Umdeild gjaldskylda við Reykjanesvita: „Þetta er bara slóði“

Sam­kvæmt lóða­leigu­samn­ingi hef­ur fyr­ir­tæk­ið Reykja­nes Aur­ora heim­ild til að inn­heimta bíla­stæða­gjöld í 500 metra radíus við Reykja­nes­vita þrátt fyr­ir að leigja að­eins hluta af því landi. Eig­and­inn seg­ir að reynt hafi ver­ið á gjald­heimt­una fyr­ir dómi og hún úr­skurð­uð hon­um í vil. „Þetta er bú­ið að vera vand­ræða­mál,“ seg­ir Kjart­an Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæj­ar.

Umdeild gjaldskylda við Reykjanesvita: „Þetta er bara slóði“
Ekki bílastæði Áminning um gjaldskyldu var staðsett ofan á hraunhellu við listaverkið Geirfuglinn á Reykjanesi, andstætt niðurstöðu dómstóla. Skiltið var fært af staðnum eftir að Heimildin fór að grennslast fyrir um staðsetningu þess. Mynd: Golli

etta er ekki í nógu góðu lagi, ég skal alveg viðurkenna það,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, við Heimildina um bílastæðamál við Reykjanesvita. Þar hefur sveitarfélagið leigt land til að tryggja aðgengi ferðafólks að náttúrunni, en einkaaðilar hafa innheimt gjald af þeim sem fara þangað. Svæðið fellur innan Reykjanes jarðvangs, sem er viðurkenndur af Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) og hefur ríkið greitt tugi milljóna til uppbyggingar á stígum og þjónustuhúsi.

Gjaldskyldu var fyrst komið á á svæðinu árið 2021. Hlé var gert á henni í þónokkurn tíma og hófst hún aftur í fyrra. Í dag kostar þúsund krónur fyrir fólksbíl að keyra inn á svæðið og dvelja þar í meira en korter, jafnvel þótt eingöngu sé dvalið á landi sem leigt er af hinu opinbera í þágu aðgengis almennings og ferðafólks. Þá segir á vefsíðu Parka að fólk eigi yfir höfði sér 1.960 króna vangreiðslugjald sé bílastæðagjaldið ekki greitt á innan við sólarhring. 

Má rukka bílastæðagjöld í 500 metra radíus um vitann

Fyrirtækið Reykjanes Aurora, sem er í eigu Rúnars Más Sigurvinssonar, hefur rúmlega þriggja hektara land nálægt vitanum á leigu frá landeigendum og renna bílastæðagjöldin til þess. „Á þessu svæði hefur enginn verið rukkaður um vangreiðslugjöld,“ segir hann og bendir á að á svæðinu renni bílastæðagjöldin til uppbyggingar á þjónustu. Á síðasta ári opnaði gestastofa við vitann, sem er rekin af Bláa lóninu sem tekur meirihluta teknanna.

„Þetta eru ekki einhver malarstæði úti í haga sem veita enga þjónustu þar sem verið er að rukka allt og alla og leggja á einhver óhófleg vangreiðslugjöld. Þetta er mjög skýrt og rukkað eftir þeim samningum sem eru fyrirliggjandi og þeirri þjónustu sem er verið að veita.“

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MSB
    Margrét S. Björnsdóttir skrifaði
    Þvílíkt rugl-
    4
    • Margrét Sólveig Ólafsdóttir skrifaði
      Já græðgin er svo mikil, menn búa til holótt malarstæði og græða milljónir af innlendum og erlendum ferðamönnum, sem stoppa þarna.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Ósnortin víðerni: „Sorglegt að við getum ekki hugsað lengra fram í tímann“
SkýringFerðamannalandið Ísland

Ósnort­in víð­erni: „Sorg­legt að við get­um ekki hugs­að lengra fram í tím­ann“

„Þetta er nátt­úr­lega bara fyr­ir ákveð­inn hóp og skemm­ir í leið­inni upp­lif­un hinna sem vildu njóta nátt­úr­unn­ar,“ seg­ir Svan­hvít Helga Jó­hanns­dótt­ir um fyr­ir­hug­að­ar fram­kvæmd­ir við Hof­fell­slón. Breyt­ing­ar við lón­ið, Skafta­fell og Von­ar­skarð hafa vak­ið upp sterk við­brögð og spurn­ing­ar um nátt­úru­vernd í og við UNESCO-svæði.

Mest lesið

Fulltrúi Íslands sat áfram meðan tugir gengu úr salnum undir ræðu Netanyahu
2
Stjórnmál

Full­trúi Ís­lands sat áfram með­an tug­ir gengu úr saln­um und­ir ræðu Net­anya­hu

Tug­ir full­trúa gengu úr saln­um þeg­ar Benja­mín Net­anya­hu, for­sæt­is­ráð­herra Ísra­els, hóf ræðu sína á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Full­trúi Ís­lands sat áfram í sæti lands­ins. Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra var á sama tíma á fundi til stuðn­ings Palestínuflótta­manna­hjálp SÞ.
Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskatt
4
Stjórnmál

Sig­mund­ur Dav­íð vill af­nema erfða­fjárskatt

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son og sjö aðr­ir þing­menn reyna nú aft­ur að af­nema erfða­fjárskatt. Þau vísa með­al ann­ars til OECD en stofn­un­in hef­ur einnig fært sterk rök fyr­ir skatt­lagn­ingu þeg­ar um stór­an arf er að ræða. Það á til að mynda við um það þeg­ar eig­in­kona Sig­mund­ar fékk rúm­an millj­arð króna í fyr­ir­fram­greidd­an arf sem fór síð­ar inn í af­l­ands­fé­lag­ið Wintris.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ásgeir Brynjar Torfason
5
Pistill

Ásgeir Brynjar Torfason

Und­ir pils­faldi Banda­ríkj­anna

Hvernig lít­ur það út að hafa hafn­að að­ild­ar­við­ræð­um ut­an frá? Með því að úti­loka þann kost, hvernig bregð­umst við hér þá við breytt­um heimi? Ein leið er að taka landa­korti banda­ríska for­set­ans, sem sett hef­ur fána­lit­ina á yf­ir­ráða­svæð­ið sitt, sem gríni. Hvorki Kan­ada né Mexí­kó taka því gríni. Eyj­ar­skeggj­ar á Jamaíku og Kúbu eru lík­leg­ast hrædd­ir. Kannski er það kost­ur að vera bara kok­hraust.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
2
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár