Mest lesnu pistlar ársins 2024

Mest lesnu pistlar og skoð­ana­grein­arnar á árinu sem er að líða fjöll­uðu um Ára­mótaskaupið, Söngvakeppni sjón­varps­ins og elít­isma sem ein­kenndi for­seta­fram­boð frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra.

Mest lesnu pistlar ársins 2024

1.  Það sem var skrítið við áramótaskaupið

Mest lesni pist­ill árs­ins birt­ist fyrir næstum því heilu ári síðan, eða á nýárs­dag 2024. Í honum vakti Jón Trausti Reyn­is­son máls á því hvernig ára­mótaskaupið hverfð­ist um upp­lifun frægs fólks og pen­inga­dýrkun, í stað þess að taka upp sjón­ar­horn almenn­ings.

Birtist 1. jan­úar.

2. „Fáránleikinn“ tekur sviðið í Eurovision

Næst mest lesni pist­ill árs­ins fjall­aði um brota­línur menn­ing­ar­stríðs sem lágu í gegnum Eurovision-söngvakeppn­ina í ár vegna stríðs­rekst­urs Ísraels í Palest­ínu. „Því var áður spáð að hat­rið myndi sigra, en það var í ár sem hræðslan við að sýna kær­leika sigr­aði,“ skrif­aði Jón Trausti um það að hinn palest­ínski Bashar Murad hefði lotið í lægra haldi fyrir Heru Björk.

Birtist 3. mars.

3. Þið eruð óvitar! – hlustið á okkur

Auður Jóns­dóttir skrif­aði um þann „anda elít­isma“ sem henni þótti ein­kenna kosn­inga­bar­áttu Katrínar Jak­obs­dóttur, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Þar kæmu saman menn­ing­ar­legt vald, vald fjár­magns­ins og vald sjálfs valda­kerf­is­ins og leit­uð­ust við að styðja sinn fram­bjóð­anda til sig­urs.

Birtist 27. maí

4. Hvítur hrafn í óvissu

Ásta S. Fjeld­sted, for­stjóri Festis, skrif­aði um það sem hún lærði af japönskum yfir­manni sínum þegar hún starf­aði í Tókýó við það verk­efni að efla hag­vöxt í Japan. Yfir­mað­ur­inn sagði henni meðal ann­ars að hún þyrfti að læra að taka óvissu opnum örmum. Ótímabær og nístandi dauðs­föll í fjöl­skyldu Ástu árið 2023 minntu hana sömu­leiðis á ófyr­ir­sjá­an­leika lífs­ins. 

Birtist 11. jan­úar

5. Litla Gunna í Kristjaníu, litli Jón á Kvíabryggju

„Endi litla Gunna sem hass­reykj­andi auðnu­leys­ingi í Krist­janíu eða litli Jón sem hvít­flibba­glæpa­maður á Kvía­bryggju vill eng­inn þurfa að lifa með þeirri hugsun að hefðum við aðeins munað eftir spar­i­nest­is­deg­inum og mætt á bad­mint­on­mótið væri Gunna nú sviðs­stjóri hjá borg­inni og Jón með­eig­andi á lög­manns­stofu.“ Sif Sig­mars­dóttir skrif­aði um for­eldra­hlut­verkið og ábyrgð­ina og sam­visku­bitið sem því fylgir.

Birtist 4. maí.

6. Það sem ég á Bjarna Ben að þakka

Sif Sig­mars­dóttir skrifar um þakk­lætið og þann inn­blástur sem stjórn­mála­fer­ill Bjarna Bene­dikts­sonar, sem þá var nýorð­inn for­sæt­is­ráð­herra í annað sinn, hefur veitt hennar pistla­skrifum. „Ávallt er Bjarni á sínum stað, eini fast­inn í fall­völtum heimi, á vakt­inni þegar Eng­eyj­a­rættin og hug­mynda­lausir pistla­höf­undar þurfa á hjálp að halda.“

Birtist 27. apríl.

7. Svens: Fíkn, sala, sakleysi og gróði

Jón Trausti Reyn­is­son skrifar um þær sölu­að­ferðir og aug­lýs­ingar sem nikótín­söluris­inn Svens not­færir sér. „Eitt er að selja nikótín til fólks, annað er að mark­aðs­setja góð­lega teikni­mynda­fígúru með­vitað út frá sak­leysi, dyggðum og heil­næmi, sem hefur aug­ljóst aðdrátt­ar­afl fyrir börn og ung­menni,“ skrifar hann.

Birtist 26. febr­úar.

8. Ég er hættur að eyða tíma með fjölskyldunni

„Ég hef lært að „eyða“ aldrei tíma með börn­unum mínum eða fjöl­skyldu. Tímanum er ein­fald­lega alltaf varið með þeim,“ skrif­aði Ísak Hilm­ars­son í pistli um það sem hann hefur lært. Hann hefur unnið að því að safna saman fæð­ing­ar­sögum feðra og segir að sín upp­lifun sé sú að fæst pör hafi rætt saman um upp­lif­anir sínar af fæð­ingum barna sinna.

Birtist 23. júní.
Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Uppgjör ársins 2024

Erlendur annáll: Kosningar og ófriður lituðu árið
ErlentUppgjör ársins 2024

Erlendur ann­áll: Kosn­ingar og ófriður lit­uðu árið

Pia Hansson, for­stöðu­maður Alþjóða­mála­stofn­unar Háskóla Íslands, segir að árið 2024 hafi verið óvenju við­burð­ar­ríkt ár. Árið ein­kennd­ist af kosn­ingum þar sem sitj­andi vald­höfum var refsað og blóð­ugum stríðs­á­tökum sem stig­mögn­uð­ust á árinu. Pia seg­ist miðað við það sem undan hefur gengið í heims­mál­unum fari hún því miður ekki full bjart­sýni inn í nýja árið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár