„Það er mjög líklegt að árið í ár verði eitt heitasta árið á öldinni og næsta ár líka,“ segir Halldór Björnsson, haf- og veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. „Eitthvað af því berst til okkar.“
Undanfarið hefur banvæn hitabylgja gengið yfir heimsálfuna og hiti farið yfir 40°C í löndum á borð við Frakkland, Ítalíu og á Spáni. Í Frakklandi hafa fjörutíu manns drukknað í yfirstandandi hitabylgju og tvö börn, tveggja og fjögurra ára, fundust látin í bíl í suðausturhluta Frakklands á mánudag. Rauðar viðvaranir hafa víða verið í gildi.

Þrátt fyrir að hitabylgjur standi ekki yfir hér á landi hefur hlýnað undanfarið. „Það hlýnaði mjög mikið upp úr aldamótum og svo hefur verið mjög hlýtt síðustu áratugi og síðasta ár var metár fyrir landið,“ útskýrir Halldór. „Það er …

























































Athugasemdir