Mest lesna rannsóknarefni Heimildarinnar 2024

Aðgerðir fyr­ir­tæk­is­ins Running Tide, smá­skila­boð Þor­steins Más og leyni­upp­taka af syni Jóns Gunn­ars­sonar voru þau rann­sókn­ar­efni sem voru mest lesin á vef Heim­ild­ar­innar á árinu sem er að líða.

Mest lesna rannsóknarefni Heimildarinnar 2024

1. Sökktu kurli og seldu syndaaflausn

Rannsókn Bjart­mars Odds Þeys Alex­and­ers­sonar og Sunnu Óskar Loga­dóttur

Mest lesna rann­sókn­ar­efni árs­ins fjall­aði um aðgerðir fyr­ir­tæk­is­ins Running Tide á Íslandi. „Ýttu á takk­ann og bjarg­aðu heim­in­um,“ skrif­ar vís­inda­mað­ur af kald­hæðni er hann bend­ir um­hverf­is­ráðu­neyt­inu á var­úð­ar­orð ut­an úr heimi um að­ferð­ir sem fyr­ir­tæk­ið Runn­ing Tide fékk leyfi stjórn­valda til að prófa í þágu lofts­lags í Ís­lands­höf­um. Að­gerð­irn­ar umbreytt­ust í allt ann­að en lagt var upp með.

Birtist 14. júní.

2. Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins

Afhjúpun Aðal­steins Kjart­ans­sonar og Helga Seljan

Tækni­mönn­um á veg­um hér­aðs­sak­sókn­ara tókst að end­ur­heimta á ann­að þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­son­ar og Jó­hann­es­ar Stef­áns­son­ar, á með­an sá síð­ar­nefndi var við störf í Namib­íu. Skila­boðin drógu upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn Samherja reyndu að mála upp árin áður.

Birtist 18. októ­ber.

3. Handtekinn í sturtu og hjartað stöðvaðist

Rannsókn Auðar Jóns­dóttur og Ingi­bjargar Daggar Kjart­ans­dóttur

Ívar Örn Ívarsson var 22 ára gam­all íþrótta­maður sem lifði fyrir að leika sér, átti kær­ustu og bjarta fram­tíð. Þangað til hann fékk sitt fyrsta og eina geð­rof, var hand­tek­inn í sturtu, fékk hjarta­stopp, heilaskaða og lam­að­ist var­an­lega. 

Birtist 1. mars.

4. Leyniupptaka lýsir vinargreiða og hrossakaupum Bjarna og Jóns

Afhjúpun Aðal­steins Kjart­ans­sonar og Helga Seljan

Sonur og við­skipta­fé­lagi Jóns Gunn­ars­sonar, fyrr­ver­andi þing­manns, full­yrti í upp­tökum sem teknar voru af gervi­fjár­festi að Jón hefði sam­þykkt beiðni Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að þiggja sæti á lista gegn því að Jón kæm­ist í aðstöðu til að veita hval­veiði­leyfi til Hvals hf. Það yrði arf­leifð Jóns að tryggja Krist­jáni Lofts­syni, nán­um vini sín­um, leyf­ið. Það væri hins veg­ar eitt­hvað sem ætti að fara leynt.

Birtist 11. nóv­em­ber.

5. Móðir Marks heitins: „Þetta er í raun og veru léttir“

Úttekt Erlu Hlyns­dóttur

Mark Gunnar Roberts fannst með­vit­und­ar­laus í fanga­klefa sínum á Hólms­heiði nokkrum dögum fyrir jól í fyrra. Hann var end­ur­lífg­aður og fluttur á sjúkra­hús þar sem hann lést nokkru síðar. Mark ólst upp við drykkju og of­beldi föð­ur síns og ára­tug­um sam­an reyndi móð­ir hans að fá hjálp fyr­ir son sinn, sagði hann „hættu­leg­an án lyfja­gjaf­ar“, en án ár­ang­urs. Síð­ustu ár átti Mark ekki í nein hús að venda önn­ur en neyð­ar­skýli fyr­ir heim­il­is­lausa eða fang­elsi.

Birtist 7. febr­úar.

6. Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“

Úttekt Inga Freys Vil­hjálms­sonar

Fyrr­ver­andi starfs­menn Alvotech lýstu vinnu­á­lagi sínu hjá fyr­ir­tæk­inu sem ómann­eskju­legu og leit­uðu til stétt­ar­fé­laga vegna meðal ann­ars ógreiddrar yfir­vinnu. Vinnu­að­stæð­urn­ar höfðu verið svona vegna vinnu við að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. 

Birtist 26. apríl.

7. Saga af áralangri vanrækslu og vonleysi: „Þetta heitir Betra líf sko“

Rannsókn Ölmu Mjallar Ólafs­dóttur og Erlu Hlyns­dóttur

Greint var frá aðbún­aði og sögum þeirra sem bjuggu á áfanga­heim­il­inu Betra lífi í Kópavogi. Slökkvi­liðið hafði kært Arnar Gunnar Hjálmtýs­son, for­ráða­mann heim­il­is­ins, til lög­reglu fyrir að hafa stefnt lífi og heilsu íbúa í hættu eftir að eldur kvikn­aði í starf­sem­inni í fyrra hús­næði.

Birtist 24. maí

8. Enginn tekur ábyrgð á slysi sem leiddi til kvalafulls dauðdaga

Rannsókn Ragn­hildar Þrast­ar­dóttur

Maður lést eftir að 60 kílóa hurð féll inni í her­bergi hans á hjúkr­un­ar­heim­ili. Dætur hans segja óvið­un­andi að eng­inn hafi tekið ábyrgð á slys­inu og að föður þeirra hafi verið kennt um atvikið. Önn­ur eins hurð hafði losn­að áð­ur en slys­ið varð en eng­in frek­ari hætta var tal­in vera af hurð­un­um. 

Birtist 20. sept­em­ber

9. Tilgangsleysi og gáleysi birtist í rannsókn slyssins í Grindavík 

Afhjúpun Helga Seljan

Það svar­aði ekki kostn­aði að fara í fram­kvæmd­ir við að bjarga hús­inu við Vest­ur­hóp 29 í Grinda­vík, sam­kvæmt skýrslu tveggja mats­manna sem skoð­uðu hús­ið rúm­um mán­uði áð­ur en að verk­taki lést við sprungu­fyll­ingu við hús­ið. „Þetta er bara stór­kost­legt gáleysi af fólk­inu sem stýrir verk­inu,“ sagði sam­starfs­maður Lúðvíks Pét­urs­sonar í vitna­skýrslu hjá lög­reglu.

Birtist 6. sept­em­ber.

10. Hulduheildsali flytur inn hundruð tonna af kjöti

Rannsókn Helga Seljan

Huldu­fyr­ir­tæki skráð í íbúð­ar­húsi á Álfta­nesi flytur inn stóran hluta alls nauta­kjöts á Íslandi. Fyr­ir­tækið skaut óvænt upp koll­inum þegar félags­menn Kaup­fé­lags Skag­firð­inga gerðu upp­reisn gegn inn­flutn­ingi Kaup­fé­lags­ins, í beinni sam­keppni við eigin félags­menn.

Birtist 2. júlí. 
Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Uppgjör ársins 2024

Erlendur annáll: Kosningar og ófriður lituðu árið
ErlentUppgjör ársins 2024

Erlendur ann­áll: Kosn­ingar og ófriður lit­uðu árið

Pia Hansson, for­stöðu­maður Alþjóða­mála­stofn­unar Háskóla Íslands, segir að árið 2024 hafi verið óvenju við­burð­ar­ríkt ár. Árið ein­kennd­ist af kosn­ingum þar sem sitj­andi vald­höfum var refsað og blóð­ugum stríðs­á­tökum sem stig­mögn­uð­ust á árinu. Pia seg­ist miðað við það sem undan hefur gengið í heims­mál­unum fari hún því miður ekki full bjart­sýni inn í nýja árið.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár