Hildur sendir bréf á starfsfólk

Borg­ar­stjóri segir í bréfi til starfs­fólks að upp­sagn­irnar „leggi grunn að sterk­ari og betri fram­tíð fyrir borg­ina“. Hún boðar aðrar breyt­ingar, meðal ann­ars á við­veru starfs­fólks.

Hildur sendir bréf á starfsfólk
Hildur Björns­dóttir Hét því að hag­ræða í rekstri borg­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri boðar frek­ari breyt­ingar á starfs­manna­haldi Reykja­vík­ur­borgar í bréfi til starfs­fólks ráð­húss­ins í kjöl­far hóp­upp­sagnar í dag.

Starfs­menn­irnir unnu meðal ann­ars í þró­un­arteymi og á upp­lýs­inga­skrif­stofu og mann­rétt­inda­skristofu borg­ar­innar. Stefnt er að ráðn­ingu í sex til sjö störf á móti 19 störfum sem verða lögð niður, en í heild snerta aðgerð­irnar 27 stöðu­gildi af 41,8 á skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara og und­ir­skrif­stof­unum tveimur.

Nokkur sorg var í Ráð­hús­inu í dag, enda verið að segja upp fólki sem hafði starfað þar í allt að tvo ára­tugi.

Í bréfi sínu til starfs­fólks Ráð­húss­ins segir Hildur að „ákvarð­anir af þessu tagi snerti fólk með beinum hætti og þær [séu] hvorki ein­faldar né teknar af léttúð,“ en frek­ari breyt­ingar séu framundan.

„Við munum einnig gera ákveðnar áherslu­breyt­ingar sem snúa að við­veru, ráðn­ingum og ferða­lögum. Þær breyt­ingar verða kynntar betur á næst­unni,“ segir Hildur.

Þá boðar borg­ar­stjóri nýjar aðgerðir til nið­ur­skurðar.  

„Á …

Kjósa
-5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    þetta er eins og var vitað hreinsanirnar eru komnar á fullt flokksgæðingar koma í staðinn sem verktakar það heitir að útvista störfm á máli þessa glataða meirihluta sem mest er mánaðmóta fólk á hugsjona annars en gróðasjónamiða. þau gefa skít i okkur og fjölga bara atvinnulausum þetta eru hugsjónir kapitalista
    0
  • CV
    Caroline Verdonk skrifaði
    Borg sem er stjórnað eins og fyrirtæki. Nýr forstjóri kemur inn, segir upp fullt af fólki til að sýna vald. Aðeins til að uppgötva að hann hefur skapað ringulreið og misst mikilvæga þekkingu frá starfsfólkinu sem var sagt upp, áður en breytingarnar eru gerðar til að skapa þá stöðu sem óskað var eftir. Þessi aðferð hefur reynst afar óhagkvæm og kostnaðarsöm. En mannréttindaráðið var fjarlægt, svo þeir náðu markmiði sínu...
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár