Þetta ætla þau að gera í Reykjavík

Hildur Björns­dóttir, nýr borg­ar­stjóri í Reykja­vík, boðar breyt­ingar. Borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­inn aug­lýsir eftir „vinnu­stöðum til sam­starfs um rekstur leik­skóla“. Boðuð eru ný hverfi, útgjöld og tekju­skerð­ing.

Þetta ætla þau að gera í Reykjavík
Nýr meiri­hluti Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri, Björg Magn­ús­dóttir, for­seti borg­ar­stjórnar til eins árs, og Einar Þor­steins­son, for­maður borg­ar­ráðs til eins árs. Mynd: Golli

Nýr meiri­hluti í Reykja­vík, undir for­ystu Hildar Björns­dóttur borg­ar­stjóra, gæti með tím­anum breytt ásýnd borg­ar­innar til muna.

Í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni birt­ast áform sem bæði auka kostnað og minnka tekjur borg­ar­innar, en ekki kemur fram hvernig það verði fjár­magnað, að öðru leyti en með áformum um „hag­ræð­ingar og stjórn­kerf­is­breyt­ingar í borg­ar­kerf­inu“. 

Fyrsta verk­efnið á lista nýs meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Fram­sókn­ar­flokks er að „aug­lýsa eftir vinnu­stöðum til sam­starfs um rekstur leik­skóla eða dag­gæslu“. Með þeim hætti ætla sam­starfs­flokk­arnir að bregð­ast við skorti á leik­skóla­plássum.

Það sem gæti haft áhrif á hvers­dags­líf fólks strax eru áform um leng­ingu opn­un­ar­tíma sund­lauga til klukkan 22, frí­stunda­styrkur fyrir tekju­lága eldri borg­ara og stytt­ing gjald­skyldu­tíma á bíla­stæðum í mið­borg­inni. Árið 2023 til­kynnti borgin um veru­lega leng­ingu á gjald­skyldu­tíma, úr klukkan 18 til 21 á virkum dögum og frá 16 til 21 á laug­ar­dögum, auk þess sem inn­leidd var gjald­taka á sunnu­dögum.

Ekki kemur fram í sam­starfs­sátt­mál­anum að „aðskota­hlutir“ verði fjar­lægðir úr bíla­stæðum, eins og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn boð­aði í kosn­inga­bar­átt­unni, en þar er um að ræða blóma­potta, bekki og mynda­sýn­ingar í stæðum mið­bæj­ar­ins.

Aukin áhersla er á einka­rekstur í stefnu nýs meiri­hluta. Þannig verður sorp­hirða, sem er á for­ræði Sorp­hirðu Reykja­vík­ur­borgar, boðin út í til­rauna­skyni.

Þá verður fast­eigna­skattur á íbúð­ar­hús­næði og atvinnu­hús­næði lækk­aður.

Breyta skipulaginu

Nýr meiri­hluti ætlar að breyta skipu­lagi borg­ar­innar. Afdrifa­rík­asta breyt­ingin liggur að lík­indum í áformum um ný hverfi á Geld­inga­nesi, Kjal­ar­nesi, Gufunesi og á land­fyll­ingum á Granda. Þá verður skipu­lagi nýrra hverfa í Keldna­landi og Úlf­arsár­dal breytt.

Gera má ráð fyrir tekjum af lóða­sölu, en einnig miklum kostn­aði við upp­bygg­ingu inn­viða nýrra hverfa, bæði gatna- og lagna­kerfis, leik­skóla og skóla.

Nýr meiri­hluti mun „hefja sam­tal við rík­is­stjórn­ina og nágranna­sveit­ar­fé­lög um end­ur­skoðun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, fjár­mögnun hans og fram­kvæmda­hraða“.

Í kosn­inga­bar­áttu hafði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn boðað flýt­ingu á Miklu­braut­ar­göngum og gjald­töku á vegum einka­að­ila.

Nýi meiri­hlut­inn kveðst ætla að „standa vörð um og efla græn svæði borg­ar­innar og ráð­ast í skóg­rækt­ar­á­tak“. 

Að sögn Hildar Björns­dóttur borg­ar­stjóra verður verk­efna­listi meiri­hlut­ans birtur á vefnum verk­efna­listi.is þann 2. júní næst­kom­andi og aðgerðir þar tölu­settar. Þar verði hann sýni­legur allt kjör­tíma­bilið. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár