Ósnortin víðerni: „Sorglegt að við getum ekki hugsað lengra fram í tímann“
Í átt að Skafta­felli Tign­ar­leg aðkoma er að Skafta­felli í Vatna­jök­uls­þjóð­garði. Mynd: Golli

Ósnortin víðerni: „Sorglegt að við getum ekki hugsað lengra fram í tímann“

„Þetta er nátt­úr­lega bara fyrir ákveð­inn hóp og skemmir í leið­inni upp­lifun hinna sem vildu njóta nátt­úr­unnar,“ segir Svanhvít Helga Jóhanns­dóttir um fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir við Hof­fellslón. Breyt­ingar við lónið, Skafta­fell og Von­ar­skarð hafa vakið upp sterk við­brögð og spurn­ingar um nátt­úru­vernd í og við UNESCO-svæði.

Breyt­ingar í nágrenni og innan Vatna­jök­uls­þjóð­garðs hafa verið í deigl­unni und­an­farið þar sem tek­ist er meðal ann­ars á um hvort halda eigi víð­ernum ósnortnum.  

„Það er mjög sorg­legt að við getum ekki hugsað lengra fram í tím­ann í svona upp­bygg­ingu og fattað að nátt­úran er það sem er ein­stakt við svæðið okkar og þjóð­garð­inn. Það er ástæðan fyrir að lang­flestir ferða­menn heim­sækja svæðið,“ segir Svanhvít Helga Jóhanns­dóttir, íbúi í Öræfum, í sam­tali við Heim­ild­ina.

Hún segir mik­il­vægt að Vatna­jök­uls­þjóð­garður stígi fast til jarðar þegar kemur að fram­kvæmdum í og við þjóð­garð­inn. „Þetta snýst um nátt­úru­vernd, þannig að mér finnst mjög óeðli­legt að þau séu diplómat­ísk í þannig mál­efnum.“

Heim­ildin fór yfir stöð­una í Skafta­felli, Hoffelli og Von­ar­skarði en breyt­ingar á þessum þremur svæðum, í og við Vatna­jök­uls­þjóð­garð, hafa vakið harða gagn­rýni. 

„Skrímsli“ í Skaftafelli

Nýlega vakti athygli upp­bygg­ing …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SÍF
    Sveinn í Felli skrifaði
    Að sjálfsögðu skal róa að því með öllum árum að drepa gullgæsina.
    Eins er smekkleysi nýríkra plebba vel þekkt stærð.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Umdeild gjaldskylda við Reykjanesvita: „Þetta er bara slóði“
UmhverfiðFerðamannalandið Ísland

Umdeild gjald­skylda við Reykja­nes­vita: „Þetta er bara slóði“

Samkvæmt lóða­leigu­samn­ingi hefur fyr­ir­tækið Reykja­nes Aurora heim­ild til að inn­heimta bíla­stæða­gjöld í 500 metra rad­íus við Reykja­nes­vita þrátt fyrir að leigja aðeins hluta af því landi. Eig­and­inn segir að reynt hafi verið á gjald­heimt­una fyrir dómi og hún úrskurðuð honum í vil. „Þetta er búið að vera vand­ræða­mál,“ segir Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár