Láta rýna hátt í hundrað starfandi starfshópa síðasta meirihluta

Enn eru starf­andi 80 starfs- og vinnu­hópar hjá Reykja­vík­ur­borg af tæp­lega 200 sem voru stofn­aðir á síð­asta kjör­tíma­bili. Einn hópur hefur farið þrjú ár yfir skila­frest.

Láta rýna hátt í hundrað starfandi starfshópa síðasta meirihluta
Taka til Meiri­hluti þeirra Hildar Björns­dóttur, Bjargar Magn­ús­dóttur og Einars Þor­steins­sonar ætlar að taka til hend­inni í starfs­hópum borg­ar­innar. Hátt í tvö hund­ruð hópar voru skip­aðir á síð­asta kjör­tíma­bili. Mynd: Golli

Nýr meiri­hluti Reykja­vík­ur­borgar, Viðreisn, Framsókn og Sjálf­stæð­is­flokkur, hefur lagt það verk­efni fyrir borg­ar­rit­ara í sam­vinnu við sviðs­stjóra að rýna stöðu starfs- og stýri­hópa sem og ann­arra vinnu­hópa sem stofn­aðir hafa verið með erind­is­bréfi hjá Reykja­vík­ur­borg á síð­asta kjör­tíma­bili.

Af þeim tæp­lega tvö hund­ruð stýri­hópum Reykja­vík­ur­borgar sem voru starf­ræktir á síð­asta kjör­tíma­bili hafði rúmur helm­ingur þeirra skilað nið­ur­stöðu þegar síð­asta kjör­tíma­bili lauk. Einn starfs­hópur er kom­inn þrjú ár fram yfir dag­settan skila­frest á vinnu sinni. Þetta kemur fram í bókun meiri­hlut­ans á fundi borg­ar­ráðs.

Áttatíu hópar enn við störf

Til stendur að meta hvaða starfs- og stýri­hópa ætti að leggja alveg niður, breyta og/eða end­ur­nýja erind­is­bréf eða hvort þau gildi áfram óbreytt.

Í grein­ar­gerð til­lögu meiri­hlut­ans kemur fram að erind­is­bréf tíu starf­andi stýri­hópa hafi fallið niður í lok kjör­tíma­bils­ins, sem lauk um mán­aða­mót. Enn eru starf­andi 80 starfs- og vinnu­hópar. Alls höfðu 102 starfs- og stýri­hópar lokið …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár