„Fólk á svipaðri línu“

Oddvitar flokk­anna í nýjum meiri­hluta í borg­inni eru að sumu leyti steyptir úr sama mót­inu.

„Fólk á svipaðri línu“
Einar og Björg Einar Þor­steins­son og Björg Magn­ús­dóttir unnu saman á Rík­is­út­varp­inu og hún varð síðar aðstoð­ar­maður hans við borg­ar­stjórn. Mynd: Golli

Oddvitum flokk­anna í Reykja­vík sem mynd­uðu meiri­hluta í Viðey í morgun var tíð­rætt um sterk tengsl sín á milli.

„Við erum fólk á svip­aðri línu,“ sagði Björg Magn­ús­dóttir, odd­viti Við­reisnar, og nýr for­seti borg­ar­stjórnar.

Aðeins tvo daga tók að mynda meiri­hluta­sam­komu­lag og ein stærsta spurn­ingin var, eins og í kosn­ing­unum, hvort þau væru á sömu línu varð­andi svo­kall­aða borg­ar­línu, lyk­il­hlut­ann í sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, sem nú verður end­ur­skoð­aður í „sam­tali“.

„Á milli þeirra odd­vita sem hér standa ríkir mikið traust og mik­ill trún­aður,“ sagði Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri, sem setur hefur í átta ár í borg­ar­stjórn í minni­hluta.

Björg sagði nýja meiri­hlut­ann vera „hóp nýrra stjórn­mála­manna“. Undir það tók Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins og nú for­maður borg­ar­ráðs, sem sagði þau vera „nýja kyn­slóð stjórn­mála­manna“. Hann sagði þetta „tíma­mót í sögu Reykja­víkur“. 

„Nið­ur­staða kosn­ing­anna var mjög afger­andi. Fólk vill nýtt upp­haf í Reykja­vík,“ sagði Einar Þor­steins­son, en flokkur hans tap­aði mestu fylgi á milli ára, missti þrjá af fjórum full­trúum og fór úr í 18,7% fylgi í 6,9%.

Hildur valdi að mynda eins manns meiri­hluta með tveimur flokkum, þar af einum sem  sleit meiri­hluta á síð­asta kjör­tíma­bili, í stað þess að velja sam­starf við einn flokk, Mið­flokk­inn.

Aðeins tvo daga tók að móta sam­starfið. Áður hafði verið haft á orði að odd­vitar þess­ara þriggja flokka og Sam­fylk­ing­ar­innar til við­bótar, væru af svip­uðum meiði. Hildur sagði traustið lyk­il­at­riði. „Og það skiptir máli inn í kjör­tíma­bilið sem er framundan vegna þess að við erum að koma úr kjör­tíma­bili mik­ils óstöð­ug­leika.“

Þau þrjú eiga marga sam­eig­in­lega þræði.

Þríeykið í ViðeyVel fór á með Hildi Björns­dóttur, Björgu Magn­ús­dóttur og Einari Þor­steins­dóttur við kynn­ingu nýs meiri­hluta í Viðey í morgun.

Keimlíkur ferill oddvita

Hildur Björns­dóttir er fædd 1986 og hefur setið í borg­ar­stjórn frá árinu 2018. Hún var for­maður stúd­enta­hreyf­ing­ar­innar Vöku, eins og Einar Þor­steins­son, og for­maður Stúd­enta­ráðs. Þegar hún var barn ætl­aði hún sér að verða for­sæt­is­ráð­herra. Hildur útskrif­að­ist úr Verzlunarskólanum 2006. Hún tók BA-gráðu í stjórn­mála­fræði, eins og Björg og Einar, en bætti við sig lög­fræð­inni og hér­aðs­dóms­lög­manns­rétt­indum, eins og margir með­limir Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hún er búsett í Vest­ur­bænum í póst­núm­eri 107.

Björg Magn­ús­dóttir er fædd ári fyrr, 1985, gekk líka í Verzlunarskólann, tók einnig BA-próf í stjórn­mála­fræði en til við­bótar meistara­gráðu í hag­nýtri menn­ing­ar­miðlun. Hún var for­maður Stúd­enta­ráðs fyrir Röskvu, sem eru talin sam­tök vinstri­s­inn­aða stúd­enta. Þá er hún athafna­stjóri hjá Siðmennt, búsett í Smá­í­búða­hverf­inu í póst­núm­eri 108.

Einar Þor­steins­son er fæddur 1978, gekk í Mennta­skól­ann í Reykja­vík, lærði stjórn­mála­fræði, eins og Björg, en var í stjórn Vöku, félags hægri­s­inn­aðra nem­enda. Hann býr í Selja­hverf­inu, í póst­núm­eri 109.

Einar var skráður í Sjálf­stæð­is­flokk­inn lengi vel og var for­maður Félags ungra sjálf­stæð­is­manna í Kópavogi áður en hann hóf störf á Rík­is­út­varp­inu, þar sem hann vann á tíma­bili ásamt Björgu Magn­ús­dóttur, sem síðar átti eftir að verða aðstoð­ar­maður hans eftir kosn­inga­sigur Fram­sóknar í borg­inni 2022. Athygli vakti að á meðan hún sinnti því starfi mætti hún á hverfa­fund Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár