Hildur sendir bréf á starfsfólk

Borg­ar­stjóri seg­ir í bréfi til starfs­fólks að upp­sagn­irn­ar „leggi grunn að sterk­ari og betri fram­tíð fyr­ir borg­ina“. Hún boð­ar aðr­ar breyt­ing­ar, með­al ann­ars á við­veru starfs­fólks.

Hildur sendir bréf á starfsfólk
Hildur Björnsdóttir Hét því að hagræða í rekstri borgarinnar. Mynd: Bára Huld Beck

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri boðar frekari breytingar á starfsmannahaldi Reykjavíkurborgar í bréfi til starfsfólks ráðhússins í kjölfar hópuppsagnar í dag.

Starfsmennirnir unnu meðal annars í þróunarteymi og á upplýsingaskrifstofu og mannréttindaskristofu borgarinnar. Stefnt er að ráðningu í sex til sjö störf á móti 19 störfum sem verða lögð niður, en í heild snerta aðgerðirnar 27 stöðugildi af 41,8 á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara og undirskrifstofunum tveimur.

Nokkur sorg var í Ráðhúsinu í dag, enda verið að segja upp fólki sem hafði starfað þar í allt að tvo áratugi.

Í bréfi sínu til starfsfólks Ráðhússins segir Hildur að „ákvarðanir af þessu tagi snerti fólk með beinum hætti og þær [séu] hvorki einfaldar né teknar af léttúð,“ en frekari breytingar séu framundan.

„Við munum einnig gera ákveðnar áherslubreytingar sem snúa að viðveru, ráðningum og ferðalögum. Þær breytingar verða kynntar betur á næstunni,“ segir Hildur.

Þá boðar borgarstjóri nýjar aðgerðir til niðurskurðar.  

„Á …

Kjósa
-5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    þetta er eins og var vitað hreinsanirnar eru komnar á fullt flokksgæðingar koma í staðinn sem verktakar það heitir að útvista störfm á máli þessa glataða meirihluta sem mest er mánaðmóta fólk á hugsjona annars en gróðasjónamiða. þau gefa skít i okkur og fjölga bara atvinnulausum þetta eru hugsjónir kapitalista
    0
  • CV
    Caroline Verdonk skrifaði
    Borg sem er stjórnað eins og fyrirtæki. Nýr forstjóri kemur inn, segir upp fullt af fólki til að sýna vald. Aðeins til að uppgötva að hann hefur skapað ringulreið og misst mikilvæga þekkingu frá starfsfólkinu sem var sagt upp, áður en breytingarnar eru gerðar til að skapa þá stöðu sem óskað var eftir. Þessi aðferð hefur reynst afar óhagkvæm og kostnaðarsöm. En mannréttindaráðið var fjarlægt, svo þeir náðu markmiði sínu...
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Hver fékk hvað við samningaborðið í Reykjavík?
Greining

Hver fékk hvað við samn­inga­borð­ið í Reykja­vík?

Lang­flest lof­orð í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni koma frá Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Við­reisn kem­ur við sögu á völd­um svið­um, einkum hús­næð­is- og skipu­lags­mál­um, en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist minnst sýni­leg­ur. Nokk­ur lof­orð í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni er ekki að finna hjá nein­um flokk­anna þriggja, einkum þau sem snúa að smá­at­rið­um í rekstri borg­ar­inn­ar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár