Ari Edwald nýr stjórnarformaður Orkuveitunnar

Oddviti Mið­flokks­ins tekur við stjórn­ar­for­mennsku í næst stærsta orku­fyr­ir­tæki lands­ins, eftir til­kynn­ingu Hildar Björns­dóttur.

Ari Edwald nýr stjórnarformaður Orkuveitunnar
Ari Edwald Hefur langa sögu að baki í við­skipta­líf­inu. Mynd: Golli

Ari Edwald, odd­viti Mið­flokks­ins í Reykja­vík, hefur verið kjör­inn stjórn­ar­for­maður Orku­veitu Reykja­víkur, sem er í eigu almenn­ings.

Nið­ur­staðan var til­kynnt í dag, en Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, til­kynnti um til­boð sitt til Ara þegar nýr meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Fram­sókn­ar­flokks var til­kynntur í vor.

Vara­for­maður er Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi frétta­maður.

Orku­veitan er að 93,5% leyti í eigu Reykja­vík­ur­borgar, en Akra­nes­kaup­staður á 5,5% og Borg­ar­byggð tæpt pró­sent. For­stjóri Orku­veit­unnar er Sævar Freyr Þrá­ins­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Akraness. Það eru sveit­ar­stjórnir eig­end­anna sem kjósa í stjórn. Orku­veitan er næst stærsta orku­fyr­ir­tæki lands­ins á eftir Lands­virkjun.

Bæði Ari og Sævar hafa verið for­stjórar fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins 365, sem var for­veri Sýnar.

Ferill í atvinnulífinu

Ari er 62 ára gam­all lög­fræð­ingur með MBA-gráðu. Hann var áður með­limur í Sjálf­stæð­is­flokknum og búsettur í Portúgal, en flutti sig um set og flokk fyrir fram­boð á vegum Mið­flokks­ins í vor.

Ari var um skeið fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Sem slíkur sagði hann sam­tökin úr nátt­úru­vernd­ar­sam­tök­unum Land­vernd árið 2002. „Samtök atvinnu­lífs­ins geta ekki starfað með sam­tökum sem taka jafn ein­hliða afstöðu gegn nýt­ingu orku­linda lands­ins, eins og fram hefur komið að und­an­förnu,“ sagði hann þá í yfir­lýs­ingu. 

Hann var for­stjóri MS frá árinu 2015 og þurfti sem slíkur að svara fyrir sam­keppn­is­brot félags­ins.

Ari fór í tíma­bundið leyfi frá Ísey útflutn­ingi, dótt­ur­fé­lagi Auðhumlu, eig­anda Mjólk­ur­sam­söl­unnar 2022 og var sagt upp störfum í kjöl­farið.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafði á stefnu­skrá sinni að selja kolefn­is­föng­un­ar­fé­lagið Carbfix og inn­viða­fé­lagið Ljós­leiðar­ann úr Orku­veit­unni.

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri greindi frá því í Viðey 27. sam­hliða kynn­ingu á nýrri borg­ar­stjórn. 

„Í síð­ustu vikur og í við­ræðum síð­ustu daga þá höfum við fengið að kynn­ast þeim reynslu­mikla manni sem Ari Edwald er og mér finnst ekki annað hægt en að nýta hans krafta og reynslu í þágu borg­ar­búa og Reyk­vík­inga og ég mun gera það að til­lögu minni að hann taki við stjórn­ar­for­mennsku í Orku­veitu Reykja­víkur,“ sagði Hildur. „Þar eru mörg ærin verk­efni sem bíða og hans reynsla og þekk­ing mun nýt­ast vel á þeim vett­vangi.“

Kjósa
-7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár