vegna eignar sinnar úr Sjóði 9 þann 30. októ­ber 2008 en í stað þess seldi hann dag­ana fyrir banka­hrunið fyrir 50,3 millj­ónir króna. Munurinn nemur 7,5 millj­ónum króna. 

Benedikt Sveins­son, eða eign­ar­halds­fé­lag hans, Haf­silfur ehf., hefði sömu­leiðis fengið rúm­lega 136 millj­ónir króna út úr Sjóði 9 í lok októ­ber ef hann hefði ekki selt hlut­deild­ar­skír­teini sín í lok ágúst 2008. Í stað­inn fékk hann rúm­lega 160 millj­ónir króna og er mun­ur­inn 24 millj­ónir króna. Eign­ar­halds­fé­lag Einars Sveins­sonar hefði fengið rúm­lega 871 milljón út úr Sjóði 9 í lok októ­ber en í stað­inn fékk það ríf­lega 1023 millj­ónir króna. Munurinn þar á milli eru 152 millj­ónir króna. 

Heild­ar­upp­hæðin sem þeir þrír forð­uðu sér frá því að tapa með sölu hlut­deild­ar­skír­tein­anna í Sjóði 9 nemur því sam­tals rúm­lega 183 millj­ónum króna. 

Átti í samskiptum við stjórnendur sjóðanna

Í gögn­unum er að finna tölvu­pósta frá 9. októ­ber 2008, þremur dögum eftir að Bjarni seldi í Sjóði 9, þar sem Bjarni Bene­dikts­son skipt­ist á skoð­unum við fram­kvæmda­stjóra og stjórn­ar­for­mann Íslands­sjóða sem ráku Sjóð 9, Öglu Hend­riks­dóttur og Eggert Þór Krist­ó­fers­son, um „hug­mynd að verndun sparifé almenn­ings“.  Agla Hend­riks­dóttir var hvata­maður að sam­skipt­unum og sendi tölvu­póst á Bjarna, Eggert og einnig Illuga Gunn­ars­son, sem sat í stjórn Glitn­is­sjóða. Hún vildi funda með þeim um málið. „Ég hef hug á að eiga fund með ykkur í dag, ásamt Eggerti Þór Krist­ó­fers­syni stjfm. Glitni Sjóða, út af tveimur hug­myndum, sem byggja á því að vernda sparifé almenn­ings og líf­eyr­is­sjóða.“

Bjarni svar­aði tölvu­pósti Öglu, spurði hvenær fund­ur­inn væri og sendi drög að frum­varpi um fjár­veit­ingar úr rík­is­sjóði vegna bankar­hruns­ins með erindi sínu: „Að neðan er hug­mynd að frum­varpi sem unnið hefur verið af nokkrum þing­mönnum með lög­mönnum. Við höfum reynt að fá það í frek­ari vinnslu í gegnum ráðu­neyti og von­andi hreyf­ist málið eitt­hvað en það ger­ist því miður hægt við þessar aðstæður.“ 

Á þeim tíma sem þetta var rætt var Bjarni sjálfur búinn að vernda sitt sparifé með því að selja eignir sínar í Sjóði 9. 

Bjarni sagði alla hafa getað selt

Þegar Bjarni var spurður að því í Víg­lín­unni í fyrra hvort allir hafi nokkuð getað selt í Sjóði 9 dag­ana fyrir banka­hrunið sagði hann: „Sjóður 9 var örugg­lega opinn öllum þar til hann var lok­aður öllum. Ef ég man rétt þá var Sjóður 9 lok­aður í tæpan mánuð en opn­aði svo aftur. En þá höfðu rétt­indin í honum líka skerst.“ 

Tækni­lega séð er þetta rétt hjá Bjarna. Munurinn á stöðu sjóðs­fé­laga í Sjóði 9 var hins vegar í ein­hverjum til­fellum að sumir þerra höfðu miklu betri aðgang að upp­lýs­ingum um stöðu Glitnis en aðrir. Fjöl­margir töp­uðu því háum fjár­hæðum á fjár­fest­ingum sínum í Sjóði 9. 

Átti 165 milljónir í Sjóði 9

Þessi við­skipti Bjarna og náinna ætt­ingja hans með eignir í Sjóði 9 í aðdrag­anda banka­hruns­ins bæt­ast við við­skipti Bjarna og föður hans með hluta­bréf í Glitni í febr­úar árið 2008. 

Sagt var frá þessum við­skiptum Bjarna og Bene­dikts í DV í mars 2011. Í við­tali við DV vildi Bjarni ekki svara því af hverju hann hefði selt bréfin á þessum tíma: „Ég mun ekki tjá mig frekar við þig um mín per­sónu­legu fjár­mál.“

Gögnin sem Stundin hefur undir höndum varpa frekara ljósi á þessi við­skipti því þar kemur fram að Bjarni hafi selt bréf sín í Glitni dag­ana 21. til 27 febr­úar. Þá seldi Bjarni hluta­bréf í Glitni fyrir rúm­lega 119 millj­ónir króna  í fimm við­skiptum og hélt eftir bréfum sem voru rúm­lega 3 millj­óna króna virði sam­kvæmt við­skipta­yf­ir­liti hans.  Í lok jan­ú­ar­mán­aðar voru hluta­bréf Bjarna tæp­lega 152 millj­óna króna virði.

Í gögn­unum kemur fram að Bjarni hafi notað hluta sölu­hagn­aðar hluta­bréf­anna í Glitni til að kaupa hlut­deild­ar­skír­teini í Sjóði 9 dag­ana 26. og 28. febr­úar fyrir tæp­lega 90 millj­ónir króna. Í mars þetta ár átti Bjarni 165 millj­ónir króna í Sjóði 9 og var stofn­inn í eigna­safni hans í bank­anum en þá var hann með 213 millj­ónir króna í eigna­stýr­ingu þar.

Fundaði með bankastjóranum tveimur dögum áður

Dag­setn­ing­arnar á sölu Bjarna á hluta­bréfum sínum í Glitni eru áhuga­verðar því tveimur dögum áður en hann byrj­aði að selja hluta­bréf sín, þann 19. febr­úar,  fund­uðu hann og Illugi Gunn­ars­son með Lárusi Welding, banka­stjóra Glitnis.

Í gögn­unum er að finna tölvu­pósta um þennan fund þar sem upp­lýs­inga­full­trúi Glitnis, Már Másson, sendir Lárusi eft­ir­far­andi tölvu­póst: „Illugi og Bjarni vilja gjarnan hitta thig a stuttum fundi. A eg ekki ad bidja Aslaugu ad finna tima a thridju­dag? Held thad væri gott ef Alex­ander væri med a fund­inum.“ Lárus vildi upp­haf­lega ekki hitta Illuga og Bjarna þann dag, þriðju­dag­inn 19. febr­úar, en Már vildi það endi­lega: „held þó að það væri gott ef þú getur gefið þér 45min í að hitta þing­menn­ina á þriðju­dag­inn.“ Lárus sam­þykkti þetta.  

Byrjaður að selja þegar greinin birtist

Í gögn­unum kemur ekki fram hvað fór fram á fundi þeirra Lárusar og Bjarna og Illuga. Ljóst er hins vegar að Bjarni fór frá því að eiga rúm­lega 150 millj­óna króna hlut í Glitni í byrjun febr­úar í að eiga rúm­lega 3 millj­óna króna hlut í bank­anum eftir að hann fund­aði með banka­stjór­anum.  

Þá er líka ljóst að á sama tíma og Bjarni og Illugi skrif­uðu grein sína frægu um erf­iða stöðu íslenska banka­kerf­is­ins þann 26. febr­úar var Bjarni að ljúka við sölu hluta­bréfa sinna í Glitni – síð­asta salan fór fram dag­inn eftir, fyrir 35,8 millj­ónir króna. Umrædd grein birt­ist á mið­opnu Morg­un­blaðs­ins þriðju­dag­inn 26. febr­úar, einni viku eftir fund Bjarna með Lárusi. Greinin hlýtur að end­ur­spegla efni fund­ar­ins að ein­hverju leyti þegar erf­iðri stöðu banka­kerf­is­ins er lýst. 

Í grein­inni sagði meðal ann­ars: „Sú hætta steðjar nú að hag­kerf­inu að ís­lensku bönk­un­um gangi illa að afla þess fjár­magns sem þeir þurfa vegna starf­semi sinn­ar á næsta ári. Ef ekk­ert breyt­ist til hins betra á fjár­magns­mark­aði og ekki tekst að auka traust er­lendra mark­aðs­að­ila verður fjár­mögn­un bank­anna óheyri­lega dýr eða í versta falli ómögu­leg.“

Þegar þessi orð voru skrifuð var Bjarni sjálfur byrj­aður að verja sig gegn erf­iðri stöðu Glitnis með því að selja hluta­bréfin sín í bank­anum. Bjarni og ætt­ingjar vörðu sig svo enn frekar fyrir tapi af banka­hrun­inu með sölu eigna sinna í Sjóði 9 í Glitni í aðdrag­anda banka­hruns­ins í októ­ber 2008, fjórum dögum eftir að Bjarni hafði setið á fundi sem þing­maður um afar erf­iða skulda­stöðu Glitnis.  

Bjarni ekki skoðaður

Samkvæmt gögnum frá slita­stjórn Glitnis sem Stundin hefur undir höndum voru ein­ungis við­skipti Benedikt Sveins­sonar og Einars Sveins­sonar í Sjóði 9 í Glitni skoðuð sem meint inn­herj­a­við­skipti eða gjafa­gern­ingar. Í gögn­unum kemur ekk­ert fram um að sam­bæri­leg skoðun hafi farið fram á mögu­legum inn­herj­a­við­skiptum Bjarna Bene­dikts­sonar hjá slita­tjórn Glitnis á þessum tíma. Stundin hefur hins vegar ekki heim­ildir fyrir hvort eft­ir­lits­að­ilar eða ákæru­valdið hafi séð tölvu­póst­inn frá Einari Erni Ólafs­syni til Atla Rafns Björns­sonar þann 6. októ­ber 2008.

Fjár­mála­eft­ir­litið vann lista með yfir­liti yfir þá sem seldu eignir sínar í Sjóði 9 í aðdrag­anda banka­hruns­ins og sendi kæru vegna þess til sér­staks sak­sókn­ara í mars 2009. Í kæru­bréf­inu frá FME sagði meðal ann­ars:  „Fjár­mála­eft­ir­litið telur að uppi sé rök­studdur grunur um að til­teknir aðilar hafi brotið gegn  ákvæðum XIII kafla laga nr. 108/2007 um með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­inga og við­skipti inn­herja. Það er mat Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að meint brot falli undir að vera meiri­háttar í skiln­ingi 1. mgr.
  148. gr. lag­anna. Nauð­syn­legt er að upp­lýsa hverjir bjuggu yfir inn­herj­a­upp­lýs­ingum á þeim tíma sem um ræðir. Fjár­mála­eft­ir­litið leggur áherslu á að mál þetta hljóti skjóta með­ferð hjá sér­stökum sak­sókn­ara þar sem um mik­il­væga almanna­hags­muni er að ræða.“ Ekki er vitað hvort nafn Bjarna Bene­dikts­sonar var í kæru­bréf­inu.

Erfið sönnunarbyrði

Í frétta­til­kynn­ingu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins kom fram að stofn­unin hafi fengið bréf frá sér­stökum sak­sókn­ara þremur árum síðar, í mars 2012, um að rann­sókn máls­ins hafi verið hætt. Hluti vand­ans kann að hafa falist í erf­iðri sönn­un­ar­byrði í málum eins og sölum í Sjóði 9. Eftir 24. sept­em­ber 2008 voru vanda­mál Glitnis orðin opin­ber og sá fjár­mögn­un­ar­vandi sem blasti við bank­anum var frétta­efni um tveggja vikna skeið fram að setn­ingu neyð­ar­lag­anna þann 6. októ­ber 2008. 

Ólafur Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari ræddi vand­ann við inn­herj­a­mál til dæmis í við­tali við Stundina og sagði þá að erfitt væri að sanna að lög­brot hefðu átt sér stað: „Þau eru erfið, þessi inn­herj­a­mál. Það verður að segj­ast alveg eins og er. Það er erfið sönn­un­ar­staða í þeim. Það þarf að sýna fram á ein­hverja teng­ingu í þessu. Við kynntum okkur aðeins til­tekin mál sem komu upp í Svíþjóð. Þá var einmitt ákært í tölu­vert mörgum inn­herja­brota­málum þar sem menn sögðu: „Aðstaðan er þessi: Þessi maður seldi, ergo, þetta hlýtur að vera inn­herj­a­mál.“ Það var sýknað í þessu öllu saman. Það voru milli eitt og tvö hund­ruð mál.“

Fjöl­margir aðilar sem seldu eignir sínar í Glitni, aðilar sem voru nátengdir Glitni og umræð­unni um erf­iða stöðu bank­ans um haustið 2008, gátu þannig selt þessar eignir án þess að það hefði nein eft­ir­mál. 

Tölublað Stund­ar­innar má lesa hér.


Bjarni ræddi við bankastjórann um lög um FME

Áralöng samskipti stjórnmálamannsins og fjárfestisins Bjarna Benediktssonar við Glitni.

Bjarni Ármanns­son

Upp­lýs­ing­arnar í gögn­unum um skoð­ana­skipti og sam­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar við Glitni og starfs­menn bank­ans eru miklar og ítar­legar. Hann skipt­ist á tölvu­póstum við stjórn­endur Íslands­sjóða sem stjórn­mála­maður; hann fundar með banka­stjóra Glitnis sem stjórn­mála­maður; skipt­ist á skoð­unum við Inga Rafnar Júl­í­us­son sem stjórn­mála­maður; ræðir við Einar Örn Ólafsson um starf­semi FME í hrun­inu 2008; ræðir um fjár­fest­ingar sínar og ætt­ingja sinna við Bjarna Mark­ús­son og aðra í einka­banka­þjón­ustu Glitnis; fær tölvu­pósta frá Hermanni Guð­munds­syni, for­stjóra N1, sem hann sendir til banka­stjóra Glitnis með við­skipta­hug­myndum vegna olíu­fé­lags­ins og fleira og fleira í þessum dúr. Bjarni átti því í sam­skiptum við Glitni bæði sem fjár­festir fyrir sína eigin hönd, fjár­festir fyrir hönd þeirra fyr­ir­tækja sem hann stýrði, BNT og N1, og líka sem stjórn­mála­maður. 

Þessi sam­skipti ná mörg ár aftur í tím­ann og er meðal ann­ars að finna tölvu­pósts­sam­skipti milli Bjarna og Bjarna Ármanns­sonar, þáver­andi banka­stjóra Glitnis, frá árinu 2005 þar sem þeir ræða saman um upp­lýs­inga­skipti um Fjár­mála­eft­ir­litið, FME. Bjarni Bene­dikts­son biður Bjarna Ármanns­son um athuga­semdir og hug­myndir við laga­frum­varp hvernig Fjár­mála­eft­ir­litið geti bætt upp­lýs­inga­gjöf sína. Þing­maður var sem sagt að biðja banka­stjóra í banka sem lýtur eft­ir­liti FME um athuga­semdir um laga­frum­varp um FME. Tölvu­póst­arnir hljóm­uðu svona:

From: Bjarni Bene­dikts­son [mailto:bjarniben@althingi.is]
Sent: 31. jan­úar 2005 16:00
To: 500 BSTJ Bjarni Ármanns­son
Subject: Uppgjör ofl

„Sæll,
Takk fyrir síð­ast, gaman að þið skilduð koma í Garða­bæ­inn. Við sem að þessu stóðum vorum mjög ánægðir með kvöldið.

Aðaler­indið er hins vegar að óska þér og þínu fólki til ham­ingju með glæsi­legan árangur á síð­asta ári. Fram­úr­skar­andi nið­ur­staða.

Nú er að koma fram nýtt frum­varp til breyt­inga á lögum um verð­bréfa­við­skipti. Þar verður m.a. komið inn á þau atriði sem við ræddum varð­andi upp­lýs­inga­gjöf­ina hjá FME. Ekki hika við að senda á mig athuga­semdir eða ábend­ingar varð­andi það mál þegar fram í sækir eða önnur sem snerta þetta svið.

Bestu kv.
Bjarni“

From: "500 BSTJ Bjarni Ármanns­son"
To: Bjarni Bene­dikts­son
Subject: =?utf-8?B?UkU6IFVwcGdqw7ZyIG9mbA==?=
Date: Sat Feb 05 22:01:05 2005 GMT

„Sælir og takk fyrir síð­ast sömu­leiðis. Þetta var frá­bært þorra­blót.

Og takk fyrir ham­ingju­óskir varð­andi rekstr­ar­ár­angur. Þetta er sterkur hópur í ´bank­anum og Sjóvá og við alltaf að gera breyt­ingar til að styrkja stöð­una. Ég er nokkuð bjart­sýnn á fram­haldið. Já, það væri gott að geta rennt á þig hug­leið­ingum varð­andi verð­bréfa­við­skipta­frum­varpið og annað sem þessum málum teng­ist.

Bestu kveðjur,
Bjarni“


Tímalína

Viðskipti Bjarna ­og ættingja hans í Glitni í aðdraganda hrunsins

Bjarni Benediktsson, Benedikt Sveinsson og Einar Sveinsson seldu allir í Sjóði 9.

8. febr­úar
Bjarni Bene­dikts­son tekur þátt í flétt­unni sem kennd er við Vafning

12. febr­úar
Benedikt Sveins­son selur hluta­bréf í Glitni fyrir rúmar 49 millj­ónir

15. febr­úar
Benedikt Sveins­son selur hluta­bréf í Glitni fyrir 216 millj­ónir

19. febr­úar
Bjarni fundar með Lárusi Welding ásamt Illuga Gunn­ars­syni

21. febr­úar
Bjarni byrjar að selja hluta­bréf sín í Glitni

22. febr­úar
Bjarni selur bréf í Glitni

25. febr­úar
·  Bjarni selur bréf í Glitni
·  Benedikt Sveins­son selur eignir í Sjóði 9 fyrir 432 millj­ónir

26. febr­úar
Bjarni skrifar grein í Morg­un­blaðið með Illuga Gunn­ars­syni um erf­ið­leika í íslenska banka­kerf­inu

27. febr­úar
Síðasta sala Bjarna Bene­dikts­sonar í Glitni - 35,8 millj­ónir

23. sept­em­ber
Nordea hættir við að kaupa eignir Glitnis í Noregi og Bayerische Land­es­bank hafnar fram­leng­ingu tveggja lána Glitnis upp á 150 millj­ónir evra. Glitnir þarf að end­ur­greiða 600 millj­óna króna lán um miðjan októ­ber.

24. sept­em­ber
· Þor­steinn Már Bald­vins­son, stjórn­ar­for­maður Glitnis, óskar eftir fundi með Davíð Oddssyni seðla­banka­stjóra til að óska eftir láni fyrir Glitni.
· Bjarni leysir út 30 millj­ónir í Sjóði 1.

26. sept­em­ber
Benedikt Sveins­son milli­færir 500 millj­ónir frá reikn­ingi sínum í Glitni til Flórída.

27. sept­em­ber
Benedikt Sveins­son inn­leysir 160 millj­ónir úr Sjóði 9.

28. sept­em­ber 
Bjarni situr neyð­ar­fund í höf­uð­stöðvum Stoða þar sem rætt er um stöðu Glitnis.

29. sept­em­ber
Íslenska ríkið seg­ist ætla að leggja Glitni til hlutafé til að bjarga bank­anum frá hruni. Vandræði Glitnis opin­ber.

2. októ­ber
·  Bjarni selur fyrir tæpar 30 millj­ónir í Sjóði 9.
·  Bjarni fyr­ir­skipar sölu úr Sjóði 9 fyrir 21 milljón þann 6. októ­ber.

5. októ­ber 
Geir H. Haarde heldur blaða­manna­fund þar sem hann segir ekki til­efni til að ríkið komi með sér­stakan aðgerða­pakka út af stöðu banka­kerf­is­ins.

6. októ­ber
·  Bjarni selur fyrir 21 milljón í Sjóði 9.
·  Bjarni á í sam­skiptum við Einar Örn Ólafsson í Glitni um vinnu FME.
·  Einar Sveins­son selur fyrir 1023 millj­ónir í Sjóði 9.
·  Geir H. Haarde mælir fyrir neyð­ar­lög­unum vegna banka­hruns­ins og Alþingi stað­festir þau.

7. októ­ber
·  Fjár­mála­eft­ir­litið yfir­tekur Glitni og hlutafé hlut­hafa bank­ans verður verð­laust.
·  Fjár­mála­eft­ir­litið yfir­tekur Lands­banka Íslands.
·  Fjár­mála­eft­ir­litið yfir­tekur Kaupþing.

31. októ­ber 
Eigendur hlut­deild­ar­skír­teina í Sjóði 9 fá greidd 85,12 pró­sent af inni­stæðum sínum á loka­degi við­skipta með sjóð­inn þann 6. októ­ber.


Hvað var Sjóður 9?

Illugi Gunnarsson, vinur og samflokksmaður Bjarna, var stjórnarmaður í Sjóði 9.

Sjóður 9, pen­inga­mark­aðs­sjóður var fjár­fest­ing­ar­sjóður í stýr­ingu Glitnis. Sjóð­ur­inn fjár­festi aðal­lega í íslenskum skulda­bréfum. Innan Sjóðs 9 voru svo aðrar deildir sem fjár­festu í erlendum eignum og gjald­miðlum.

Árið 2005 voru fjár­fest­ingar sjóðs­ins aðal­lega í rík­is­tryggðum verð­bréfum og verð­bréfum banka og spari­sjóða. Þetta byrj­aði svo að breyt­ast veru­lega árið 2006 þegar sjóð­ur­inn byrj­aði að fjár­festa mikið í verð­bréfum, ekki síst skulda­bréfum fyr­ir­tækja sem tengd­ust Glitni. Í lok árs 2007 voru verð­bréfa­eignir Sjóðs 9 tæpir 82 millj­arðar króna og hafði fimm­fald­ast á einu ári. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis er fjallað um það að árið 2007 hafi 73 pró­sent eigna sjóðs­ins verið bundin í verð­bréfum félaga sem tengd­ust Glitni og sem voru eig­endur bank­ans. Í skýrsl­unni er þessi stað­reynd sögð „slá­andi“.Þetta voru félög eins og Baugur. Hagar, Landic Property, FL Group og Gnúpur. Svo segir í skýrsl­unni: „Í sjóðnum varð því gríð­ar­leg sam­þjöppun eigna í félögum sem voru aug­ljós­lega nátengd hvort sem er rekstr­ar­lega og/eða gegnum eign­ar­hald. Það mátti því ætla að það hefði mark­tæk áhrif á greiðslu­getu félag­anna ef kæmi til gjald­þrots eins aðila.“

Vegna eigna­sam­setn­ing­ar­innar í Sjóði 9 var ljóst að fall Glitnis banka myndi koma sér afskap­lega illa fyrir sjóð­inn þar sem tengslin á milli fjár­fest­inga sjóðs­ins og eig­enda Glitnis voru svo mikil. Sjóður 9 hefði ekki getað staðið af sér fall Glitnis og hlut­hafa hans vegna þess að sjóð­ur­inn stóð og féll með bank­anum. Öðru máli hefði gegnt til dæmis ef 73 pró­sent eigna Sjóðs 9 hefði til dæmis verið í rík­is­skulda­bréfum.

Sá sem hafði upp­lýs­ingar um að Glitnir myndi ekki fá hluta­fjár­fram­lag frá rík­inu í októ­ber­byrjun 2008 gat því nán­ast gefið sér að Glitnir yrði yfir­tek­inn af rík­inu og hlutafé bank­ans yrði skrúfað niður í 0 með til­heyr­andi tapi fyrir hlut­hafa bank­ans og verð­falli á öllum eignum sem tengd­ust þeim, meðal ann­ars skulda­bréf­unum sem mynd­uðu Sjóð 9 að stóru leyti.

Eftir banka­hrunið var óljóst hversu miklar end­ur­heimtur sjóðs­fé­laga í Sjóði 9 yrðu. Lokað var fyrir við­skipti með hlut­deild­ar­skír­teini í sjóðnum frá 29. sept­em­ber til 1. októ­ber vegna erf­ið­leika Glitnis. Eignir sjóðs­ins rýrn­uðu þá um 7 pró­sent. Svo var opnað aftur á við­skipti með sjóð­inn þann 1. októ­ber og þar til 6. októ­ber en bæði Bjarni og Einar seldu allar eignir sínar í sjóðnum þá. Í lok októ­ber fengu sjóðs­fé­lagar 85,12 pró­sent greiðslu upp í inni­stæður sínar í sjóðnum frá Glitni miðað við verð­mæti eigna þeirra við lokun sjóðs­ins þann 6. októ­ber.

Illugi Gunn­ars­son, þáver­andi þing­maður og náinn sam­starfs­maður Bjarna Bene­dikts­sonar, var stjórn­ar­maður í Sjóði 9 og vék hann meðal ann­ars af þingi tíma­bundið kjör­tíma­bilið 2009 til 2013 vegna rann­sóknar á Sjóði 9. Sagði Illugi meðal ann­ars að seta hans í stjórn­inni hefði skaðað sig póli­tískt: „Engum vafa er und­ir­orpið að stjórn­ar­seta mín í pen­inga­mark­aðs­sjóðum Glitnis hefur skaðað mig póli­tískt.“ 


Einar Örn vildi að Bjarni fengi ferðapunktana

Bjarni Benediktsson, Einar Örn Ólafsson og Fjármálaeftirlitið.

Einar Örn Ólafsson
Einar Örn Ólafsson

Bjarni Bene­dikts­son átti í tals­verðum sam­skiptum við Einar Örn Ólafsson, fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tækja­sviðs Glitnis, sam­kvæmt gögn­unum og var það Einar Örn sem miðl­aði upp­lýs­ing­unum um sam­talið við Bjarna um vinnu FME til banka­stjóra Glitnis þann 6. októ­ber 2008. Einar Örn er vinur Bjarna til margra ára og var stuðn­ings­manna­fé­lag Bjarna fyrir þing­kosn­ing­arnar 2007 skráð á heim­ili Einars Arnar við Einimel í Reykja­vík.

Einar Örn og Bjarni skipu­lögðu til dæmis utan­lands­ferðir saman í boði Glitnis. Í eitt skiptið Í einum tölvu­pósti biður Einar Örn sam­starfs­konu sína hjá Glitni að panta flug og hótel til London fyrir sig, Bjarna og Hermann Guð­munds­son, for­stjóra N1, í febr­úar árið 2006:

„Sæl,
get­urðu bókað mig og tvo félaga til London:

Út 20. feb, seinni vél
Heim 24. feb, fyrri vél

Ferða­fé­lagar:
Bjarni Bene­dikt­son - 260170-5549
Hermann Sævar Guð­munds­son - 200162-4049
(muna að gefa þeim ferða­punkta eins og okkur hinum)

Og Bjarni Jóh kemur líka með, veit ekki hvenær hann vill fljúga út.

Við erum að fara á völl­inn eins og svo margir, en höfum reyndar annað erindi líka. Hvar gistir allt liðið? Senni­lega ágætt að vera bara á sama stað og þeir, eða hvað BJ? Viltu frekar vera á Sand­er­son?

Kveðja,
Einar Örn“

Bjarni og Einar Örn áttu líka í sam­skiptum um ýmiss konar við­skipti og Bjarni leit­aði til Einars Arnar varð­andi ráð­gjöf með við­skipta­mál. Slíka tölvu­pósta er að finna í gögn­unum.

Eftir myndun rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins árið 2013 skip­aði Bjarni Bene­dikts­son einn nán­asta við­skipta­fé­laga Einars Arnar, Höllu Sigrúnu Hjart­ar­dóttur, sem for­mann stjórnar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Einar Örn og Halla Sigrún eiga saman eign­ar­halds­fé­lag sem heitir Fiski­sund ehf., sem var stofnað utan um fjár­fest­ingu í lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Fjarða­laxi sem sam­ein­að­ist Arn­ar­laxi í fyrra og fyr­ir­tæki þeirra hagn­að­ist um vel á annan millj­arð króna. Áður höfðu þau Einar Örn unnið saman í við­skiptum með olíu­fé­lagið Skeljung sem þau högn­uð­ust einnig afar vel á og voru þau við­skipti valin við­skipti árs­ins í Frétta­blað­inu árið 2013 vegna mik­ils hagn­aðar selj­enda fyr­ir­tæk­is­ins. Skelj­ungur var seldur til fram­taks­sjóðs í rekstri Stefnis sem meðal ann­ars var í eigu líf­eyr­is­sjóða.

Halla Sigrún gegndi stjórn­ar­for­manns­starf­inu í eitt ár, frá lokum árs 2013 og út árið 2014, en lét þá af störfum eftir að greint hafði verið frá um 830 millj­óna króna hagn­aði hennar af við­skipt­unum með hluta­bréf Skelj­ungs. 

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Engeyingum bjargað

Bjarni fór í fjórar boðsferðir en sagðist hafa farið í tvær
RannsóknEngeyingum bjargað

Bjarni fór í fjórar boðs­ferðir en sagð­ist hafa farið í tvær

Bjarni Bene­dikts­son sagð­ist aðeins hafa farið í tvær boðs­ferðir á vegum bank­anna þegar hann var spurður árið 2009. Bjarni, sem var þing­maður á þeim tíma, var hins vegar skráður í fimm boðs­ferðir sam­kvæmt gögnum sem Stundin hefur undir höndum og fór að minnsta kosti í fjórar þeirra. Hann er einn þriggja stjórn­mála­manna sem rann­sókn­ar­skýrsla Alþingis greinir frá að hafi farið í boðs­ferðir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár