Samdráttur milli ára en Ísland langt frá loftslagsmarkmiðum

Ísland mun draga úr sam­fé­lags­losun um 21 pró­sent árið 2030 miðað við árið 2005 og er því langt frá lofts­lags­mark­mið­inu um 41 pró­senta sam­drátt. Losun dróst þó saman í öllum meg­in­flokkum milli ára.

Ísland mun draga úr sam­fé­lags­losun um 21 pró­sent árið 2030 miðað við árið 2005 og er því 20 pró­sentu­stigum frá settu mark­miði um 41 pró­sents sam­drátt. Þetta kemur fram í spá Umhverfis- og orku­stofn­unar um fram­reikn­aða losun en stofn­unin gaf út bráða­birgða­tölur um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda árið 2025 í dag.

Ísland hefur hingað til dregið úr sam­fé­lags­losun um 10 pró­sent miðað við árið 2005.

Sam­drátt­ur­inn um 41 pró­sent á tíma­bil­inu 2005–2030 er skuld­bind­ing Íslands í lands­á­kvörð­uðu fram­lagi sem aðild­ar­ríki að ramma­samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar. Þá skuld­bindur Ísland sig einnig við 50–55 pró­senta sam­drátt í sam­fé­lags­losun á tíma­bil­inu 2005–2035. Spáin sýnir að Ísland muni árið 2035 hafa dregið losun saman um 30 pró­sent.

Ísland hefur sett sér mark­mið um að ná fram sam­drætti í losun frá land­notkun um 400-500 þús­und tonn CO2-íg árið 2035 miðað við árið 2025. Miðað við fram­reikn­inga ætti það mark­mið að nást. 

Fram­reikn­ingar Umhverfis- og orku­stofn­unar …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Birgit Braun skrifaði
    Greinilega flokið málefni en það mætti skýra betur:
    - Ég mundi vilja sjá sundurliðun helstu lósunarþætta í tölum. Óhátt meginflokki sem þeir tilheyra.
    - Eru millilandaflugin ( ef ekki framkvæmd af íslenskum fyrirtækjum) og skemmtiferðaskipin talin með?
    - Varðandi vegasamgöngur: hvað er hlutfallið leigubíla í þessari losunarhækkun?
    - Síðan er vitað að co2 binding í skóglendi er bara tímabundin lausn og kemur ekki í stað fyrir td mýrlendi.
    0
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Skandinavar eru í fremstu röð í heiminum í skipulagningu loftslagsaðgerða. Þétt samstarf er milli landanna í þessu og árangur til fyrirmyndar. Í krafti þessa ráðleggja Skandinavar löndum víða um heim varðandi loftslagsaðgerðir. Ráðgjöf og útflutningur grænnar tækni er ein megin undirstaða efnahags landanna. Um 100 þús starfa að slíkum útflutningi í Danmörku og hagnaður er drjúgur. Hér eru Skandinavar ljósárum á undan Íslendingum. Hvers vegna taka Íslendingar ekki meiri þátt í þessu samstarfi?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Hitabylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur
Umhverfið

Hita­bylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur

„Það er mjög lík­legt að árið í ár verði eitt heitasta árið á öld­inni og næsta ár líka,“ segir Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands. Sól­þyrstir Íslend­ingar þurfa að huga að því að skipu­leggja sum­ar­frí sín út frá hita­bylgjum. Yfir­stand­andi hita­bylgju í Evrópu má tengja við AMOC-velti­hringrás­ina segir vís­inda­mað­ur­inn Stefan Rahms­torf.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár