Loftslagsógnir steðja að nánast öllum börnum heimsins

Ný skýrsla UNICEF sýnir að nán­ast öll börn í heim­inum eru útsett fyrir í það minnsta einni ógn sem steðjar að vegna lofts­lags­breyt­inga. Fyrir 1,1 millj­arð barna steðjar hætta af þremur sam­verk­andi lofts­lagsógnum.

Loftslagsógnir steðja að nánast öllum börnum heimsins
Aukin hætta lofts­lagsógna Flest börn í heim­inum eru útsett fyrir lofts­lagsógnum. Mynd: Davíð Þór

Nánast öll börn í heim­inum eru útsett fyrir í það minnsta einni ógn sem steðjar að vegna lofts­lags­breyt­inga. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF um áhættur tengdar lofts­lags­breyt­ingum gagn­vart börnum. Þar segir að líkur á lofts­lagsógnum hafi farið vax­andi hvert ár frá árinu 2015 og að búist sé við því að þær muni versna þar sem mark­mið um að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda séu ekki að ganga eftir.

Börn verða fyrir hlut­falls­lega verri áhrifum af völdum lofts­lagsógna þar sem lík­amar þeirra eru enn að þroskast og þau því ekki eins vel í stakk búin og full­orðið fólk til þess að takast á við lík­am­legt og and­legt álag sem fylgir slíkum ógnum.

Áhrifin eru gríð­ar­leg segir í skýrsl­unni, en þeirra gætir meðal ann­ars hvað varðar lík­am­lega og and­lega heilsu barna, aðgengi þeirra að menntun og lífslíkur. Þá steðjar hætta að fyrir útsett börn vegna loft­meng­unar og smit­sjúk­dóma á …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár