Hrun AMOC gæti verið óumflýjanlegt

Ný rann­sókn bendir til þess að hrun AMOC velti­hringrás­ar­innar gæti verið óum­flýj­an­legt. „Gerum allt sem í okkar valdi stendur til að ná nettólosun niður í núll eins fljótt og auðið er,“ segir vís­inda­maður.

Hrun AMOC gæti verið óumflýjanlegt
Óum­flýj­an­legt Hrun AMOC gæti verið óum­flýj­an­legt. Mynd: Golli

Hrun velti­hringrásar Atl­ants­hafs­ins, AMOC, gæti nú verið óum­flýj­an­legt. Þetta kemur fram í nýrri rann­sókn þar sem hópur vís­inda­fólks not­aði hermi­líkön sem mældu áhrif lofts­lags­breyt­inga á velti­hringrás­ina.

Skoðað var hvernig mis­mikil bráðnun Græn­lands­jök­uls og ólíkar tíma­setn­ingar fyrir hámark los­unar gróð­ur­húsa­teg­unda hefðu með tíu ára milli­bili árin 2005 til 2135. Gert var ráð fyrir því að þegar hámarki los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda yrði náð myndi taka 35 ár að ná nettólosun niður í núll en bráðnun Græn­lands­jök­uls myndi hald­ast stöðug.

Velti­hringrás Atl­ants­hafs­ins stuðlar að flutn­ingi hlýs yfir­borðs­sjávar norður á bóg­inn og djúp­streymi salt­rík­ari og kald­ari sjávar suður. Þökk sé þess­ari hringrás, sem Golfstraum­ur­inn er hluti af, er hærra hita­stig á Íslandi en hnatt­staða lands­ins myndi ann­ars bjóða upp á. Brotni hún niður mun kólna veru­lega í Norður-Atl­ants­hafi að mati vís­inda­manna, ólíkt þeirri hlýnun sem verður ann­ars staðar í heim­inum. Sumar rann­sóknir benda til þess að veð­ur­skil­yrði í Evrópu muni svipa til veð­ur­skil­yrði á norð­ur­heim­skauta­svæð­inu. …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Því miður ekki líklegt að neitt raunverulegt verði gert meðan heimurinn er fastur í hrútakofa stjórnmálum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Hitabylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur
Umhverfið

Hita­bylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur

„Það er mjög lík­legt að árið í ár verði eitt heitasta árið á öld­inni og næsta ár líka,“ segir Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands. Sól­þyrstir Íslend­ingar þurfa að huga að því að skipu­leggja sum­ar­frí sín út frá hita­bylgjum. Yfir­stand­andi hita­bylgju í Evrópu má tengja við AMOC-velti­hringrás­ina segir vís­inda­mað­ur­inn Stefan Rahms­torf.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár