Nýr meirihluti í Reykjavík, undir forystu Hildar Björnsdóttur borgarstjóra, gæti með tímanum breytt ásýnd borgarinnar til muna.
Í stefnuyfirlýsingunni birtast áform sem bæði auka kostnað og minnka tekjur borgarinnar, en ekki kemur fram hvernig það verði fjármagnað, að öðru leyti en með áformum um „hagræðingar og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu“.
Fyrsta verkefnið á lista nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks er að „auglýsa eftir vinnustöðum til samstarfs um rekstur leikskóla eða daggæslu“. Með þeim hætti ætla samstarfsflokkarnir að bregðast við skorti á leikskólaplássum.
Það sem gæti haft áhrif á hversdagslíf fólks strax eru áform um lengingu opnunartíma sundlauga til klukkan 22, frístundastyrkur fyrir tekjulága eldri borgara og stytting gjaldskyldutíma á bílastæðum í miðborginni. Árið 2023 tilkynnti borgin um verulega lengingu á gjaldskyldutíma, úr klukkan 18 til 21 á virkum dögum og frá 16 til 21 á laugardögum, auk þess sem innleidd var gjaldtaka á sunnudögum.
Ekki kemur fram í samstarfssáttmálanum að „aðskotahlutir“ verði fjarlægðir úr bílastæðum, eins og Sjálfstæðisflokkurinn boðaði í kosningabaráttunni, en þar er um að ræða blómapotta, bekki og myndasýningar í stæðum miðbæjarins.
Aukin áhersla er á einkarekstur í stefnu nýs meirihluta. Þannig verður sorphirða, sem er á forræði Sorphirðu Reykjavíkurborgar, boðin út í tilraunaskyni.
Þá verður fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði lækkaður.
Breyta skipulaginu
Nýr meirihluti ætlar að breyta skipulagi borgarinnar. Afdrifaríkasta breytingin liggur að líkindum í áformum um ný hverfi á Geldinganesi, Kjalarnesi, Gufunesi og á landfyllingum á Granda. Þá verður skipulagi nýrra hverfa í Keldnalandi og Úlfarsárdal breytt.
Gera má ráð fyrir tekjum af lóðasölu, en einnig miklum kostnaði við uppbyggingu innviða nýrra hverfa, bæði gatna- og lagnakerfis, leikskóla og skóla.
Nýr meirihluti mun „hefja samtal við ríkisstjórnina og nágrannasveitarfélög um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, fjármögnun hans og framkvæmdahraða“.
Í kosningabaráttu hafði Sjálfstæðisflokkurinn boðað flýtingu á Miklubrautargöngum og gjaldtöku á vegum einkaaðila.
Nýi meirihlutinn kveðst ætla að „standa vörð um og efla græn svæði borgarinnar og ráðast í skógræktarátak“.
Að sögn Hildar Björnsdóttur borgarstjóra verður verkefnalisti meirihlutans birtur á vefnum verkefnalisti.is þann 2. júní næstkomandi og aðgerðir þar tölusettar. Þar verði hann sýnilegur allt kjörtímabilið.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir